DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Frosted Vines

Prjónuð peysa með köðlum og áferðamynstri úr DROPS Karisma og DROPS Cotton Viscose eða DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stærð S-XL.

DROPS 58-6
DROPS Design
Garnflokkur B + A
----------------------------------------------------------

Síð eða stutt peysa.
Stærð: S/M (M/L - Xl)
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
800 (900-1000) gr nr 01, natur
Og notið: DROPS Cotton Viscose frá Garnstudio
700 (800-850) gr nr 02, natur

Eða notið:
Efni:
DROPS Lima frá Garnstudio
800 (900-1000) g nr 0100, natur
og notið: DROPS Kid-Silk frá Garnstudio
200(225-250) g nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 4 OG 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf á prjón nr 5 og mynstri M.3 verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

STUTT PEYSA:
Ef óskað er eftir styttri peysu er prjónað þannig: Málin við handveg, háls og úrtöku eru stytt um 14 (15-16) cm. Loka mál = 60 (62-64) cm.
Efnismagn er minnkað um ca 50 gr af Alaska og ca 50 gr af Cotton Viscose.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð úr tveimur þráðum = 1 þræði Karisma + 1 þræði Cotton Viscose eða 1 þræði Lima og 1 þræði Kid-Silk í hring á hringprjón upp að handveg, frá handveg og uppúr er peysan prjónuð fram og til baka.
Ef óskað er eftir styttri peysu, sjá – STUTT PEYSA- að ofan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192 (208-224) l á hringprjón nr 4 með 1 þræði Karisma + 1 þræði Cotton Viscose (= 2 þræðir) eða 1 þræði Lima og 1 þræði Kid-Silk og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN (prjónað í hring) - sjá skýringu að ofan, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 10 cm.
Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 56 (56-56) l jafnt yfir í síðustu umf = 248 (264-280) l.
Skiptið yfir á hringprjón nr 5 og prjónið mynstur uppúr þannig: * 16 (20-24) l af M.3, M.2, M.4, M.2, 16 (20-24) l af M.3 *, endurtakið frá *-* yfir bakstykki.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 49 (51-54) cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 2 l fyrir handveg, 120 (128-136) l framstykki, fellið af 4 l fyrir handveg, 120 (128-136) l bakstykki, fellið af 2 l fyrir handveg.
Prjónið nú fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 120 (128-136) l. Fellið nú af fyrir handveg í annarri hveri umf: 3 l 0 (1-1) sinni, 2 l 1 (1-3) sinni, 1 l 3 sinnum = 110 (112-112) l. Í umf áður en stykkið mælist 65 (68-71) cm fækkið um 15 l jafnt yfir miðju 38 (40-40) l. Þegar stykkið mælist 65 (68-71) cm fellið af miðju 23 (25-25) l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við háls í annarri hverri umf: 2 l 1 sinni, 1 l 1 sinni = 33 (33-33) l á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 67 (70-73) cm fækkið um 6 l jafnt yfir þær l sem eftir eru í hverju M.2 = 27 (27-27) l á öxl. Prjónið 2 umf garðaprjón (fyrir saum), fellið af.

BAKSTYKKI:
= 120 (128-136) l. Fellið nú af fyrir handveg eins og á framstykki = 110 (112-112) l. Þegar stykkið mælist 67 (70-73) cm fækkið nú um 6 l jafnt yfir miðju 12 l í hverju M.2 og 15 l jafnt yfir 36 l M.4 = 83 (85-85) l. Prjónið 2 umf garðaprjón (fyrir saum), fellið af.

HÆGRI ERMI:
Fitjið upp 40 (44-44) l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði Karisma + 1 þræði Cotton Visose (= 2 þræðir) eða 1 þræði Lima og 1 þræði Kid-Silk og prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 10 cm. Brjóta á uppá stroffið þess vegna mælist það eins og 5 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 26 (24-24) l jafnt yfir í síðustu umf = 66 (68-68) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið mynstur þannig: 21 (22-22) l af M.2 (byrjið við ör í mynstri), M.1, M.6, 21 (22-22) l af M.2. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 l mitt undir ermi 20 (21-21) sinnum í stærð S: Í 4. hverri umf, M+L: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf = 106 (110-110) l (útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í M.2, síðan inn í M.3 útauknu l eru fyrst prjónaðar inn í M.2, síðan inn í M.3). Þegar stykkið mælist 46 (45-44) cm (+ 5 cm stroff) fellið af 4 l mitt undir ermi og prjónað er til loka fram og til baka. Fellið síðan af á hvorri hlið fyrir öxl í annarri hverri umf: 4 (3-3) l 6 (8-10) sinnum og síðan 11 (13-7) l 1 sinni í hvorri hlið = 32 (32-32) l eftir á prjóni, stykkið mælist ca 53 (54-55) cm – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Aukið út um 1 l hvoru megin fyrir saum = 34 (34-34) l (kantlykkja er prjónuð með garðaprjóni). Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju, 1 l sléttprjón, 2 l br, M.1, M.6, 2 l br, 2 l sléttprjón, 1 kantlykkja. Í umf áður en stykkið mælist 16 (16-16) cm er fækkað um 6 l jafnt yfir síðustu 20 l á hægri hlið (séð frá réttu). Í næstu umf eru felldar af síðustu 14 l á hægri hlið = 14 l á prjóni. Fellið síðan af 2 l jafnt yfir næstu 4 l. Í næstu umf eru felldar af að auki 2 l á hægri hlið = 10 l á prjóni.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 24,5 (25-25) cm. Prjónið saman síðustu l í M.1 og fyrstu í M.6 = 9 l á prjóni. Setjið þessar 9 l á band. Stykkið mælist alls ca 77,5 (79-80) cm (+ 5 cm stroff).

VINSTRI ERMI:
Prjónið eins og hægri ermi, nema fellið af á gangstæðri hlið.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið niður axlarlykkjur frá búk að hvorri hlið á ermi í ystu lykkju (garðaprjón). Saumið saman lykkjur af bandi efst á báðum ermum mitt aftan í hnakka á búk með lykkjuspori.

HÁLSMÁL:
Takið upp ca 88-96 l (deilanlegt með 4) í kringum hálsmál á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði Karisma + 1 þræði Cotton Viscose eða 1 þræði Lima og 1 þræði Kid-Silk og prjónið 4 umf garðaprjón, 8 cm stroff 2 l sl, 2 l br, 4 umf garðaprjón, fellið af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 58-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Thiebaud Annie wrote:

Je suis en attente pour l'e xplication du pull Frosted Vines Design 58-6 il s'agit de la tête de24 2= la manche façon marteau et on me dit de continuer sur les 10 mailles pendant 245 cm taille s .Je suis en doute cela me parait énorme pourriez vous me renseigner sur cette difficulté Je vous en remercie

20.12.2023 - 21:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thiebaud, on ne doit pas continuer pendant 24,5 cm mais jusqu'à ce que la tête de manche mesure 24,5 cm (depuis que l'on a augmenté 1 m de chaque côté), ce qui correspond à la longueur de l'épaule - (cf schéma). Bon tricot!

21.12.2023 - 08:27

country flag Janelle wrote:

The type of yarn I’m using is pretty bulky and the recommended needle size is US 11-15 (8 mm-10 mm). Can I use this yarn for the needle size the patterns says or would I need to convert it for it to work on size 11 needles?

19.11.2023 - 13:24

DROPS Design answered:

Dear Janelle, your tension would be completely different and you would have to recalculate completely the pattern to match your tension. You can find all our patterns for jumper for super bulky yarns here. Happy knitting!

20.11.2023 - 10:40

country flag Thiebaud Annie wrote:

Bonjour je suis arretee sur le modèle 58-6 j'ai tricote dos et devant. Taille s mais je n'arrive pas sur les 68 mailles à repartir les différents points pourriez-vous s'il vous plaît me le programmer. merci encore d'avance.

26.10.2023 - 23:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thiebaud, en taille S, on doit avoir 66 mailles que l'on va tricoter ainsi: 21 de M2 (commencez par la flèche correspondant à la taille S et lisez vers la gauche), M1 (= 12 mailles), M6 (=12 mailles) et 21 mailles de M2. soit 21+12+12+21= 66. Bon tricot!

27.10.2023 - 09:38

country flag Thiebaud Annie wrote:

Bonjour pourriez vous me donner l'explication du diagramme du numéro 58 6 faut-il au retour tricoter les mailles comme elles se présentent ? En vous remerciant merci de ce service dont je suis en attente.

31.03.2023 - 22:23

country flag Cornelia wrote:

Hallo. Ich habe eine Frage zum Ärmel. Man soll die zugenommenen Maschen ins Muster einfügen. Welches Muster ist gemeint? M3?

01.02.2023 - 23:22

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, die Zunahmen werden zuerst in M.2 gestrickt, und wenn es 28 M in M.2 gibt, werden die neuen Maschen in M.3 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

02.02.2023 - 09:31

country flag Lorraine Kelly wrote:

Is there a way to translate the pattern into English

09.01.2023 - 17:23

DROPS Design answered:

Dear Lorraine, click on the scroll down menu below the picture to edit language into either UK-English (with cm) or US-English (with inches). Happy knitting!

10.01.2023 - 09:38

country flag Katinka wrote:

Goedemorgen, ik wil deze trui breien maar loop tegen een probleem aan met de maat . Voor de boord worden 192 steken opgezet, dat is zoals in de tekening staat aangegeven 57 cm per kant. Vervolgens wordt na de boord gemeerderd naar 248 steken oftewel 72,9 cm per kant. Dat lijkt me wel erg groot voor een s/m trui? Of maak ik nu een denkfout .... ik hoor graag van u.

10.03.2022 - 09:23

DROPS Design answered:

Dag Katinka,

De meerderingen zijn nodig omdat er kabels gebreid worden en de kabels trekken het werk in elkaar. Dit wordt gecompenseerd door de meerderingen. Dat kan soms erg veel lijken, maar het komt goed!

10.03.2022 - 12:16

country flag Paola wrote:

Buonasera, ho finito di lavorare le maniche , sto attaccandole al maglione, ma non riesco a capire dove devo cucire le maglie che sono sul fermamaglie.

22.03.2021 - 19:37

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, le maglie in sospeso vanno cucite sul dietro del collo. Buon lavoro!

27.03.2021 - 19:24

country flag Ank Van Den Heuvel wrote:

Ik heb 15 februari een vraag gesteld, maar nog geen antwoord gekregen. Ik zou de trui zo graag afbreien.

07.03.2021 - 16:26

country flag Ank Van Den Heuvel wrote:

Ik loop een beetje vast bij de minderingen van het achterpand. Op een hoogte van 70 cm, in de middelste 12 steken van M2: 6 steken en gelijkmatig verdeeld over de 36 st van M4 15 steken en dan natuurlijk weer in de middelste 12 steken van M2: 6 steken . \r\nEn daarmee loop ik vast, in M2 minderen over de rechte steken, dan de averechte steken en dan in het midden van M 4 weer minderen. Het lijkt me dat ik dan een rare nek kant krijgen van het achterpand. Graag uw hulp.

15.02.2021 - 23:40