Fields of Blue |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð húfa og hálsskjól með pufflykkjum. Allt settið er heklað úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk.
DROPS 204-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR (á við um bæði húfu og kraga): Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðli. 1 PUFFLYKKJA: Heklið í sömu lykkju þannig (það er mikilvægt að hekla í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um hekluðnálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, dragið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði smáar og þéttar er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er, þ.e.a.s. ca 2 cm) *, heklið *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 28) = 2,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca hverja og aðra hverja fastalykkju saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er hekluð fram og til baka frá miðju að aftan, neðan frá og upp og saumuð saman mitt að aftan í lokin. HÚFA: Heklið 75-77-82 loftlykkjur með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 0-2-1 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 5 næstu loftlykkjum *, heklið *-* út umferðina = 62-64-68 fastalykkjur í umferð. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.3 yfir 2 lykkjur og endið með A.4 yfir síðustu lykkju. Haldið áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 20-21-22 cm, fækkið um 28-30-30 lykkjur jafnt yfir í 3. eða 6. umferð í mynsturteikningu (merkt með ör í mynsturteikningu) – sjá ÚRTAKA = 34-34-38 lykkjur. Heklið 2 umferðir til viðbótar með pufflykkjum. Í næstu umferð (umferð með fastalykkjum), fækkið lykkjum með því að hekla allar fastalykkjurnar saman 2 og 2 = 17-17-19 fastalykkjur eftir. Heklið síðan 2 umferðir fastalykkjur þar sem allar fastalykkjurnar eru heklaðar saman 2 og 2 í báðum umferðum = 5 fastalykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, en skiljið eftir nægilega langan þráð til nota til að sauma stykkið saman með. Þræðið þráðinn upp og niður í gegnum 5 lykkjurnar á toppnum á húfunni, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27-28 cm ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman mitt að aftan – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að aftan, neðan frá og upp og saumað saman mitt að aftan í lokin. HÁLSSKJÓL: Heklið 94-101-108 loftlykkjur með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja og eina af 1-2-3 næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 5 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 78-84-90 fastalykkjur í umferð. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1A yfir fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.3 yfir 2 lykkjur og endið með A.4 yfir síðustu lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona þar til stykkið mælist ca 24-27-30 cm (eða að óskaðri lengd), en endið eftir 3. eða 6. umferð í mynsturteikningu. Klippið frá, en skiljið eftir nægilega langan þráð til að nota til að sauma stykkið saman með. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Nicoke wrote:
Schade, der Herbst hat schon angefangen und die Anleitung ist noch nicht fertig :-(
26.09.2019 - 22:40Ingrid wrote:
Really love it. A must have.
04.07.2019 - 15:49Elsa Alís Domínguez wrote:
A beautiful set to knit next autumn-winter!
06.06.2019 - 09:50