DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2178.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Crisp Summer

Heklaður hattur með stjörnumynstri úr DROPS Bomull-Lin. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hálfum stuðlum og stjörnumynstri í röndum.

DROPS 209-10
DROPS Design: Mynstur l-153
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Ein stærð
Höfuðmál ca: 54/58 cm.

EFNI:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 11, beige
50 g litur 05, brúnn

HEKLFESTA:
18 hálfa stuðlar á breidd og 16 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2178.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð er fyrsta hálfa stuðli skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, heklað er ofan frá og niður.

HATTUR:
Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 11 hálfa stuðla um hringinn – SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 hálfa stuðla í hvern hálfan stuðul = 22 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið * 2 hálfa stuðla i fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul i næsta hálfan stuðul *, endurtakið *-* hringinn úr umferðina = 33 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 4: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 2 hálfa stuðla *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 44 hálfir stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 3 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 55 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 6: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 4 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 66 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 7: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 5 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 77 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 8: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfur stuðull í hvern og einn af næstu 6 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 88 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 9: Heklið * 2 hálfa stuðla í fyrsta/næsta hálfa stuðul, 1 hálfan stuðul í hvern og einn af næstu 43 hálfum stuðlum *, endurtakið *-* hringinn út umferðina = 90 hálfir stuðlar.
Haldið áfram með 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 12 cm frá toppi.

Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið stjörnumynstur þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur, takið upp 2 lykkjur með byrjun í 2. loftlykkju frá heklunálinni, takið síðan upp 1 lykkju aftan í hvern lykkjuboga á næstu 2 hálfum stuðlum (= 5 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 5 lykkjurnar, heklið 1 loftlykkju sem myndar gat efst í 5 lykkjunum, * takið upp 1 lykkju í gatinu, 1 lykkju í hlið á síðustu af lykkjunum, 1 lykkju í sömu lykkju og síðasta af lykkjunum sem tekið var upp í, 1 lykkja í aftari lykkjubogann á hverri og einn af næstu 2 lykkjum í umferð (= 6 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 lykkjurnar og gerið 1 loftlykkju *, heklið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 45 hálfar stjörnur.
UMFERÐ 2: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 hálfan stuðul í fyrsta «stjörnugatið», síðan eru heklaðir 2 hálfir stuðlar í hvert «stjörnugat» umferðina hringinn, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð = 45 heilar stjörnur (= 90 hálfir stuðlar meðtaldar fyrstu 2 loftlykkjur).
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn natur og heklið 3 loftlykkjur, takið upp 1 lykkju í 2. og 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 lykkja í aftari lykkjubogann á fyrstu 2 hálfu stuðlum í umferð (= 5 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 5 lykkjurnar, 1 loftlykkja, * takið upp 1 lykkju í gatinu, 1 lykkju í hlið á síðustu af lykkjunum, 1 lykkju í sama hálfa stuðulinn sem síðasta af lykkjunum var tekið upp í, 1 lykkja í aftari lykkjubogann á hverjum og einum af næstu 2 hálfu stuðlum (= 6 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 lykkjurnar og gerið 1 loftlykkju *, heklið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 45 hálfar stjörnur.
UMFERÐ 4: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 hálfan stuðul í fyrsta «stjörnugatinu», heklið síðan 2 hálfa stuðla í hvert «stjörnugat» umferðina hringinn, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð = 45 heilar stjörnur (= 90 hálfir stuðlar meðtaldar 2 loftlykkjur).
Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið umferð 3 og 4 einu sinni til viðbótar. Stykkið mælist ca 18 cm frá toppi.

BARÐ:
Skiptið yfir í litinn natur. Setjið 10 prjónamerki með 8 lykkju millibili á milli prjónamerkja (prjónamerkin sitja í lykkjunum). * Heklið 1 umferð með hálfum stuðlum og aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 hálfa stuðla í hverja lykkju með prjónamerki = 10 lykkjur fleiri = 100 hálfir stuðlar.
Heklið 1 umferð með hálfum stuðlum *. Heklið frá *-* alls 3 sinnum = 120 hálfir stuðlar.
Heklið síðan umferð með 1 hálfum stuðli í hvern hálfan stuðul þar til barðið mælist ca 7 cm. Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Barbara Frow wrote:

I'm a total beginner with different kinds to stitches so I'm totally lost with this next bit - **pick up 1 loop in the hole, 1 loop in the side in the last of the loops, 1 loop in the same stitch as the last loop was picked up from** Can you please explain further how to do this? Where do I pick up the loop in the hole? Is there a video I can watch to do this? Thank you so much

19.10.2022 - 09:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Frow, sure, this video shows how to crochet the star partern in the round. Happy crocheting!

19.10.2022 - 10:22

country flag Monique wrote:

Waarom moet je bij het ster patroon in de achterkant van een steek (die laatste 2 van de 6) opnemen en niet gewoon de hele steek?of de voorkant? Het is een Leuk patroon en niet moeilijk maar waarom is dat?

04.05.2022 - 15:21

DROPS Design answered:

Dag Monique,

Op deze manier komt de steek beter tot zijn recht.

09.05.2022 - 17:38

country flag Greetje Feunekes wrote:

Waar vind ik het patroon van 209-10

16.06.2021 - 21:07

country flag Antonella wrote:

Buongiorno, vorrei fare questo cappello per una testa che misura 60cm circa. Come posso fare, per favore? Grazie mille, è bellissimo!

05.02.2021 - 07:57

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, deve lavorare un campione e in base a quello riprogettare il modello per adattarlo alla misura che desidera. Buon lavoro!

05.02.2021 - 19:14

country flag Kjersti Myrseth wrote:

Hei. Jeg hekler hatten nå og har vel måttet ta opp alt fire ganger fordi det blir for mange masker, rar form eller et hakk i høyde grunnet hekleinfo. Er det slik at hekleinfoen om to luftmasker skal erstatte første halvstav gjelde for hver eneste omgang gjennom hele oppskriften? Hatten får tydelig et hakk/"mellomrom" nedover når jeg gjør dette også ender jeg opp med for mange masker. Skal det være sånn? Jeg blir snart helt gal............ haha

12.01.2021 - 13:24

DROPS Design answered:

Hei Kjersti. Du starter hver omgang der det skal hekles halvstav med 2 luftmasker, disse luftmaskene erstatter første halvstav. 2 luftmasker i høyden tilsvarer 1 halvstav i høyden. Slik at når det står i oppskriften, hekle 11 halvstaver om ringen er det 2 luftmasker og 10 halvstaver. Om du for mange halvstaver på omgangen, kanskje du har heklet både 2 luftmasker og 1 halvstav i 1. maske fra forrige omgang? mvh DROPS design

15.01.2021 - 11:55