DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2178.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Garden Girl

Heklaður hattur úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er heklað ofan frá og niður með fastalykkjum.

DROPS 209-8
DROPS Design: Mynstur l-154
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – M/L
Höfuðmál ca: 54/56 – 56/58 cm.

EFNI:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150 g litur 05, brúnn

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200 g litur 44, brúnn

HEKLFESTA:
16 fastalykkjur á breidd og 18 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2178.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.

ÚTAUKNING/ÚRTAAKA (jafnt yfir):
Til að reikna út hvernig auka á út/fækka lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 21.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í 21. hverja lykkju.
Ef fækka á lykkjum eru heklaðar 20. og 21. hver fastalykkja saman þannig: * Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, heklað er ofan frá og niður.

HATTUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Bomull-Lin eða Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem hekluð var í umferð.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn – sjá HEKLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju * heklið *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur.
UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 7 - 14: Heklið fastalykkjur og haldið áfram með útaukningu alveg eins. Þ.e.a.s. það verður 1 lykkja fleiri á milli útaukninga í hverri umferð sem er hekluð. Þegar 14. umferð hefur verið hekluð til loka eru 84 fastalykkjur í umferð.
Útaukningu í stærð S/M er nú lokið. Heklið síðan eins og útskýrt er að neðan.
Í stærð M/L heklið 1 umferð til með til viðbótar með útaukningu alveg eins (= 6 lykkjur fleiri) = 90 lykkjur.

BÁÐAR STÆRÐIR:
Heklið 1 fastalykkja í hverja fastalykkju umferðina hringinn þar til stykkið mælist 18-19 cm frá toppi.

BARÐ:
UMFERÐ 1: Heklið 1 umferð með fastalykkjum þar sem lykkjur eru jafnaðar út til 88 lykkjur í báðum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Þ.e.a.s. í stærð S/M aukið út 4 lykkjur og í stærð M/L er fækkað um 2 lykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af 10 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 96 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 11 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 104 fastalykkjur.
UMFERÐ 5 - 12: Heklið fastalykkjur og haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, þannig að það verður 1 lykkja fleiri á milli útaukninga í hvert skipti sem aukið er út. Þegar 12. umferðin hefur verið hekluð til loka eru 136 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.

Snúið stykkinu og heklið kant frá röngu í kringum barðið með krabbahekli (krabbahekl = heklið fastalykkjur frá vinstri til hægri). Klippið frá og festið enda.

SNÚRA OG LYKKJUR:
Heklið loftlykkjur með Bomull-Lin eða Paris með heklunál 4,5 þar til loftlykkjuröðin mælist ca 150 cm. Hnýtið hnút í hvorn enda og festið þráðinn. Leggið snúruna 2 sinnum utan um hattinn og hnýtið hnút.
Heklið nú 2 lykkjur sem snúran fer í gegnum. Heklið loftlykkjur með Bomull-Lin eða Paris með heklunál 4,5 þar til loftlykkjuröðin mælist ca 2 cm. Klippið frá en skiljið eftir smá þráðar enda í hvorri hlið til að festa lykkjuna með. Heklið aðra lykkju alveg eins. Leggið lykkjurnar í hvora hlið mitt aftan á hattinum, þannig að það verða ca 14 cm á milli þeirra. Þær eiga að liggja lóðrétt yfir snúruna þannig að snúran festist við hattinn.
Festið endana í hvorri hið á snúrunni að innanverðu á hattinum.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Carol Besdansky wrote:

I am working off a version of this pattern on Pinterest. It says to single crochet. On this pattern it says double crochet. It would be so helpful to know which is correct since I have already tried this pattern three times to no avail. Thank you

15.02.2024 - 23:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bedansky, make sure to follow the appropriate English as UK and US have different terminology by clicking on the scroll down menu below pictures. ie 1 dc (Uk-English) is 1sc (US-English). Happy crocheting!

16.02.2024 - 07:56

country flag Liz wrote:

Bonjour, j ai bien suivi les explications, mais au lieu d avoir un bord droit, cela "rebique" je le retrouve avec le chapeau de Robin des Bois 😭🤣, je tente de faire des rangs d augmentations sans alterner avec les rangés sans, on verra. Qu en pensez vous? Merci de vos conseils

26.08.2023 - 21:35

DROPS Design answered:

Bonjour Liz, les bords de notre chapeau remontent, comme on peut le voir sur la photo, mais vous pouvez ajuster les tours d'augmentations si vous les voulez plus droit. Bon crochet!

28.08.2023 - 14:03

country flag Chris52 wrote:

Bonjour, Je suis à ma deuxième tentative, la première avec la taille la plus grande car j'ai un tour de tête de 58, résultat beaucoup trop grand , deuxième essai avec la plus petite taille c'est toujours trop grand...j'avais pourtant crocheté l'échantillon qui correspondait bien. je vais faire un troisième essai en enlevant encore des mailles...

05.08.2023 - 14:42

DROPS Design answered:

Bonjour Chris52, avez-vous bien la bonne tension? Vous devez avoir ici 16 mailles serrées = 10 cm de large, autrement dit, dans la 2ème taille, vous avez 90 mailles quand vos augmentations sont terminées, soit 56.25 cm exactement, un peu plus serré que les 58 cm de tour de tête pour que le chapeau tienne bien. Adaptez la taille de votre crochet si besoin pour que votre échantillon soit juste et ainsi obtenir les bonnes mesures finales. Bon crochet!

07.08.2023 - 11:26

country flag Mervi wrote:

Ohje lenkeistä on aivan käsittämätön minulle. Olen lukenut sen kymmeniä kertoja enkä vain ymmärrä. Kiinnitin lenkit omalla tavallani.

13.07.2022 - 19:32

country flag Mascha wrote:

90 Maschen sind etwa 55 cm - ist das nicht zu eng für Größe 56/58?

11.05.2022 - 00:13

DROPS Design answered:

Liebe Mascha, damit der Hut schön auf dem Kopf sitzt, muss er etwas küzer als der Kopfumgang sein. Viel Spaß beim häkeln!

11.05.2022 - 08:39

country flag Mascha wrote:

Der Hut gefällt mir! :-) Morgen fange ich mit Häkeln an. :-) Sehe ich es richtig, dass die Enden der Kordel nachher lose herunterhängen?

08.05.2022 - 22:14

DROPS Design answered:

Liebe Mascha, ja genau, so ist es auch richtig. Viel Spaß beim häkeln!

09.05.2022 - 08:38

country flag Sonia Mursia wrote:

Buona sera ho difficolta' ad aumentare il bordo del cappello dal 6 giro ,potreste dirmi come fare quando scrivete GIRI 5-12: Lavorare a maglie basse e proseguire aumentando ogni 2 giri, lavorando ogni volta 1 maglia in più tra gli aumenti.

18.11.2021 - 17:59

DROPS Design answered:

Buongiorno Sonia, in quei giri deve lavorare una maglia in più prima prima di lavorare gli aumenti, rispetto ai giri precedenti, perciò al 5° giro deve lavorare 1 maglia bassa nella prime 12 maglie e poi lavorare gli aumenti. Buon lavoro!

20.11.2021 - 11:50

country flag Maria wrote:

Quando deve misurare il cappello dall'inizio per fare gli avmenti del bordo e come aumentare?

30.09.2021 - 19:44

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, gli aumenti iniziano sul 2° giro: a quale punto del lavoro sta facendo riferimento? Buon lavoro!

07.10.2021 - 00:18

country flag Lotta wrote:

Förstår inte hur man skall sätta dit snodd och öglorna

10.04.2021 - 09:52

DROPS Design answered:

Hej Lotta, du kanske kan titta på en video med öglor: ögla

12.04.2021 - 14:39

country flag Laura wrote:

Mijn vorige reactie was eigenlijk een vraag. Inmiddels ben ik bezig met mijn 2e xl versie op de manier die ik had beschreven. Ze worden geweldig! Ik meerder tm 152 steken, dus 4 extra touren. Blij dat het een simpele aanpassing was, maar zou het kunnen om bij andere modellen vaker rekening te houden met xl maten? Ik ben vast niet de enige met een groot hoofd. 😉 Vr gr Laura

25.09.2020 - 10:06

DROPS Design answered:

Dag Laura,

Bedankt voor je feedback, we hebben deze opmerking naar mijn weten niet eerder gehad, maar goed dat je het doorgeeft, zodat we er mogelijk iets mee kunnen doen.

19.11.2020 - 00:17