DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1056.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Beach Friend

Prjónaður hattur með löngum lykkjum úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað fram og til baka í mosaikmynstri frá barði og upp.

DROPS 209-9
DROPS Design: Mynstur w-797
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L/XL
Höfuðmál ca: 52/54 - 56/58 cm.

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 17, natur
50 g litur 61, lime

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 41 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1056.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 35) = 3,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá barði og upp. Síðan er stykkið saumað saman mitt að aftan.

HATTUR:
Fitjið upp 132-136 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum lime. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem fækkað er um 35-35 lykkjur jafnt yfir = 97-101 lykkjur.
Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir 1 lykkju og prjónið A.2 út umferðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið svona eftir mynsturteikningu þar til stykkið mælist alls 17 cm, stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð með litnum natur frá réttu. Héðan er prjónað garðaprjón með litnum natur og í fyrstu umferð er fækkað um 7-11 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚRTAKA að ofan = 90-90 lykkjur.
Prjónið 1 umferð frá röngu og setjið síðan 10 prjónamerki í stykkið með 9 lykkjur á milli prjónamerkja – 1. prjónamerkið er sett eftir 8 lykkjur þar til að 1 lykkja verði eftir síðasta prjónamerki. Fækkið nú um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki frá réttu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum = 50-50 lykkjur.
Fækkið lykkjum síðan í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 10-10 lykkjur.
Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 5-5 lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar og herðið að. Saumið hattinn saman mitt að aftan, saumið í ystu lykkjubogana í ysta garðaprjón þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Hatturinn mælist ca 23 cm á hæðina.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu og slétt lykkja frá röngu með lime
symbols = slétt lykkja frá réttu og slétt lykkja frá röngu með natur
symbols = lyftið lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn að þér (frá réttu á stykki)

symbols = lyftið lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn að þér (frá röngu á stykki)
symbols = lyftið lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn að þér (frá réttu á stykki)
symbols = lyftið lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn að þér (frá röngu á stykki)
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag ANTOINETTE VAN KESSEL wrote:

Snap telpatroon 209-9 niet

04.01.2024 - 11:03

DROPS Design answered:

Dag Antoinette,

Misschien is het mogelijk om aan te geven waar je precies tegenaan loopt, zodat we je beter kunnen helpen. Via deze link vind je een uit leg over hoe je telpatronen voor breien leest. Wellicht heb je hier wat aan.

07.01.2024 - 13:57

country flag ANTOINETTE VAN KESSEL wrote:

Snap het telpatroon niet van drops 209-9

04.01.2024 - 11:01

country flag Christine wrote:

J’ai tout défait et refait les 8 dernières mailles il n’y a pas de marqueurs donc encore 54 m Comment faut il diminuer ? Merci

28.04.2023 - 20:20

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, avant de mettre les marqueurs, vous devez avoir 90 m, tricotez ainsi: *tricotez jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur, tricotez 2 m ensemble à l'endroit*, répétez de *à* jusqu'à la fin du rang, tournez, tricotez 3 rangs sans diminuer. Répétez ces 4 rangs encore 3 fois - il reste 50 m. Diminuez maintenant tous les rangs sur l'endroit seulement (tricotez 1 rang sans diminuer entre les rangs avec diminutions) jusqu'à ce qu'il reste 10 mailles. Bon tricot!

02.05.2023 - 07:59

country flag Christine wrote:

Bonjour, j'avais 90 m puis j'ai fait ce que vous m'avez dit mais il me reste 54 mailles et pas 50 ?? J'ai diminuer tous les 4 rands en tricotant 2m ensembles avant le marqueur Merci de m'aider

28.04.2023 - 12:11

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, vous devez diminuer 10 mailles à chaque rang de diminutions (à chaque marqueur), 4 fois au total = vous diminuez 40 mailles au total. Vous aviez 90 mailles - 40 diminutions = il doit vous rester 50 mailles. Vérifiez que vous avez bien diminué 10 mailles à chaque fois. Bon tricot!

28.04.2023 - 13:19

country flag Christine wrote:

Quand vous dites tricoter le 1er rang sur l'envers que voulez vous dire car c'est du point mousse ? tout à l'endroit ? Merci

25.04.2023 - 13:04

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, par "sur l'envers", on entend l'envers de l'ouvrage, qui va se tricoter certes à l'endroit car on tricote au point mousse, mais ce rang se trouve sur l'envers (la partie des rangs qui se trouve à l'intérieur du chapeau quand il est terminé et assemblé). Bon tricot!

25.04.2023 - 14:48

country flag Christine wrote:

J'ai besoin d'explication s'il vous plait à partir de Tricoter 1 rang sur l'envers et. jusqu'à au total toutes les 2 côtes mousse (= tous les 4 rangs) = 50-50 mailles. merci cdlt

25.04.2023 - 01:07

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, tricotez ce rang sur l'envers en mettant 10 marqueurs (mettez le 1er marqueur après 8 mailles, puis espacez les suivants de 9 mailles); au rang suivant sur l'endroit, diminuez 1 maille avant chaque marqueur, tricotez 3 rangs endroit sans diminuer. Répétez 4 fois ces 4 rangs; vous diminuez 10 mailles à chaque rang de diminution. Vous aviez 90 mailles, vous avez diminué 4 fois 10 mailles (= 40 diminutions) = il reste 50 mailles. Bon tricot!

25.04.2023 - 08:28

country flag Courtney Marek wrote:

Hello I have been trying to knit the chart and I can not get the same results as the image. Do you knit on the round? If you knit this pattern on the round it will create stockinette st. I could really use help I am on the verge of giving up.

17.03.2023 - 12:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Marek, this pattern is worked in garter stitch with some slipped stitches : ex. row 1 (with 1st colour): K1 (A.1), *K2, slip 1 as if to P with yarn in front, K1*, repeat from *-* (A.2) row 2: *K1, slip 1 as if to P with yarn in front, K2*, repeat from *-* (A.2) and finish with K1 (A.1). Then row 3 with 2nd colour: K1, *slip 1 as if to P with y in front, K3*, repeat from *-*.. Row 4: *K3, slip 1 as if to P with yarn in front*, repeat from *-* and finish with K1. you might need some repeats in height to see the pattern. Try first on your swatch so that y ou get use for hat. Happy knitting!

17.03.2023 - 14:57

country flag Marianne Sandberg wrote:

Hej, jag förstår inte hur jag ska följa mönstret, var finns det? Ska jag bara följa instruktionsvideon? Eller ska jag upprepa A1 och A2 hela tiden när jag stickar mönstret? Ursäkta så dumma frågor...

06.03.2023 - 09:16

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Du ska sticka som det står i beskrivningen dvs 5 cm rätstickning och sedan minska det antal maskor som står i beskrivningen för din storlek. Efter det stickar du (från rätsidan) första maskan som A.1 och efter det repeterar du A.2 varvet ut. Du stickar på detta sätt tills arbetet mäter 17 cm. Kom ihåg att diagrammen stickas från vänster till höger från avigsidan. Fortsätt sedan som det står i beskrivningen. Mvh DROPS design

07.03.2023 - 13:55

country flag Dohány Edit wrote:

Nem értem a mintaleírásban azt, hogy "sima a színe oldalon, sima a fonákoldalon" valamint a 4 átemelt szemnél is azonos szöveghez különböző jelet használ. Elkezdtem megkötni, de elakadtam. A fényképen lévő minta nem úgy néz ki, mint a leírás szerinti kötés...

16.05.2021 - 19:16

DROPS Design answered:

Kedves Edit, a S a SUO-n és a FO-n azt jelenti, hogy a szemet listakötéssel kötjük, vagyis mindig S szemként, az egyik jelnél a lime színnel a másiknál a törtfehér színnel. A 4 átemelt szemnél az eltérés a fonal színében van és/vagy abban, hogy a fonalat a darab előtt vagy mögött vezetjük. Sikeres kézimunkázást!

16.05.2021 - 21:08

country flag Anki Asking wrote:

Hej! Jag har stickat 1:a varvet av diagrammet, A1 över 1 maska och sen A2 varvet ut. När jag nu ska starta på varv 2 ska jag då läsa från vänster till höger, starta på A2 och sen A1 och fortsätta så varvet ut? Eller A2 hela varvet med avslut A1 på sista maskan?

06.04.2021 - 19:00

DROPS Design answered:

Hej Anki. På avigsidan läser du precis som du skriver diagrammen från vänster till höger. Du stickar A2 hela varvet och avslutar med 1 maska A1. Mvh DROPS Design

07.04.2021 - 10:50