DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lovely Megan

Prjónað sjal úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni og töpuðum lykkjum.

DROPS 211-19
DROPS Design: Mynstur sk-090
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 40 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 160 cm.

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150 g litur 19, múrsteinn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 39 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir garðaprjón og tapaðar lykkjur.
Vegna lykkjufjölda getur verið gott að nota 2 langa hringprjóna til að skipta lykkjunum niður á.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

AFFELLING (teygjanlegur affellingarkantur):
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið inn vinstri prjón í 2 lykkjur á hægra prjóni frá vinstri til hægri og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni.
Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið enda.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar þegar aukið er út, er gott að nota 2 hringprjóna í sama grófleika.

SJAL:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 4,5 með Sky.
Prjónið A.1 – 1. umferð er prjónuð frá röngu. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 25 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.2 til A.4 frá réttu þannig:
Prjónið A.2 yfir 3 lykkjur, prjónið A.3 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (þ.e.a.s. prjónið 2 mynstureiningar með 8 lykkjum) og endið með A.4 yfir síðustu 6 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 57 lykkjur í umferð.
Haldið áfram að prjóna eftir mynsturteikningu A.2 til A.4, en í hvert skipti sem mynsturteikning hefur verið prjónuð á hæðina, er pláss fyrir 4 mynstureiningar fleiri af A.3 á milli A.2 og A.4.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 40 cm fyrir miðju (= ca 313 lykkjur í umferð), eða prjónið að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING!

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan 1 lykkju slétt – í næstu umferð er lykkjan prjónuð slétt og uppslátturinn er látinn falla niður (= töpuð lykkja)
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn, prjónið síðan 1 lykkju slétt – í næstu umferð er lykkjan prjónuð slétt og báðir uppslættirnir eru látnir falla niður (= tapaða lykkjur)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn – í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður slétt og hinn er látinn falla niður (= aðeins stærra gat)
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Anneke wrote:

Dankjewel voor de hulp. Mijn volgende vraag is: een omslag tussen de steken begrijp ik. Dat is 1 rechte een omslag en terug een rechte. Maar hoe doe je de andere middelste 4 dan? Ook 1 recht breien en dan één omslag of twee omslagen en terug recht breien...? Dat is hetzelfde als de zijkanten? Klopt dit? Alvast bedankt. Anneke

01.01.2024 - 13:52

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

De middelste 4 doe je als volgt: 1 omslag, 1 recht, 2 omslagen, 1 recht, 2 omslagen, 1 recht, 1 omslag, 1 recht. In totaal heb je dan 4 steken recht gebreid met 1 of 2 omslagen erachter. Op de volgende naald laat je alle omslagen vallen. (Dus alle omslagen van het ruitjessymbool).

07.01.2024 - 13:45

country flag Anneke wrote:

Beste, Hoe moet ik dat diagram lezen aub? Je begint met A1 en dan? Alvast bedankt. Grtjs Anneke

29.12.2023 - 23:27

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Als je A.1 1 keer in de hoogte hebt gebreid, dan brei je A.2-A.3-A.4 over de steken van A.1. Dus de eerste 3 steken van A.2, dan A.3 en dan A.4. Wanneer je deze 3 telpatronen 1 keer in de hoogte hebt herhaald heb je meer steken op de naald. Je herhaalt steeds A.2-A.3-A.4 en er komt telkens een herhaling van A.3 bij wanneer je de telpatronen 1 maal in de hoogte hebt gebreid.

30.12.2023 - 17:44

country flag Linda wrote:

This is just a follow up to my recent question regarding the key to the diagram. My confusion lies in the fact that while the key shows the open oval having the line through it, in the diagrams none of the open ovals have a line going through them EXCEPT on row 12 of diagram A1. That makes it look like they are two different stitches. I have been acting as if they are the same as I knit it but just wanted to make sure. I'm using my own handspun yarn for this & I love how it is turning out.

21.08.2023 - 01:36

DROPS Design answered:

Hi Linda, All the open ovals are for the lace pattern (leaving holes). The line through the ovals on row 12 is just the divide between the squares . Happy knitting!

21.08.2023 - 06:41

country flag Linda wrote:

In the Diagram Explanation for this pattern, there is no Key Entry for the open oval and I can't find a general Key on your website for all stitches in your many pattern diagrams. Is there one? Failing that, is there an updated for this pattern? It is so lovely, I really want to make it.

18.08.2023 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Linda, all symbols are explained in the key; the open oval is the second to last symbol: between 2 stitches make 1 yarn over – on the next row knit the yarn over (leaves a hole), which is shown in the key as a white oval (the small line in the middle shows that the yarn over is worked between 2 stitches; it¡s the line that separates the 2 squares). We don't have a general key for all stitches, since these may vary in some patterns, especially in older patterns or when a special type of stitch is used, but all patterns will always have a key with all of the symbols of the chart explained in it. Happy knitting!

20.08.2023 - 17:59

country flag Diane wrote:

Bonjour, à la fin de A.2, j’ai les 19 mailles, mais on dit A.3 jusqu’à ce qu’il reste 6 mailles ( c’est-à-dire 2 motifs de 8 mailles). Mais si je fais 2 motifs de 8 mailles, il ne reste que 3 mailles. (19 - 16(2X8) = 3) Est-ce que je ne fais qu’une partie du 2e motif de A.3? Merci pour votre aide.

15.11.2021 - 04:04

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, tricotez ainsi: A.2 (= 3 m) au-dessus des 3 premières mailles du A.2 précédent puis 2 x A.3 (= 8m) au-dessus des 16 dernières mailles du A.2 précédent (= 3 + 16 = 19 m), tricotez les 2 x A.3 suivants comme avant, puis tricotez 2 x A.3 au-dessus des 16 premières mailles du A.4 précédent et terminez par A.4 au-dessus des 6 dernières mailles (16 + 6 = 22 m); ainsi vous tricotez 2 fois A.3 en plus de chaque côté des 2 A.3 du début. Bon tricot!

15.11.2021 - 08:40

country flag Tatiana K wrote:

A mí me ha salido este chal de 40 cm del largo del centro y de 180cm de ancho usando un ovillo y medio. Aprox. 70 gr

11.11.2021 - 13:29

country flag Maryse wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment vous arrivez à 313 mailles lorsque l'ouvrage mesure 40 Cm. Je n'obtiens que 159 mailles alors que j'avais bien 57 mailles à la fin de A2 à A4 1fois ?? Ai-je oublié des augmentations quelques part?... merci

22.09.2021 - 14:11

DROPS Design answered:

Bonjour Maryse, à chaque fois que vous tricotez les diagrammes A.2, A.3, A.4 en hauteur, vous augmentez 32 mailles au total (25+32=57 m). Lorsque vous avez répété 9 fois ces diagrammes, vous avez augmenté 9 x 32 m = 288m + les 25 m = 313 m; vous avez tricoté ainsi: 13 rangs de A.1 + 9x16 rangs de A.2-4 = 157 rangs et environ 40 cm si votre tension en hauteur est correcte. Bon tricot!

23.09.2021 - 08:34

country flag Claudine Van Paemelen wrote:

Bonjour, comment faire les augmentations s.v.p. Merci. Bonne journée.

18.02.2021 - 11:21

DROPS Design answered:

Bonjour Claudine, il faut augmenter en faisant des jetes qui sont ensuite tricotes conformement aux diagrammes. Bon tricot!

18.02.2021 - 17:58

country flag DUDZIAK Martine wrote:

Pourquoi je ne peux pas imprimer les diagrammes ?

13.02.2021 - 12:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dudziak, vérifiez bien les paramètres de votre imprimante, nous venons d'imprimer ce modèle pour tester et les diagrammes ont put être imprimés. Bon tricot!

15.02.2021 - 07:36

country flag Bodil Berg wrote:

Hur stickar jag där det är en ruta? Trodde det skulle vara räta men det verkar inte så.

10.02.2021 - 13:32

DROPS Design answered:

Hej Bodil. Den tomma rutan i diagrammet (symbol nr 1) stickas rät på rätsidan och avig på avigsidan. Mvh DROPS Design

11.02.2021 - 08:57