Herringbone Hill |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og klukkuprjónsmynstri. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa með köðlum og klukkuprjónsmynstri úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk.
DROPS 215-4 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. A.1 á við um peysu, A.2 til A.4 á við um húfu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 73 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 2,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínu lykkju, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 8 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku + lykkjur sem fækka á í A.3). Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-81-84-87-90-93 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm (tvöfalt uppábrot). Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjóni 1 umferð slétt, þar sem aukið er út um 13-14-15-16-17-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 91-95-99-103-107-111 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: 14-15-16-17-18-19 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur yfir næstu 12 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-3-4-5-6-7 sléttar lykkjur, A.1 yfir næstu 31 lykkjur, 2-3-4-5-6-7 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= laskalínu lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn,14-15-16-17-18-19 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalínu lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-20-22-23-27-29 sinnum = 235-255-275-287-323-343 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri án útaukningar fyrir laskalínu þar til berustykkið mælist 21-24-26-28-31-35 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 33-36-39-41-46-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-58-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-79-85-89-99-105 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-58-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 33-36-39-41-46-49 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 151-163-175-187-207-223 lykkjur. Haldið áfram hringinn með A.1 og sléttprjón eins og áður, þar til stykkið mælist 19-18-18-18-17-15 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé á 5. umferð í A.1. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 60-66-72-78-88-96 lykkjur og aukið jafnframt út 14-14-14-14-16-20 lykkjur jafnt yfir, A.1b yfir næstu 31 lykkjur (4 lykkjur fleiri = 35 lykkjur), sléttprjón yfir síðustu 60-66-72-78-88-96 lykkjur og aukið jafnframt út um 14-14-14-14-16-20 lykkjur jafnt yfir. Nú eru 183-195-207-219-243-267 lykkjur í umferð. Prjónið nú stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 72-78-84-90-102-114 lykkjur, endið með 1 lykkju slétt, haldið áfram með A.1b (= 35 lykkjur), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 72-78-84-90-102-114 lykkjur, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið. ATH! Stroffið á að ganga jafnt upp með (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) alla umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 10 cm fækkið fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-52-56-58-66-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-62-66-74-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2½-2-1½-1 cm millibili alls 9-10-11-12-15-17 sinnum = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 34-32-30-29-26-23 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-7-8-9-7-8 lykkjur = 45-45-48-51-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 40-38-36-35-32-29 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of stíft og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-102 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 ½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 28-31 lykkjur og fækkið jafnframt um 3 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu umferð í A.2 yfir næstu 35 lykkjur (4 lykkjur færri = 31 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 33-36 lykkjur og fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir = 84-90 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 25-28 lykkjur, A.3 yfir næstu 31 lykkjur (prjónið yfir lykkjur í A.2), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 28-31 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar húfan mælist ca 18-20 cm – endið eftir heila mynstureiningu A.3 á hæðina, setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja og án þess að prjóna): Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 5-6 lykkjur, hoppið yfir næstu 12-13 lykkjur, setjið etti prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 17-49 lykkjur (= 8-9 lykkjur slétt, 31 lykkjur í A.3, 8-9 lykkjur slétt), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir 12-13 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, nú eru 8-9 lykkjur eftir í umferð. Prjónið nú mynstur A.4 yfir A.3 og sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir í A.4, byrjar úrtaka hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum. Þegar öll úrtakan hefur verið gerð til loka og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 32-38 lykkjur eftir í umferð. Prjónið nú þær lykkjur sem eftir eru saman 2 og 2 = 16-19 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 26-28 cm ofan frá og niður. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Maibrit Runge wrote:
Strikkes denne trøje med 2 forskellige garner gennem hele trøjen og hvis ja, hvorfor skal der da ikke anvendes lige meget garn af de 2 garntyper'?
19.08.2020 - 09:02DROPS Design answered:
Hej Maibrit, ja det stemmer, trøjen strikkes med DROPS Sky og Kid-Silk, og der er flere meter i Kid-Silk :)
19.08.2020 - 11:02Marie Moureau wrote:
J'aime
11.07.2020 - 09:14Susana wrote:
Delicado!
11.06.2020 - 14:19Arja Simon-Bellamy wrote:
Ihana. Wonderful!!
06.06.2020 - 08:17