DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Autumn Pathways

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-11
DROPS Design: Mynstur ai-278
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 05, brúnn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 4 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 45 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 5,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð).
1 hnappagat: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan mælist 5 cm frá neðst á fram- og bakstykki (= í skiptingunni á milli stroffs og einingar með sléttprjóni á fram- og bakstykki), fellið síðan af fyrir næstu 3 hnappagötum með ca 8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig þar til stroffið neðst hefur verið prjónað til loka. Síðan eru öll stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er fram og til baka frá miðju að framan upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Síðan eru ermarnar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Að lokum eru fitjaðar upp lykkjur fyrir kant að framan og kant í hálsmáli sem er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 91-101-109-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 5 cm. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 47-51-55-59-65-71 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 5 cm. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki þar til stykkið mælist 5 cm – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu. Ekki klippa þráðinn frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjóni nú stykkin saman. Prjónið yfir hægra framstykki frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 45-49-53-57-63-69 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-9-10-10-11-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu lykkjuna á hægra framstykki slétt saman með fyrstu lykkju á bakstykki (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 89-99-107-115-127-139 lykkjur á bakstykki og fækkið jafnframt um 17-21-23-23-25-27 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu lykkjuna á bakstykki slétt saman með fyrstu lykkju á vinstra framstykki (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 45-49-53-57-63-69 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-9-10-10-11-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu lykkjuna í sléttprjóni = 150-162-174-190-210-230 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 34-37-39-43-47-51 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= handvegur), prjónið næstu 66-72-76-84-92-100 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= handvegur), prjónið síðustu 34-37-39-43-47-51 lykkjur (= vinstra framstykki). Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Air. Prjónið nú hringinn þannig: Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið á að fylgja með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11-10-10-10-7-7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 10-10-12-13-15-15 sinnum = 58-60-66-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-41-41-39-39-38 cm, fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkið) = 50-52-56-60-62-62 lykkjur. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 234-250-266-290-310-326 lykkjur.
Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 30-32-34-38-41-44 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 54-58-62-66-70-72 lykkjur (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 60-64-68-76-82-88 lykkjur (= bakstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 54-58-62-66-70-72 lykkjur (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-32-34-38-41-44 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón (= vinstra framstykki).
Lykkjur með prjónamerki í merkja skiptingu á milli fram- og bakstykki og ermar.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Fækkið síðan lykkjum fyrir laskalínu og V-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

LASKALÍNA:
Þegar prjónaðar hafa verið 4-4-2-2-2-2 umferðir á berustykki, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 19-21-23-25-27-29 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
Þegar prjónaðar hafa verið 2-4-4-4-4-4 umferðir á berustykki, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 kantlykkju garðaprjón.
Fækkið lykkjum aftur svona eftir 7 umferð og síðan í 4. hverri umferð 8-9-9-10-11-12 sinnum = alls 10-11-11-12-13-14 úrtökur fyrir V-hálsmáli í hvorri hlið.

Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir laskalínu og v-hálsmáli, eru 62-60-60-66-68-66 lykkjur eftir í umferð. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 56-54-54-60-62-60 lykkjur – fækkið jafnframt um 12-8-8-12-13-9 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón = 48-50-50-52-53-55 lykkjur. Fellið af.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki með hringprjón 4 og prjónið upp 123 til 147 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkja) innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram fram- og bakstykki og alveg upp að miðju aftan á bakstykki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem fyrsta úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði með því að prjóna þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri) – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið nú stroff frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 1-1½ cm. Fellið nú af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist alls 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp 123 til 147 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkja) frá réttu innan við 1 kantlykkju garðaprjón, með byrjun frá miðju aftan á bakstykki og niður meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem fyrsta úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði með því að prjóna þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri) – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið nú stroff frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kant að framan að miðju aftan í hnakka innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Sylvaine wrote:

Bonjour, J'ai parfaitement compris ce qu'il y à faire. Relisez ma question, vous n'y répondez pas. Vos comptes sont faux.

20.02.2024 - 02:22

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvaine, je suis désolée de m'être mal exprimée, indiquez-nous votre taille, je pourrais ainsi vous aider plus en détail, merci pour votre compréhension.

20.02.2024 - 08:16

country flag Sylvaine wrote:

Bonjour, Section empiècement, vous indiquez pour les manches 54-58-62-66-70-72. Section manches on fini avec 50-52-56-60-62-62 D'après la réponse que vous avez faite à S. Gaspard, ne devrions-nous pas avoir, plutôt, 54-56-60-64-64-66 ?

17.02.2024 - 16:22

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvaine, les dernières mailles du devant vont être attribuées à la manche, autrement dit, vous devez tricoter le 1er rang de l'empiècement en plaçant bien vos marqueurs comme indiqué (le nombre de mailles des devants/du dos attribué à la manche varie en fonction de la taille, suivez bien votre taille, vous aurez bien le bon nombre de mailles à la fin de ce rang, mais le début des manches se trouve avant la fin du devant/après le début du dos + avant la fin du dos/après le début du devant. Bon tricot!

19.02.2024 - 09:04

country flag Willy Lemmen wrote:

Hallo, Mijn vest is af en het is heel mooi geworden, er is wel iets wat ik heel gek vind en waar jullie misschien een oplossing voor hebben . Als ik het aan heb dan gaat het heel gek tuiten aan de voor of achterkant, als ik het voor goed vind zitten tuit het achter en als ik het achter goed trek dan tuit het voor. Hoe kan ik dit oplossen? Bij voorbaat dank. Groet Willy

08.02.2024 - 14:17

DROPS Design answered:

Dag Willy,

Wat je met tuiten precies bedoeld weet ik niet, maar als de randen omkrullen dan zou je deze heel voorzichtig op kunnen persen. hiervoor leg je een natte theedoek over het werk en dep je heel voorzichtig met een warme strijkbout. Let erop dat je dit heel voorzichtig doet, anders kun je de structuur van het breiwerk vernielen.

28.02.2024 - 20:47

country flag Willy Lemmen wrote:

Hallo, ik ben het vest in maat L aan het breien. Klopt het dat de boord een grotere afmeting heeft dan aangegeven staat in de tekening? Mijn steek verhouding klopt precies. Mijn boord van het achterland meet al 63 cm. Ik zie dat je wel meteen na het boord moet minderen, maar ziet dat er dan niet erg raar uit?

15.12.2023 - 19:02

DROPS Design answered:

Dag Willy,

Er wordt inderdaad geminderd vlak voordat je met tricotsteek op de panden begint. Ik denk dat dit zo is gedaan om te voorkomen dat de boordsteek het werk samentrekt, bovendien is het geen standaard boordsteek maar met gedraaid recht. Waarschijnlijk klopt het dus wel.

17.12.2023 - 17:40

country flag Maria wrote:

Ich komme mit den Raglanabnahmen nicht klar. Nach meinem Verständnis muss ich am Vorder- und Rückenteil abnehmen. Die Maschenzahl der Ärmel bleibt. Somit liegen die Abnahmen, wie beschrieben, einmal vor der Markierung aber auch einmal hinter der Markierung. Wie hier abgenomen werden soll erschließt sich mir nicht. Oder verstehe ich da was nicht?? Vielen Dank für den Support

02.10.2023 - 18:20

DROPS Design answered:

Liebe Maria, mit den Raglanabnahmen wird man 1 Masche beidseitig von der Masche mit dem Markierer abnehmen - in diesem Video zeigen wir, wie man so eine Abnahme strickt. Viel Spaß beim stricken!

03.10.2023 - 07:50

country flag Christine wrote:

Désolée mais votre réponse est confuse il me reste 62m j'ai fini le raglan dos je rabat les 62m ou 55 m comme vous expliquez merci de bien vouloir me donner une réponse claire je vous avoue que je ne comprends pas votre réponse

29.06.2023 - 14:00

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, donc vous tricotez bien la taille S en suivant les explications (et pas chaque partie séparément), et il vous reste bien 62 mailles quand toutes les diminutions de l'encolure et du raglan sont faites. Tricotez le rang suivant sur l'endroit comme indiqué en diminuant comme indiqué de sorte qu'il vous reste 48 mailles et vous rabattez ces 48 dernières mailles au rang suivant (sur l'envers). Si je me suis trompée dans la taille, n'hésitez pas à ajouter d'autres informations complémentaires, merci pour votre compréhension. Bon tricot!

29.06.2023 - 15:42

country flag Christine wrote:

Bonjour Auriez-vous l'amabilité de me répondre, voilà ce que vous écrivez ! je rabat ou non "On ne rabat pas de mailles spécialement pour l'encolure dos, quand les diminutions des raglans sont terminées, il reste 62-66 m (cf taille), on va diminuer à 48-55 mailles et on rabat ces mailles."

29.06.2023 - 12:27

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, vous retrouverez la réponse ci-dessous, j'avoue ne plus trop savoir où vous en êtes exactement de votre ouvrage, raison pour laquelle j'ai sans doute mal compris votre question? N'hésitez pas à nous en dire davantage si la réponse précédente n'a pas pu vous aider. Merci pour votre compréhension.

29.06.2023 - 13:08

country flag Christine wrote:

Je fais dos et devant séparément vous dite il reste 62m et vous rabattez 55m je rabat 62 ou non je ne comprends pas désolée

28.06.2023 - 18:19

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, à quel niveau précis en êtes vous du devant? Le dos et les devants se tricotent séparément jusqu'à la fin des fentes puis on les tricote en une seule partie jusqu'aux emmanchures, puis on tricote les manches jusqu'aux emmanchures et on tricote toutes les pièces ensemble pour diminuer pour le raglan, quand toutes les diminutions du raglan et de l'encolure V sont faites, il vous reste 62 à 66 mailles en fonction de la taille, diminuez comme indiqué, pour qu'il vous reste 48 à 55 mailles et rabattez toutes ces mailles. Si vous avez choisi de tricoter chaque partie séparément, il vous faudra recalculer le nombre pour chaque pièce. Bon tricot!

29.06.2023 - 12:40

country flag Christine wrote:

Pour le col derrière vous ne dites pas combien de diminutions ?? merci

28.06.2023 - 12:50

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, pensez-vous à l'encolure dos? On ne rabat pas de mailles spécialement pour l'encolure dos, quand les diminutions des raglans sont terminées, il reste 62-66 m (cf taille), on va diminuer à 48-55 mailles et on rabat ces mailles. Vous tricoterez ensuite les bordures des devants séparément en relevant les mailles le long du devant droit, de l'encolure V, en haut de la manche jusqu'à la moitié de l'encolure dos, puis pour la bordure du devant gauche, à partir du milieu dos en descendant jusqu'en bas du devant gauche. Assemblez ensuite les deux bordures ensemble au milieu dos. Bon tricot!

28.06.2023 - 16:26

country flag Sylviane Gaspard wrote:

Bonjour, A la fin de la manche on a 50-52-56... mailles. Or lorsqu'on les reprend dans l'empiécement vous indiquez 54-56-60... m. pour les mailles à reprendre. Pourquoi cette différence ?

20.04.2023 - 22:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gaspard, on attribue 2 mailles de chaque devant et 2 mailles du dos à chacune des manches, autrement dit, en taille S, vous aviez 34 m pour le devant mais vous tricotez ainsi: 1 m lis, 30 m end,1 m avec 1 marqueur (= 32 m pour le devant), 54 m pour la manche (= 2 m du devant + 50 m de la manche + 2 m du dos), et de même pour la 2ème manche. Bon tricot!

21.04.2023 - 08:17