Butterfly in Fall |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og axlarsæti. Stærð 3 - 14 ára.
DROPS Children 40-21 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 78 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. Og 5. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá RÉTTU): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá RÖNGU): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½-2 cm, fellið síðan af fyrir 4-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-7-7½-7-7½-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-92-92-96-100 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-21-21-25-21-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 105-109-113-117-117-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og 5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar slétt = kantur að framan). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki á eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið við hálsinn til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að framan, teljið 22-23-23-23-23-23 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 14-14-16-18-18-20 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 33-35-35-35-35-35 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 14-14-16-18-18-20 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 22-23-23-23-23-23 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= framstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar – í fyrstu umferð frá réttu byrjar mynstrið jafnframt því sem útaukning byrjar fyrir axlarsæti! MYNSTUR: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 4-5-5-5-5-5 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki, prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið A.3 (= 8 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 (= 8 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – A.1, A.2 og A.3 er endurtekið á hæðina. AXLARSÆTI: JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3. Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og það er aukið út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar liggi fallega. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 12-14-16-20-22-26 sinnum = 153-165-177-197-205-225 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram í sléttprjóni, gatamynstri og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-10-8-10-8-6 sinnum = 193-205-209-237-237-249 lykkjur. Stykkið mælist ca 11-12-12-14-14-13 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Nú eru 34-34-32-38-34-32 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4-5-2-4-4 sinnum = 225-237-249-253-269-281 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 14-15-15-16-17-16 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-18 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 36-38-40-41-44-46 lykkjurnar (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-71-77-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 36-38-40-41-44-46 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 145-153-161-169-181-189 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og gatamynstri eins og áður og með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 17-20-23-26-27-28 cm frá skiptingu. Nú eru ca 3 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út til að stroffið sem prjóna á, dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 31-31-35-35-39-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 176-184-196-204-220-228 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 38-42-46-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 46-48-50-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. í miðju af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3-3½-4-4 cm millibili alls 4 sinnum á hæðina í öllum stærðum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-30-34-38-43 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 24-28-33-37-41-46 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (29)
Cleide wrote:
Nao estou entendendo a parte que fica nas costas...meus desenhos não ficam de forma padronizada...vcs teriam foto da parte das costas da blusa? Obrigada.
09.02.2023 - 22:09DROPS Design answered:
Bom dia, Não deve esquecer de fazer também os aumentos das mangas martelo enquanto tece o ponto rendado. O ponto rendado repete 3 vezes em largura nas costas (A1, A.2 e A.3) Bons tricôs!
10.02.2023 - 12:42Cleide Aparecida Bronzati wrote:
O que significa repetir em altura?
30.01.2023 - 23:03DROPS Design answered:
Bom dia, Significa que volta a tricotar as carreiras do ponto até ter a altura necessária. Bons tricôs!
31.01.2023 - 09:08Cleide Aparecida Bronzati wrote:
Boa noite. O que significa repetir em altura? Tem um momento da receita que tem essa orientação. Obrigada.
30.01.2023 - 23:01DROPS Design answered:
Bom dia, Significa que volta a tricotar as carreiras do ponto até ter a altura necessária. Bons tricôs!
31.01.2023 - 09:08Anne wrote:
Ein sehr schönes Modell, aber schade, dass es keine Abbildung der Rückseite gibt. Ich hätte gern gesehen, wie breit der Lochmusterstreifen aus A 1, A2 und A 3 dann auf dem Rückenteil wird . Die Jacke soll ja auch wärmen. Danke für die vielen schönen und guten Anleitungen
31.10.2022 - 18:01Corinne wrote:
Vielen Dank für die tolle Anleitung. Ich habe mich vorher noch nie an Sattelschultern herangewagt. Das Resultat ist top und es war ganz einfach zu stricken.
23.09.2022 - 13:21Marithe wrote:
Jag stickar mönster nr 40-21 en barnkofta. Får inte det att stämma med mönstret på varv 1. 1. Skall det vara mönster mitt bak? 2. Skall det vara mönster uppe på sadelärmen? Det ser inte ut så på bilden, men verkar vara så på mönsterbeskrivningen.
08.09.2022 - 22:56DROPS Design answered:
Hei Marithe. Ja, det er mønster bak (der strikkes det A.1, A.2 og A.3), og nei, ingen mønster på sadelskulderene (kun glattstrikk som det står i oppskriften). mvh DROPS Design
12.09.2022 - 08:10Christine wrote:
Hi, regarding yoke increases, could you please explain further where the 4 markers are moved to? I am thinking markers are already in the outermost stitch after finishing sleeve increases?
13.08.2022 - 10:40DROPS Design answered:
Dear Christine, this video shows you how to move the markers as you work: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1581&lang=en. Happy knitting!
14.08.2022 - 21:02Julie wrote:
I am dividing for the body and sleeves for size 7/8, and am surprised that the sleeve stitches contain the stitches increased for the yoke. I thought these stitches belonged to the front and back sections. Thank you for your patterns. I really enjoy them!
11.08.2022 - 17:35DROPS Design answered:
Dear Julie, that's right, some of the stitches increased on front and back pieces will then belong to the sleeves when dividing piece. Happy knitting!
12.08.2022 - 09:41Barbara Wien wrote:
Nachtrag: ich meine damit, dass, wenn ich mehr Reihen für die angegebenen Reihen für die Sattelschulter benötige, soll ich dann die Zunahmen in jeder 3. oder 4. Reihe machen, damit ich auf die Länge (Gr. 158 9 cm) komme? LG Barbara Wien
28.05.2022 - 15:36DROPS Design answered:
Liebe Frau Wien, je nach dem Unterschied mit der Maschenprobe, können Sie auch auch versuchen, einfach nur die Passe bis zur gewünschten Länge (ohne weitere Zunahmen) zu stricken. Viel Spaß beim stricken!
30.05.2022 - 08:02Barbara Wien wrote:
Liebes Garnstudio-Team, ein großes Kompliment an Euch! ich stricke seit mehr als 60(!) Jahren und habe mich nie an ein Modell mit Sattelschulter gewagt. Jetzt habe ich meine erste Jacke für meine Enkeltochter nach Eurer Anleitung gestrickt, es ging ganz einfach, Vielen Dank dafür.\r\nMeine Frage ist: wie ist es wenn die Wolle dünner ist und man laut meiner Maschenprobe mehr Reihen in der Höhe benötigt? Könnt Ihr mir einen Tipp geben? Danke aus Wien.
28.05.2022 - 15:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Wien, herzlichen Dank für Ihren Kommentar. Am besten versuchen Sie die Maschenprobe auch in der Höhe zu haben, sonnst sollen Sie so anpassen, daß Sie ab und zu extra Reihen dazu stricken, um diesen Unterschied auszugleichen. Diese Reihenanzahl hängt von Ihrer Maschenprobe ab.
30.05.2022 - 08:01