Falling Water |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsætum, puffermum og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-40 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 7 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 3,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3.og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Öll útaukning er gerð frá réttu! Á UNDAN LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu f umferð frá réttu þar sem framstykkin, bakstykkið og axlarsætin eru prjónuð inn á sama prjón. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappgötum með ca 9½-9½-10-10-8½-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður með 2 þráðum. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki, bakstykki og axlarsæti. Axlarsætin eru prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru framstykkin, bakstykkið og axlarsætin sett inn á sama hringprjón, jafnframt því sem lykkjur eru teknar upp meðfram hliðum á axlarsætum. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 114-114-127-127-143-143 lykkjur á hringprjón 3 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 yfir næstu 24-24-27-27-30-30 lykkjur, A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.2, A.1 yfir næstu 36-36-39-39-45-45 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.2, A.1 yfir næstu 24-24-27-27-30-30 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona í 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 7 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 7 lykkjur í kanti að framan hafa nú verið fækkaðar til 5 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-18-21-21-24-24 lykkjur og fækkið jafnframt um 1-0-2-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 38-38-41-41-47-47 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-2-3-1-5-5 lykkjur jafnt yfir (= bakstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-18-21-21-24-24 lykkjur og fækkið jafnframt um 1-0-2-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 7 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir (= 7 lykkjur í kanti að framan hafa nú verið fækkaðar til 5 lykkjur). Nú eru 104-108-116-120-128-128 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. það eru 17-18-19-20-21-21 lykkjur í hvoru framstykki, 34-36-38-40-42-42 lykkjur fyrir bakstykki og 13-13-15-15-17-17 lykkjur fyrir hvort axlarsæti. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu, en prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu og síðustu 5 lykkjur í umferð (= kantur að framan) og prjónið mynstur eins og áður yfir 13-13-15-15-17-17 lykkjur fyrir axlarsæti í hvorri hlið. Prjónið síðan fram og til baka yfir hvort axlarsæti. Látið þær lykkjur sem eftir eru hvíla á prjóni eða setjið þær á þráð. AXLARSÆTI: Stykkið er prjónað fram og til baka með byrjun frá réttu yfir lykkjur fyrir axlarsæti í annarri hlið á hringprjón 3 og með 2 þráðum DROPS Kid-Silk þannig: Fitjið upp 1 lykkju í hlið (= kantlykkja), prjónið, prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur í mynstri A.2 eins og áður, jafnframt þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukin út til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fleiri), fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 21-21-24-24-27-27 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með þetta mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm frá þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukin út til 2 lykkjur brugðið – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið hitt axlarsætið á sama hátt. Nú eru framstykkin, bakstykkið og axlarsætin sett inn á sama hringprjón 5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar meðfram hliðum á axlarsætum. Byrjið frá réttu og á vinstra framstykki þannig: VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 17-18-19-20-21-21 lykkjur á vinstra framstykki, prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsæti. AXLARSÆTI: Prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og nú eru 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti). BAKSTYKKI: Prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttprjón yfir næstu 34-36-38-40-42-42 lykkjur á bakstykki, prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á hinu axlarsætinu. AXLARSÆTI: Prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og nú eru 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti). HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 17-18-19-20-21-21 lykkjur á hægra framstykki, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Nú eru 250-254-276-284-306-306 lykkjur í umferð. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki innan við kant að framan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 31-32-33-35-36-36 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (= framstykki). Annað prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= ermi). Þriðja prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 62-64-66-70-72-72, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= bakstykki). Fjórða prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju (= ermi). Prjónið sléttprjón yfir næstu 31-32-33-35-36-36 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, lykkjur eru auknar út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning á ermum og á berustykki: Aukið er út jafnóðum, en í stærð L, XL, XXL og XXXL heldur útaukning á berustykki áfram eftir að útaukningu á ermum er lokið. Aukið út eins og útskýrt er í kaflanum hér að neðan: Í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar og 4 lykkjur fyrir berustykki. Aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð), þannig: ÚTAUKNING ERMAR: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-9-6-9-6-8 sinnum = 72-76-79-85-88-92 lykkjur á ermum (meðtalin 1 lykkja með prjónamerki í hvorri hlið á ermi). ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-9-11-12-16-21 sinnum = 38-41-44-47-52-57 lykkjur (+ 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) á framstykki og 76-82-88-94-104-114 lykkjur á bakstykki. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, eru 306-326-344-368-394-422 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 19-21-22-24-25-27 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 43-46-49-52-57-62 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 72-76-79-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-94-104-114 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 72-76-79-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 43-46-49-52-57-62 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 174-186-202-218-238-258 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist ca 29 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Í næstu umferð frá röngu eru auknar út 38-41-43-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 212-227-245-266-290-314 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú kant frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.3 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 72-76-79-85-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-10-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 78-82-87-95-98-102 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-6-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Úrtöku í stærð S og M er nú lokið (= alls 1-1 lykkjur færri). Í stærð L, XL, XXL og XXXL er úrtakan endurtekin með ca 8-2½-2-2 cm millibili alls 1-3-4-4 sinnum til viðbótar (= alls 2-4-5-5 lykkjur færri). Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 76-80-83-87-88-92 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til ermin mælist 27-25-25-23-22-21 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 9 cm að loka máli). Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 34-38-38-42-40-41 lykkjur jafnt yfir = 42-42-45-45-48-51 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 36-34-34-32-31-30 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Marga wrote:
Hola. Los aumentos para mangas y canesú se realizan siempre por el lado derecho. Si hay que aumentar cada 2a hilera, mi pregunta es si los aumentos se producen en cada vuelta del derecho, o cada dos vueltas del derecho. Gracias y un saludo
06.12.2021 - 18:53DROPS Design answered:
Hola Marga, los aumentos se producen en cada vuelta del derecho. Saludos!
07.12.2021 - 08:52Johanna wrote:
Salt Air
05.08.2021 - 14:44