DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Serene Forest

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-28
DROPS Design: Mynstur ai-346
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-400-450 g litur 12, mosagrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= 2 lykkjur fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 148-164-176-192-216-236 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar lykkjur, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, prjónið næstu umferð þannig – fellið nú af fyrir handveg og framstykki/bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig: Prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 68-76-82-90-102-112 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir síðustu 68-76-82-90-102-112 lykkjur á bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
= 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið miðju 18-20-22-24-26-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. Stykkið skiptist þar sem lykkjur voru felldar af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á sokkaprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-8-6-4-3½-2½ cm millibili alls 4-5-6-8-9-11 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-42-42-41-39 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. ATH! Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari axla og lengri ermakúpu. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkju í hvorri hlið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stutta hringprjóna 4 og prjónið upp ca 64 til 82 lykkjur í kringum hálsmál, meðtaldar lykkjur á þræði að framan (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Maria wrote:

Hej , är den här tröjan liten på storleken ? Bör man gå upp en storlek , den ser kort ut i ärm och bål

26.12.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Hej Maria, ja det her er en mindre model, du finder målene i de forskellige størrelser i måleskitsen nederst i opskriften. Vælg størrelsen med de mål som passer dig :)

02.01.2024 - 10:31

country flag Osborne75 wrote:

Shaping sleeve cap do you cast of 2 on both sides then continue straight until the work is 50cm long then case of 3 on both sides once or do you cast of 2 stiches at the start and end of each row until the work is 50 cm long so you have very few stiches left then case of 3 each side and then the remaining?

06.12.2023 - 09:04

DROPS Design answered:

Dear Osborne 75, cast off 2 sts at the beginning of each row (both from RS and from WS) until the sleeve measures 50 cm, adjust so that you cast off the same number of times these 2 sts on each side to get a symmetrical sleeve cap. Then cast off 3 sts at the beginning of next 2 rows and cast off the remaining stiches. The number of remaining stitches will depend on your tension in height, the height in cm is here more important than the number of stitches left. Happy knitting!

06.12.2023 - 16:03

country flag Ana wrote:

At the sleeves I guess the diagram measurements don’t match de pattern, can you confirm please? I’m knitting a size M and if I BO all stitches like the pattern says my sleeve is only 51cm ~ long and is too short for the armhole. My armhole as 21cm and my cap sleeve just 9cm

12.08.2023 - 14:17

DROPS Design answered:

Dear Ana, if your sleeve cap is 9 cm, then the whole stitches cast off along top of sleeve should match the 20 cm sleeve cap size M/21 cm sleeve cap size L. Happy knitting!

14.08.2023 - 09:11

country flag Linda Cox wrote:

I have knitted the sleeves I am knitting size L, increased to 64 stitches, then decease armhole. ended up with 36 to cast off. Is this correct?It does not specify how many stitches to end with, whereas stitch counts are given elsewhere. very confusing

12.08.2023 - 06:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cox, the number of remaining stitches will depend on your tension in height, most important is here that you cast off the same number of stitches on each side, and that sleeves measures 51 cm (sleeve cap measures ca 9 cm in size L). Happy knitting!

14.08.2023 - 08:58

country flag Linda Cox wrote:

Thank you but the question was do you start on purl row or knit ro, having already knitted across after decreasing 6 stitches

01.08.2023 - 22:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cox, after dividing back and front piece (you cast off 6 stitches on each side), you work back piece separately back and forth on needle, you can start back piece with either with a row from right side or with a row from wrong side as the stitches of the back piece as you had to cut the yarn after you cast off the last 6 stitches on last round on body. Happy knitting!

02.08.2023 - 08:00

country flag Linda Cox wrote:

When you cast off then knit across for armhole decrease , when you turn work to start knitting across and decreasing for armholes. Do you start on a purl row? and decrease on that row or just purl across then decrease on next row. doing size where I have 82 stitches each side for armhole, ready to decrease 2 at each end

01.08.2023 - 10:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cox, when you cast off for armhole, you should cast off the same number of stitches at the beginning of the right side and at the beginning of the wrong side rows. In 3rd size you will cast off 2 stitches at the beg of next 2 rows (2 sts on each side) and 1 stitch at the beginning of next 6 rows (1 stitch 3 times on each side). Happy knitting!

01.08.2023 - 17:50

country flag Sofie Forsman wrote:

Stickar nu första ärmen och undrar med minskningen. Ska jag i början av avmaskningen maska av i båda sidorna på både rätsidan och avigsidan?

15.03.2023 - 07:06

DROPS Design answered:

Hej Sofie, ja når du har lukket de 6 masker af midt under ærmet, fortsætter du frem og tilbage. Maska 2 m av till ärmkulle i början av varje varv enligt beskrivingen :)

15.03.2023 - 14:26

country flag Amanda Allorge wrote:

Bonjour, combien aurais je besoin de pelotes pour réaliser ce modele en taille s ? merci

01.03.2023 - 15:16

DROPS Design answered:

Bonjour Amanda, pour la taille S, il faut 6 pelotes (50 g chacun) de la laine DROPS Air. Bon tricot!

01.03.2023 - 16:31

country flag Sarah Bada wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zu dem Halsbündchen. Wird dies nur vorne in Hin- und Rückreihen gestrickt oder komplett um den ganzen Halsausschnitt herum. Wenn nur vorne, wie genau "halt" das Bündchen rechts und links? Muss ich es irgendwo annähen? Viele Grüße und danke für die Antwort. Ich hoffe, die Frage ist verständlich gestellt.

20.09.2022 - 22:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bada, die Halsblende wird in Runden gestrickt, dh die Maschenanzahl muss gerade sein (teilbar durch 2) dann stricken Sie 1 M re, 1 M li und ab der 2. Runde stricken Sie immer so (re über re und li über li). Hier zeigen wir, wie man so eine doppelte Halsblende faltet und festnäht (im Video sind es 2 re, 2 li gestrickt, aber die Technik wird mit 1 re, 1 li die gleiche sein). Viel Spaß beim stricken!

21.09.2022 - 09:20

country flag Richard wrote:

I am knitting this in size 'L' & have reached the 'cast-offs for the back & front. I have 82 sts, to proceed the instructions are:- 2 stitches 1-1-1-2-3-4 times and 1 stitch 0-2-3-4-6-7 times on both sides = 64-68-72-74-78-82 stitches. Is there an error with the calculations? I ask this, because, 1x3x2+6 (correct). But 2sts cast off x1 = 2. Therefore 6+2=8! To finish with 72sts, total must equal 10...

07.05.2022 - 12:03

DROPS Design answered:

Dear Richard, first you decrease 2 stitches once on each side, so in total you have decreased 4 stitches (2 + 2). Then, you decrease 1 stitch 3 times on both sides = 6 stitches. So you have decreased 10 stitches. Happy knitting!

08.05.2022 - 19:48