DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Serene Forest Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-27
DROPS Design: Mynstur ai-347
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-400-450 g litur 12, mosagrænn

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5-5-5-6-6-6 st

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= 2 lykkjur fleiri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 15, 25, 35 og 45 cm
M: 5, 15, 25, 36 og 47 cm
L: 5, 16, 27, 38 og 49 cm
XL: 5, 14, 23, 31, 41 og 51 cm
XXL: 5, 14, 23, 33, 43 og 53 cm
XXXL: 5, 15, 25, 35, 45 og 55 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 159-175-187-203-227-247 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff og garðaprjón þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju = 158-174-186-202-226-246 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, prjónið næstu umferð þannig – fellið nú af fyrir handveg og framstykkin/bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig: Prjónið 39-43-46-50-56-61 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið síðustu 39-43-46-50-56-61 lykkjur. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu og síðustu 39-43-46-50-56-61 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir 68-76-82-90-102-112 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 19-20-21-21-22-23 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka fyrstu 39-43-46-50-56-61 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 37-39-41-42-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu 14-15-16-17-18-19 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka síðustu 39-43-46-50-56-61 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 37-39-41-42-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu 14-15-16-17-18-19 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. Stykkið skiptist þar sem lykkjur voru felldar af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á sokkaprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-8-6-4-3½-2½ cm millibili alls 4-5-6-8-9-11 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-42-42-41-39 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. ATH! Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari axla og lengri ermakúpu. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkju í hvorri hlið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kanti að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að framan og frá réttu og prjónið upp ca 75-93 lykkjur (deilanlegt með 2 + 1) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þráðum) á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot og saumið saman op í hvorri hlið við miðju að framan. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Karina wrote:

Bonjour et merci pour tout, je comprend pas le paragraphe " Devant&Dos" et ensuite j ai " Dos," et "Devant droite ou gauche"...je commence ou?...... Et pourquoi l'explication de "DEVANT & DOS" alors ?

09.05.2024 - 02:34

DROPS Design answered:

Bonjour Karina, le gilet se tricote de bas en haut, on tricote d'abord les devants et le dos en une seule partie jusqu'aux emmanchures; puis on rabat les mailles des emmanchures et on termine le dos et les devants séparément jusqu'aux épaules. Bon tricot!

10.05.2024 - 08:13

country flag Helen wrote:

Back: 68-76-82-90-102-112 stitches. Continue with stocking , AT THE SAME TIME cast off for the armholes at the beginning of each row: 2 stitches 1-1-1-2-3-4 times and 1 stitch 0-2-3-4-6-7 times on both sides = 64-68-72-74-78-82 stitches. I find this confusing: beginning of each row 2 stitches 3 times? 1 stitch 6 times (at beginning of each row or at both ends of row?)

13.01.2024 - 20:02

DROPS Design answered:

Dear Helen, for size XXL you will cast off 2 stitches at the beginning of the next 3 rows on both sides (from the right side and wrong side, so 6 rows in total). Then, you will cast off 1 stitch at the beginning of the next 6 rows, also on both sides (so 12 rows in total). So you will have cast off from 102 stitches to 78 stitches: 24 stitches. Happy knitting!

14.01.2024 - 23:12

country flag Hanna wrote:

Robię sweter Serene Forest Cardigan nr wzoru 226-27 rozm.M. Terzaz powinnam przerabiać sam tył i zamykać oczka pod pachy. Mam 76moczek i teraz jest wzór wg którego mam zamykać oczka. Ma zostać 68 o na koniec. W ogóle wyliczenia nie zgadzają się. Nie wiem ile mam zamknąć tych oczek? Hanna J.

12.12.2023 - 10:23

DROPS Design answered:

Witam, w rozmiarze M zamykasz 1 raz 2 oczka z każdej strony (4 zamknięte oczka) i 2 razy po 1 oczku z każdej strony (4 zamknięte oczka). W sumie jest zamkniętych 8 oczek. 76-8=68. Pozdrawiamy!

12.12.2023 - 11:43

country flag Sol wrote:

Hi, so I don't cast off on ""each row" for left front piece, but just on the beg of a row only on WS? Thanks! DROPS Design answered: "When casting off for neck, work the stitches from wrong side then slip them on a thread, then cast off the stitches for neck at the beginning of a row from wrong side. Happy knitting!"

22.08.2023 - 11:30

DROPS Design answered:

Dear Sol, you will cast off at the beginning of a row from armhole for armhole (from RS on left front piece/from RS on right front piece) and at the beg of a row from band stitches/mid front (from WS on left front piece, from RS on right front piece). You cast off for armhole on each side only for back piece. Happy knitting!

22.08.2023 - 14:13

country flag Sol wrote:

I've started with the left front piece and now on a purl row. Do I bind off 2 sts at the end of the row, turn, BO 1 st (knit row), turn then BO 1 stitch again at the end of the purl row? "...place the outermost 14-15-16-17-18-19 stitches towards mid-front on a thread for the neck. Then bind off stitches on each row from the neck: Bind off 2 stitches 1 time and 1 stitch 2 times = 19-20-21-21-22-23 stitches left on shoulder. "

21.08.2023 - 21:58

DROPS Design answered:

Dear Sol, the stitches for armhole will be cast off at the beginning of a row from armhole, this means for left front piece, cast off the stitches for armhole at the beginning of a row from the right side. When casting off for neck, work the stitches from wrong side then slip them on a thread, then cast off the stitches for neck at the beginning of a row from wrong side. Happy knitting!

22.08.2023 - 09:33

country flag Brigitte JEAN-BAPTISTE wrote:

Bonjour, Concernant les explications du col doublé, que signifie « relever 75-93 mailles »? On doit relever 75 ou 93 mailles ? Merci pour votre réponse. Bien cordialement

09.02.2023 - 19:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jean-Baptiste, vous allez relever, en fonction de votre taille et de votre tension entre 75 et 93 mailles le long de l'encolure (y compris les mailles des devants en attente) - ajustez juste pour que le nombre de mailles soit divisible par 2 +1. Bon tricot!

10.02.2023 - 09:22

country flag Marie wrote:

Bonjour, Concernant l'arrondi des manches, rabattre les 2 mailles se fait après la série de diminution ou bien juste avant la dimunution de 3 mailles avant la fin ? Merci pour votre réponse

24.01.2023 - 22:51

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, après avoir rabattu les 6 m sous la manche, vous rabattez de chaque côté: 2 x 3 -4 m (cf taille) et 1, 2 ou 3 x 1 m puis vous rabattez 2 m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 50 cm - veillez à bien avoir rabattu autant de fois 2 m sur l'endroit et sur l'envers pour que la tête de manche soit symétrique, puis rabattez 3 m de chaque côté, et les mailles restantes. Bon tricot!

25.01.2023 - 12:01

country flag Sara Kittelsen wrote:

Hei, kan dere sjekke maskeantallet på ermene etter øking. Jeg strikker str.M og får 50 msk. + 2 msk. X 8 økninger til å bli 66 Kanskje feil i min forståelse av oppskriften, men sjekk gjerne. Vh Sara

13.09.2022 - 07:30

DROPS Design answered:

Hej Sara, i M starter du med 50 masker, tager 1 m ud 5 gange i hver side = + 10 = 60 masker :)

15.09.2022 - 15:33

country flag Anne -Grete Andersen Aabo wrote:

Hvordan får man trøjen er til at holde op med at \"smitte\" af på andet tøj. Den \"fnulrer\" og da jeg er så glad for den, at jeg ønsker mig een mere, er jeg nødt til at have et svar på spørgsmålet om dette. Ellers et skønt let og varmt materiale. Bh Anne-Grete

24.08.2022 - 17:08

DROPS Design answered:

Hej Anne-Grete, garn med løse fibre vil altid fnuldre mere eller mindre, jeg har selv flere i Air som fnuldrer meget lidt. Hvis du absolut ikke vil det, så kan du strikke den i DROPS Big Merino, eller DROPS Nepal eller DROPS Alaska som kan strikkes på samme strikkefasthed. God fornøjelse!

25.08.2022 - 15:41

country flag Cheryl wrote:

Hei. Strikkes denne jakken med 1 eller 2 tråd? Jeg ville strikke denne i drops brushed alpaca silk som er på samme garngruppe som drops air.

28.06.2022 - 22:24

DROPS Design answered:

Hej Cheryl, jakken strikkes i en tråd og du kan fint bruge DROPS Brushed Alpaca Silk. Strikkefastheden skal være 17 masker på 10 cm (ca pind 5) God fornøjelse!

29.06.2022 - 10:02