Soft Journey Cardigan |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með klauf í hliðum og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-10 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 91 lykkju sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 3,9. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 8, 18 og 28 cm M: 9, 19 og 29 cm L: 9, 19½ og 30 cm XL: 9, 20 og 31 cm XXL: 10, 21 og 32 cm XXXL: 10, 21½ og 33 cm AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Öll stykkin eru prjónuð neðan frá og upp. Frágangur á peysunni er útskýrður í uppskrift. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-102-108-120-129-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 13 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 22-25-25-29-31-36 lykkjur jafnt yfir = 71-77-83-91-98-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða (= kantlykkjur) = 73-79-85-93-100-110 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 67-69-73-75-78-80 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, prjónið mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 16-17-19-20-20-21 lykkjur, Prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 yfir næstu 30-30-30-30-33-33 lykkjur, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1, sléttprjón yfir næstu 16-17-19-20-20-21 lykkjur, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 15-15-15-15-18-18 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 26-27-29-30-30-31 lykkjur. Haldið áfram með 9 lykkjur mynstur við háls, 1 kantlykkju garðaprjón við hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 51-57-60-66-69-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 13 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, prjónið sléttprjón yfir næstu 42-48-51-57-60-66 lykkjur, jafnframt er fækkað um 11-14-14-16-16-17 lykkjur jafnt yfir, fitjið upp 1 nýja lykkju í umferð (= kantlykkja) = 41-44-47-51-54-59 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka í mynstri. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón að hlið, 9 lykkjur í mynstri eins og áður við miðju að framan (= kantur að framan) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að prjóna mynstur eins og áður, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli og handvegi. Lestu því allan þennan kafla áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 9 lykkjur í mynstri eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, í annarri hverri umferð 8-7-7-7-7-6 sinnum og í 4. hverri umferð 3-4-4-4-5-6 sinnum = 12-12-12-12-13-13 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli. HANDVEGUR: Fækkið lykkjum fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Þ.e.a.s. fellt er af þannig: Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 3-5-6-9-11-15 lykkjur felldar af fyrir handveg. Þegar öll úrtaka / affelling fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 26-27-29-30-30-31 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 51-57-60-66-69-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 13 cm. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 42-48-51-57-60-66 lykkjur, jafnframt er fækkað um 11-14-14-16-16-17 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 9 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka í mynstri og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 41-44-47-51-54-59 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið, 9 lykkjur í mynstri eins og áður við miðju að framan (= kantur að framan) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli frá réttu þannig: Prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferð eins og áður. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, í annarri hverri umferð 8-7-7-7-7-6 sinnum og í 4. hverri umferð 3-4-4-4-5-6 sinnum = 12-12-12-12-13-13 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli. HANDVEGUR: Fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á bakstykki. Þ.e.a.s. fellt er af þannig: Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 3-5-6-9-11-15 lykkjur felldar af fyrir handveg. Þegar allar úrtökur/affellingar fyrir v-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka eru 26-27-29-30-30-31 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 54-57-60-66-69-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffið í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-13-13-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 42-44-47-50-53-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á ermi – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12-12-11-10-10-9 cm = 46-48-51-54-57-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-19-16-16-16-12 cm. Aukið nú út alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 54-56-61-64-69-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 28-28-26-26-26-23 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið nú sléttprjón, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 3-2-2-2-2-2 lykkjur 3-4-5-6-6-8 sinnum og 6-7-6-4-6-3 lykkjur 1 sinni = 20-20-21-22-23-24 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 34-35-34-35-35-35 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermakúpu. Saumið sauminn undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður þar sem stroffið byrjar. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Nobletdom wrote:
Comment se prolonge les bandes d'encolure des devants au niveau de l'encolure dos ? merci pour votre réponse
28.02.2022 - 16:10DROPS Design answered:
Bonjour Nobletdom, avant de rabattre les mailles de l'encolure dos, vous avez tricoté A.1 au-dessus des mailles centrales, c'est la bordure d'encolure, les 9 mailles point fantaisie restant côté encolure seront assemblées aux 9 mailles de la bordure devant des devants droit et gauche. Bon tricot!
28.02.2022 - 16:35Janka wrote:
Gdybym chciała zrobić sweter w rozmiarze S z długimi rękawami o ile powinnam zwiększyć ilość włóczki?
22.02.2022 - 09:09DROPS Design answered:
Witaj Janko, po jednym motku każdej włóczki powinno wystarczyć. Miłej pracy nad robótką. Pozdrawiamy!
22.02.2022 - 10:15Debra J Lockwood wrote:
Please advise when this is coming out. I want to make one for an engagement on March 28, 2022.
10.02.2022 - 05:50DROPS Design answered:
Dear Mrs Lockwood, this pattern should be online soon, come back regularly to check. Thank you very much in advance for your patience.
10.02.2022 - 09:22Teresou wrote:
Modèle élégant par sa simplicité, le genre qu'on aime toujours avoir dans son dressing, agrémenté par les grandes côtes
17.01.2022 - 00:05Molly wrote:
Teddy hug cardigan
15.01.2022 - 11:37Kiddylove wrote:
Feeling the airbreeze
13.01.2022 - 23:38