Moody Judy |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Það er mismunandi aukið út á fram- og bakstykki og ermum eftir stærðum. Aukið er út fyrir fram- og bakstykki á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Aukið er út fyrir ermar á eftir 3. og 1. prjónamerki og á undan 4. og 2. prjónamerki. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu á undan og á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn prjónaður í næstu umferð á undan og á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftran, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptist og prjónað er fram og til baka að klauf. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 140-144-148-152-160-168 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 3 cm. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 15-16-17-18-20-22 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 38 lykkjur (ermi) og setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 30-32-34-36-40-44 lykkjur (framstykki) og setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 38 lykkjur (ermi) og setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 15-16-17-18-20-22 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT er mismunandi aukið út á fram- og bakstykki og ermar í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Aukið út í annarri hverri umferð á fram- og bakstykki og aukið út í 4. hverri umferð á ermum. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð eins og þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – það hafa nú verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki – mundu eftir útaukningu fyrir laskalínu. ATH! Einungis er aukið út á fram- og bakstykki, aukið er út á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki (nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 2. prjónamerki – mundu eftir laskalínu, nú er aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermum – þ.e.a.s. hvoru megin við öll 4 prjónamerkin (nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Aukið út í annarri hverri umferð á fram- og bakstykki, á ermum er fyrst aukið út í annarri hverri umferð, síðan í 4. hverri umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð eins og þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – það hafa nú verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki – mundu eftir útaukningu fyrir laskalínu (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu áður en prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: STÆRÐ S, M og L: Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð fyrir fram- og bakstykki og í 4. hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 11-14-17 sinnum fyrir ermar á eftir kanti í hálsmáli (útaukning fyrir ermar hefur nú verið gerð til loka, en útaukning fyrir framstykki/bakstykki heldur áfram). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með útaukningu á fram- og bakstykki þar til aukið hefur verið út alls 29-33-34 sinnum á fram- og bakstykki. Það eru 300-332-352 lykkjur í umferð (60-66-72 lykkjur fyrir hvorri ermi og 90-100-104 lykkjur fyrir framstykki / bakstykki ásamt lykkjum með prjónamerki í). STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð fyrir fram- og bakstykki og ermar þar til aukið hefur verið út alls 6-5-8 sinnum á eftir kanti í hálsmáli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú breytist útaukning á ermum, aukið er út þannig: Haldið áfram með útaukningu á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 33-38-39 sinnum til viðbótar (aukið hefur verið út alls 39-43-47 sinnum á fram- og bakstykki). Jafnframt er aukið út fyrir ermar í 4. hverri umferð 15-17-16 sinnum (aukið hefur verið út alls 21-22-24 sinnum fyrir ermi). Nú eru 392-420-452 lykkjur í umferð (80-82-86 lykkjur fyrir hvorri ermi og 116-128-140 lykkjur fyrir framstykki/bakstykki). ALLAR STÆRÐIR: = 300-332-352-392-420-452 lykkjur. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-22-25-27-29 cm mælt mitt að framan (mælt á eftir kanti í hálsmáli). Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar frá byrjun á umferð þannig: Prjónið fyrstu 45-50-52-58-64-70 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 16-16-20-20-24-24 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 90-100-104-116-128-140 lykkjur (framstykki), setjið næstu 60-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 16-16-20-20-24-24 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 45-50-52-58-64-70 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-232-248-272-304-328 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 16-16-20-20-24-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð síðar þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 18-18-19-18-18-18 cm frá skiptingu. Haldið eftir fyrstu 106-116-124-136-152-164 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 106-118-124-136-152-164 lykkjur á þráð. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-18-22-26-30-30 lykkjur jafnt yfir = 126-134-146-162-182-194 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. Setjið lykkju af þræði á hringprjón 2,5 og prjónið á sama hátt. ERMI: Setjið 60-66-72-80-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 16-16-20-20-24-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-3½-2½-3-3½ cm millibili alls 4-4-5-6-5-4 sinnum = 68-74-82-88-96-102 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-19-19-17-15-14 cm, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff). Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 12-14-14-16-16-18 lykkjur jafnt yfir = 80-88-96-104-112-120 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-22-22-20-18-17 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Carolina Hölmark wrote:
Hittar fel i beskrivningen och önskar hjälp för att komma vidare. Tacksam för svar.
26.09.2022 - 07:12DROPS Design answered:
Hej Carolina, skriv vilken storlek du stickar, var du är i mönstret och vad som är fel, så svarar vi så fort som möjligt :)
26.09.2022 - 12:16Bland wrote:
Ce pull peut t il être tricoter a la machine .Merci
15.09.2022 - 17:55DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bland, tout va dépendre de votre machine - n'hésitez pas à consulter la notice et votre revendeur, ou même un forum spécialisé en tricot machine si besoin. Bon tricot!
16.09.2022 - 09:24Elena Beristain wrote:
En la talla S, el patrón pone que se monten 140 puntos para hacer la cenefa del escote. Posteriormente, se insertan marcapuntos a los 15 puntos, 38 puntos, 30 puntos, 38 puntos, y quedarían 15 puntos. El error es que la suma de 15, 38, 30, 38 y 15 da un total de 136 puntos. Mi pregunta es: ¿L a cenefa debería tener 136 puntos, o hay que variar el número de puntos entre los marcapuntos?
09.09.2022 - 11:52DROPS Design answered:
Hola Elena, los marcapuntos se insertan en los puntos. P.e, 15 puntos, insertar el marcapuntos en el 16, 38, insertar en el 39.... De esta forma, obtienes 140 puntos.
12.09.2022 - 23:15Marie Breward wrote:
Ginger short
07.08.2022 - 02:08Janine wrote:
Office Jam (as someone has previously suggested, as I will knit this to wear for my new office job and my initials are JAM!)
06.08.2022 - 09:33Iya wrote:
Office jam
06.08.2022 - 06:48Autumn Tee wrote:
An elegant t-shirt that also holds you warm.
04.08.2022 - 22:26Chloe wrote:
Simple Saturday
04.08.2022 - 21:41Bente wrote:
Sød rosa bluse
04.08.2022 - 18:12