Late Autumn Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með kraga og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, A.3, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um kraga): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að fá kragann til að leggjast alveg flatan, er hægt að bleyta hann aðeins og leggja í rétt form eftir að stykkið hefur verið prjónað til loka. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið frjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 7, 18, 29, 40, 51 og 62 cm M: 6, 18, 29, 41, 52 og 64 cm L: 6, 16, 26, 36, 46, 56 og 66 cm XL: 7, 17, 27, 37, 47, 57 og 67 cm XXL: 6, 17, 27, 38, 49, 59 og 70 cm XXXL: 8, 19, 29, 40, 50, 61 og 71 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í stykkjum og saumað saman í lokin. Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handvegi, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum er kraginn prjónaður fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 113-122-131-143-158-173 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 5 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 7 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 103-112-121-133-148-163 lykkjur og fækkið lykkjum jafnframt um 29-30-33-37-42-45 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 5 lykkjur í garðaprjóni = 84-92-98-106-116-128 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan mynstur þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, 1-5-8-7-12-18 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 alls 5 sinnum, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.2 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, 1-5-8-7-12-18 lykkjur sléttprjón og 5 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14 cm frá uppfitjunarkanti, fitjið upp 1 lykkju í lok næstu 2 umferða = 86-94-100-108-118-130 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður yfir miðju 72-72-72-82-82-82 lykkjur, 1 lykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær 6-10-13-12-17-23 lykkjur sem eftir eru á milli mynsturs og lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið svona þar til stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm. Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 4-6-7-8-10-12 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið = 78-82-86-92-98-106 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, setjið miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 30-32-33-36-38-42 lykkjur fyrir öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 67-73-76-82-88-97 173 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig: 10 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 5 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 7 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 10 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 52-58-61-67-73-82 lykkjur og fækkið lykkjum jafnframt um 14-16-16-18-19-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 5 lykkjur í garðaprjóni = 53-57-60-64-69-75 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 5 lykkjum í garðaprjóni í hlið og 10 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Prjónið síðan mynstur þannig: 10 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 7-7-7-8-8-8 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 alls 2 sinnum, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.2 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, 1-5-8-7-12-18 lykkjur sléttprjón og 5 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 14 cm frá uppfitjunarkanti, fitjið upp 1 lykkju í lok næstu umferðar frá réttu = 54-58-61-65-70-76 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður, en nú er prjónuð 1 lykkja í garðaprjóni að hlið og sléttprjón yfir þær 6-10-13-12-17-23 lykkjur sem eftir eru á milli mynsturs og lykkju í garðaprjóni að hlið. Þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm, fellið af 4-6-7-8-10-12 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu fyrir handvegi = 50-52-54-57-60-64 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-71-73 cm, fellið af fyrstu 10 lykkjur frá réttu fyrir hálsmáli, fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3-3-4-4-4-4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-3-4-4 sinnum = 30-32-33-36-38-42 lykkjur fyrir öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 67-73-76-82-88-97 173 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 11 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 10 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 7 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 52-58-61-67-73-82 lykkjur og fækkið lykkjum jafnframt um 14-16-16-18-19-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 10 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 53-57-60-64-69-75 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 5 lykkjum í garðaprjóni í hlið og 10 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Prjónið síðan mynstur þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, 1-5-8-7-12-18 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 alls 2 sinnum, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.2 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, 7-7-7-8-8-8 lykkjur sléttprjón og 10 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 14 cm frá uppfitjunarkanti, fitjið upp 1 lykkju í lok næstu umferðar frá röngu = 54-58-61-65-70-76 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður, en nú er prjónuð 1 lykkja í garðaprjóni að hlið og sléttprjón yfir þær 6-10-13-12-17-23 lykkjur sem eftir eru á milli mynsturs og lykkju í garðaprjóni að hlið. Þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm, fellið af 4-6-7-8-10-12 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu fyrir handvegi = 50-52-54-57-60-64 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-71-73 cm, fellið af fyrstu 10 lykkjur frá röngu fyrir hálsmáli, fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3-3-4-4-4-4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-3-4-4 sinnum = 30-32-33-36-38-42 lykkjur fyrir öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 75-78-81-84-87-90 lykkjur á sokkaprjóna 5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið A.1 hringinn í 20 cm. Það á síðar að brjóta kantinn að innanverðu á ermi og sauma niður, þannig að stroffið verði tvöfalt. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 26-27-29-30-30-32 lykkjur jafnt yfir = 49-51-52-54-57-58 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið mynstur þannig: A.3 yfir 2 fyrstu lykkjurnar, sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar ermin mælist 1-1-2-2-2-4 cm frá stroffi, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.3 – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með ca 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 11-12-13-14-14-15 sinnum = 71-75-78-82-85-88 lykkjur. Þegar ermin mælist 58-57-56-54-52-50 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna frá miðju í A.3 þar til ermin mælist ca 60-60-60-59-58-57 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-3-4-5-6-7 cm efst á ermi. Fellið af. Brjótið stroffið að innan verðu á ermi. Saumið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur 10 cm. Til að kanturinn á ermi dragi ekki stykkið saman, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 lykkju í garðaprjóni – byrjið við handveg og saumið þar til 14 cm eru eftir neðst í hvorri hlið (klauf). Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu í kringum hálsmál þannig: Hoppið yfir 10 lykkjur í kanti að framan sem felldar voru af, prjónið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur (meðtaldar lykkjur sem settar voru á þráð) á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Air fram að 10 lykkjum sem felldar voru af í kanti að framan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð brugðið frá röngu, 1 umferð brugðið frá réttu (= uppábrot), 1 umferð brugðið frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af. Brjótið kant í hálsmáli tvöfalt að röngu og saumið fallega niður. KRAGI: Byrjið frá réttu og prjónið upp 1 lykkju í hverja brugðna lykkju þar sem kantur í hálsmáli var brotinn inn á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Air = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið síðan með 2 þráðum DROPS Air þannig: Prjónið 1 umferð slétt frá innanverðum kraga – þetta kemur til með að verða réttan á kraganum og það er þessi hlið sem kemur til með að snúa út þegar kraginn er tilbúinn og er brotinn niður. Setjið 1 prjónamerki 12-12-13-13-14-14 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 24-24-26-26-28-28 lykkjur á milli prjónamerkja). Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat). Haldið svona áfram fram og til baka þar til aukið hefur verið út alls 5 sinnum í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu = 58-58-62-62-66-66 lykkjur. Haldið svona áfram með útaukningu í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu 3 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka eru 76-76-80-80-84-84 lykkjur í umferð. Prjónið þar til kraginn mælist alls 12 cm eða að óskaðri lengd. Fellið af. Til að kraginn verði stöðugri meðfram kanti er heklaður kantur með 2 þráðum DROPS Air með heklunál 5,5 frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju í affellingarkanti meðfram öllum kraganum. Klippið þráðinn og festið. Lesið LEIÐBEININGAR. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Margaretha wrote:
Chokladdröm
07.08.2022 - 11:46Gabriella wrote:
Cioccolata calda
04.08.2022 - 14:25