Coconut Grove |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað neðan frá og upp með kúlumynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 235-15 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli / tvíbruðnum stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað 1. stuðuls. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Þegar heklað er í hring: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðuls í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráði í hvorri tegund (2 þræðir). Heklið 78-84-90-98-108-118 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA. Snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 75-81-87-95-105-115 stuðlar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið með 1 stuðli í hvern stuðul þar til heklaðar hafa verið alls 5 umferðir. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir 3-6-9-5-10-7 lykkjur, heklið A.2 alls 9-9-9-11-11-13 sinnum á breiddina og heklið A.3 yfir 0-3-6-2-7-4 lykkjur. Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-38-39 cm, gerið handveg í næstu umferð þannig: Klippið þráðinn, hoppið yfir fyrstu 1-2-3-5-8-10 lykkjur í umferð og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í næstu lykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Stillið mynstrið af þannig að ekki er heklað kúlumynstur yst við handveg. Nú er heklað áfram mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ XS: Heklið A.1 yfir næstu 2 lykkjur, heklið A.2 alls 8 sinnum á breiddina, heklið fyrstu 7 lykkjur í A.2 einu sinni til viðbótar, þar til 1 lykkja er eftir í umferð. Það eru 73 lykkjur í umferð. STÆRÐ S, M, L, XL, XXL: Heklið A.1 yfir næstu 4-6-8-10-5 lykkjur, heklið A.2 alls 9-9-9-9-11 sinnum á breiddina, heklið A.3 yfir næstu 1-3-5-7-2 lykkjur, það eru eftir 2-3-5-8-10 lykkjur í umferð. Það eru 77-81-85-89-95 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Lestu allan kaflann áður en þú heklar áfram! = 73-77-81-85-89-95. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, heklið A.1 yfir miðju 31-33-33-35-35-37 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, skiptist stykkið fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 23-24-26-27-29-31 lykkjur, heklið næstu 2 lykkjur saman. Snúið stykkinu. HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): = 24-25-27-28-30-32 lykkjur. Heklið 1 umferð frá röngu eins og áður – stillið af að kúlumynstur sé ekki heklað yst við hálsmál. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 23-24-26-27-29-31 lykkjur. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að endað sé með umferð með stuðlum. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá réttu og hoppið yfir 23-25-25-27-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í næstu lykkju og heklið þannig: Heklið 2 fyrstu lykkjurnar í umferð saman og heklið út umferðina eins og áður – stillið af að kúlumynstur sé ekki heklað yst við hálsmál. Heklið 1 umferð frá röngu eins og áður. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 23-24-26-27-29-31 lykkjur. Heklið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að endað sé með umferð með stuðlum. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. FRAMSTYKKI: Heklið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 43-45-46-58-49-51 cm. Nú skiptist stykkið fyrir hálsmál þannig: Heklið A.1 yfir miðju 31-33-33-35-35-37 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, skiptist stykkið fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 23-24-26-27-29-31 lykkjur, heklið næstu 2 lykkjur saman. Snúið stykkinu. VINSTRI ÖXL FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): = 24-25-27-28-30-32 lykkjur. Heklið 1 umferð frá röngu eins og áður – stillið af að kúlumynstur sé ekki heklað yst við hálsmál. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 23-24-26-27-29-31 lykkjur. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að það sé eins og á bakstykki. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. HÆGRI ÖXL FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá réttu og hoppið yfir 23-25-25-27-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í næstu lykkju og heklið þannig: Heklið 2 fyrstu lykkjur í umferð saman og heklið út umferðina eins og áður – stillið af að kúlumynstur sé ekki heklað yst við hálsmál. Heklið 1 umferð frá röngu eins og áður. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 23-24-26-27-29-31 lykkjur. Heklið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að það sé eins og á bakstykki. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. ERMI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráði í hvorri tegund (2 þræðir). Heklið 46-48-50-52-54-56 loftlykkjur. Snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 43-45-47-49-51-53 stuðlar. Heklið A.1 yfir 19-20-21-22-23-24 lykkjur, heklið A.2, A.3 heklið yfir 16-17-18-19-20-21 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 8 cm. Nú eru aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju innan við 1 lykkju í hvorri hlið. Aukið svona út um ca 8-5½-5½-5-4-4 cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 5-7-7-8-9-9 sinnum í hvorri hlið = 53-59-61-65-69-71 lykkjur. Heklið áfram þar til ermin mælist 52 cm, stillið af að það séu minnst 2 umferðir án kúlumynsturs efst á ermi. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi í við handveg – sjá teikningu. Saumið hliðarsaum og saum neðanverðu á ermum í eitt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráði í hvorri tegund (2 þræðir). Byrjið við axlasauminn og heklið kant í kringum hálsmál þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 keðjulykkju við axlasauminn frá réttu, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju um / í næstu lykkju *, heklið frá *-* hringinn allt hálsmálið, það eru ca 34-36-37-38-39-41 loftlykkjubogar. Endið umferð með 1 fastalykkju í fyrstu keðjulykkju. UMFERÐ 2: Heklið 1 umferð þar sem heklaðir eru 2 stuðlar um hvern loftlykkjuboga (ca 68-72-74-76-78-82 stuðlar). UMFERÐ 3-4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
DOMI wrote:
Bonjour, je souhaiterais faire ce pull en taille L et on préconise 700g d'alpaca... ce qui correspond a 14 pelotes. Est ce bien cela ? étant donné que sur la laine, il est noté qu'il en faut que 8 pour faire un pull... En plus il faut 200g de kid silk. je m'interroge sur les quantités. merci pour votre réponse
20.06.2023 - 14:59DROPS Design answered:
Bonjour Domi, il faut effectivement 14 pelotes Alpaca (50 g) + 8 pelotes Kid-Silk (25 g) pour réaliser ce pull en taille L - pensez à bien adapter votre tension; la quantité que vous avez lue correspond peut-être à une autre tension/à un ouvrage au tricot? Au crochet, il faut toujours une quantité supérieur, car le crochet est plus "gourmand". Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon crochet!
20.06.2023 - 15:40URSZULA wrote:
Bardzo ciekawy wzór
06.08.2022 - 15:16Mercedes Marzo Gracia wrote:
Espectacular 😍
05.08.2022 - 23:50Beate wrote:
Springballs
05.08.2022 - 22:38