Fabled Harbour Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-10 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar lykkjufjöldinn er endurtekinn í uppskrift A.1a og A.5a alltaf talið sem 5 lykkjur, þó að lykkjufjöldinn í nokkrum umferðum í mynstri sé 6 lykkjur (vegna úrtöku/útaukningu í mynstri). PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu eru prjónaðar brugðnar lykkjur og þegar prjónað er frá réttu eru prjónaðar sléttar lykkjur. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 6, 14, 22 og 30 cm. M: 6, 14, 22 og 30 cm. L: 6, 14, 23 og 32 cm. XL: 7, 16, 25 og 34 cm. XXL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm. XXXL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handvegi. Fram- og bakstykki skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað fram og til baka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handvegi, síðan er afgangur af ermi prjónað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 272-284-296-320-344-368 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið A.1, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 229-239-249-269-289-309 lykkjur í umferð. Nú er prjónað þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, endurtakið A.2a þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið A.1a, aukið út um 1 lykkju, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, endurtakið A.2a þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2a hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina, prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, A.3a, prjónið A.3b þar til 28 lykkjur eru eftir JAFNFRAMT er fækkað um 33 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.3c, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 197-207-217-237-257-277 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 21 cm. Síðan er mynstur prjónað þannig (fyrsta umferð er frá réttu): 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, 0-1-2-0-2-0 lykkjur sléttprjón, A.4 þar til 19-20-21-19-21-19 lykkjur eru eftir, prjónið 1-2-3-1-3-1 lykkjur sléttprjón, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 25 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, prjónið sléttprjón þar til 18 lykkjur eru eftir, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið alls 4 umferðir garðaprjón. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, prjónið A.5 þar til 19 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið fyrstu 2 umferðir af A.5 þar til á að prjóna fyrstu umferð í A.1a (þetta er gert til að mynstri í A.5 verði alveg eins í sömu umferð og í mynstri A.1a). Prjónið A.5 yfir lykkjur í A.5 og mynstri eins og áður þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki í næstu umferð frá réttu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, 34-36-37-44-46-48 lykkjur slétt (hægra framstykki), setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, fellið af 2-4-6-6-12-18 lykkjur fyrir handveg, prjónið 89-91-95-101-105-109 lykkjur slétt (bakstykki), setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, fellið af 2-4-6-6-12-18 lykkjur fyrir handveg, 34-36-37-44-46-48 lykkjur slétt, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 52-54-55-62-64-66 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu. Prjónið 3 sléttar umferðir (A.1a og A.2a heldur áfram eins og áður). Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, 0-2-3-2-4-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 þar til 19 lykkjur eru eftir, 1 lykkja sléttprjón, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 47-48-49-50-51-52 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 0-1-1-1-2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.7 þar til 19-20-21-20-21-22 lykkjur eru eftir, 1-2-3-2-3-4 lykkjur sléttprjón, A.2a, A.1a, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 9-9-9-10-10-11 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-9-10-10-11 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til eftir eru 17-18-18-22-23-23 lykkjur, setjið síðustu 17-18-18-22-23-23 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-38-39-42-43-45 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti í I-cord yfir axlalykkjur. Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: * Prjónið 1 lykkju SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði á bakhlið á bakhlið á stykki, passið uppá að þráðurinn verði ekki allt of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið síðan af 2 lykkjur. SJALKRAGI: Setjið 17-18-18-22-23-23 lykkjur frá þræði á hringprjón 5. Prjónið kant að framan og mynstur A.1a og A.2a eins og áður og garðaprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 52-54-55-62-64-66 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið 3 umferðir slétt (A.1a og A.2a heldur áfram eins og áður). Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, prjónið A.6 þar til 2-4-5-4-6-8 lykkjur eru eftir, 1-3-4-3-5-7 lykkjur sléttprjón og 1 lykkja garðaprjón. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 47-48-49-50-51-52 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a, A.2a, 1 lykkja brugðið, 0-1-2-1-2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.7 þar til eftir eru 2-3-3-3-4-5 lykkjur, 1-2-2-2-3-4 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 9-9-9-10-10-11 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-9-10-10-11 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til eftir eru 17-18-18-22-23-23 lykkjur, setjið síðustu 17-18-18-22-23-23 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-38-39-42-43-45 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti í I-cord yfir axlalykkjur. Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: * Prjónið 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði á bakhlið á bakhlið á stykki, passið uppá að þráðurinn verði ekki allt of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið síðan af 2 lykkjur. SJALKRAGI: Setjið 17-18-18-22-23-23 lykkjur frá þræði á hringprjón 5. Prjónið kant að framan og mynstur A.1a og A.2a eins og áður og garðaprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. BAKSTYKKI: = 89-91-95-101-105-109 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, 3-0-2-1-3-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 þar til eftir eru 5-2-4-3-5-3 lykkjur, 4-1-3-2-4-2 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 47-48-49-50-51-52 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, 3-0-2-1-3-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.7 þar til eftir eru 5-2-4-3-5-3 lykkjur, 4-1-3-2-4-2 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur að loka máli. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (36-37-38-41-42-44 lykkjur eftir á hvorri öxl). Haldið áfram með mynstur yfir lykkjur sem ganga upp í mynstri, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 35-36-37-40-41-43 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun frá næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til 9-9-9-10-10-11 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-9-10-10-11 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-38-39-42-43-45 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti í I-cord yfir axlalykkjur. Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: * Prjónið 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði á bakhlið á stykki, passið uppá að þráðurinn verði ekki allt of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið síðan af 2 lykkjur. ERMI: Fitjið upp 60-60-60-72-72-72 lykkjur á sokkaprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. * Prjónið A.1, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 50-50-50-60-60-60 lykkjur í umferð. Nú er endurtekið A.1a og A.2a þar til A.2 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina (A.1a = 4 sinnum). Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-56-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið A.7 hringinn yfir allar lykkjur. Endurtakið A.7 á hæðina að loka máli. Þegar stykkið mælist 14-14-13-13-13-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5½-4-3-4½-3-2½ cm millibili alls 6-8-10-7-9-11 sinnum = 60-64-68-70-74-78 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf). Þegar ermin mælist 45-45-44-43-41-39 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá prjónamerki mitt undir ermi) á hringprjón að loknu máli. Fellið af þegar ermin mælist ca 46-46-46-45-45-45 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við 1 lykkju í I-cord kanti. Saumið saman sjalkragann mitt að aftan (passið uppá að saumurinn snúi í rétta átt þegar flíkin er mátuð). Saumið sjalkragann við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Anne Rönn wrote:
Frågar samma som de övriga. Hur kan maskorna minska efter A.1 och A.2? Ni hänvisar till mönstret på tröjan men då måste man ändra maskantalet eftersom det mönstret är med 6 m istället för 5m som på koftan. Snälla hjälp! Den är så fin koftan.
14.02.2023 - 06:58DROPS Design answered:
Hej Anne, design kigger på opskriften og der vil blive lagt et nyt diagram ud. Tak for information :)
14.02.2023 - 10:04Julia wrote:
I've got the same question as Barbara. I'm wondering where I have to make the decrease from the beginning 272 to 229...?
12.02.2023 - 09:13DROPS Design answered:
Dear Julia, there seems to be a mistake in the charts for this pattern; we shall check in with the design department to correct it as soon as possible. As an alternative, you can check the charts for the sweater model of this garment (z-984 / 241-9), where the charts are correct. Happy knitting!
12.02.2023 - 23:01Barbara J Sander wrote:
Thank you so much Garnstudio - the pattern is lovely. I 've started swatching and it looks that I need a clarification. Please help me understand how there is a decrease in stitch count "when A.1 and A.2 have been worked 1 time in height, there are 229-239-249-269-289-309 stitches on needle." (compared to cast on 272-284-296-320-344-368 stitches). When I got to the indicated point in my project I still had the same number of stitches as I started with. Thank you!
11.02.2023 - 16:08DROPS Design answered:
Dear Barbara, there seems to be a mistake in the charts for this pattern; we shall check in with the design department to correct it as soon as possible. As an alternative, you can check the charts for the sweater model of this garment (z-984 / 241-9), where the charts are correct. Happy knitting!
12.02.2023 - 23:02Bianca Alexander wrote:
My desire
20.01.2023 - 18:25Marta wrote:
Lavender Romance
18.01.2023 - 16:10Catarina wrote:
Delicate kindness
18.01.2023 - 13:29Małgorzata wrote:
Jagodowa chmurka
18.01.2023 - 00:43Birgit Svanbäck wrote:
Summer evening
17.01.2023 - 20:24Gabriele wrote:
Muster und Wolle zusammen toll.
17.01.2023 - 20:16Soufana wrote:
Tenderness
17.01.2023 - 19:45