Jewels Tide Sweater |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri, röndum og klauf í hliðum. Stærð S – XXXL.
DROPS 239-22 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á öllum umferðum með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð (eftir því hvort fyrri umferð byrjaði með 3 eða 2 loftlykkjum). Í byrjun á öllum umferðum með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA (á við um ermar): Lykkjum er fækkað í umferð með stuðlum. Fækkið um 1 lykkju innan við 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman, þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn og dragið í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 stuðull færri). RENDUR: Það eru heklaðar rendur þannig: Heklið 6 umferðir með litnum perla, * heklið 1 umferð með litnum ljós gallabuxnablár, heklið 5 umferðir með litnum perla *, endurtakið frá *-* (umferð með litnum ljós gallabuxnablár er alltaf hekluð frá réttu). Til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá í litnum perla í hvert skipti sem heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er heklað þannig: Þegar heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er þráðurinn með litnum perla lagður yfir lykkjurnar frá fyrri umferð, það er heklað utan um þráðinn þannig að hann sést ekki og fylgir með yfir umferðina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður. Fyrst er hægri öxl að framan hekluð með útaukningu fyrir hálsmáli, síðan er vinstri öxl að framan hekluð með útaukningu fyrir hálsmáli áður en stykkið er sett saman og heklað er fram og til baka að loknu máli. Bakstykkið er heklað alveg eins. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman áður en kantur í hálsmáli er heklaður í lokin. Peysan er hekluð í röndum. HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 22-22-22-28-28-34 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 20-20-20-26-26-32 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.1A, heklið A.1B yfir næstu 12-12-12-18-18-24 lykkjur, endið með A.1C. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka (það hafa verið auknar út 2 lykkjur við miðju að framan = 22-22-22-28-28-34 lykkjur). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Geymið stykkið og heklið vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 22-22-22-28-28-34 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 20-20-20-26-26-32 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.1D, heklið A.1B yfir næstu 6-6-6-12-12-18 lykkjur, endið með A.1E. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka (það hafa verið auknar út 2 lykkjur við miðju að framan = 22-22-22-28-28-34 lykkjur). Í lok síðustu umferðar eru heklaðar aðeins lausar 25-31-31-25-31-31 loftlykkjur fyrir hálsmáli. Festið loftlykkjuröðina með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við hálsmál á hægri öxl að framan (frá röngu). Klippið þráðinn og festið. Nú eru stykkin hekluð saman fyrir framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu með hægri öxl að framan, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli og síðan yfir lykkjur á vinstri öxl að framan þannig: Heklið A.2A, heklið A.2B yfir næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur og endið með A.2C. ATH: Þegar heklað er yfir loftlykkjur í kanti í hálsmáli er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju = 69-75-75-81-87-99 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-19-20-22-22 cm (stillið af þannig að næsta umferð sé umferð með stuðlum), heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýjum loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýjum loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður = 81-87-87-93-99-111 stuðlar í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú eru heklar 2 mynstureiningar fleiri af A.2B á breiddina. Heklið áfram eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm. Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum. Klippið þræðina og festið. Framstykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Munið eftir RENDUR! Heklið 22-22-22-28-28-34 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 20-20-20-26-26-32 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Geymið stykkið og heklið hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 22-22-22-28-28-34 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Munið eftir RENDUR! Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 20-20-20-26-26-32 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Í lok þessarar umferðar eru heklaðar aðeins lausar 29-35-35-29-35-35 loftlykkjur fyrir hálsmál. Festið loftlykkjuröðina með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við hálsmál á vinstri öxl að aftan (frá röngu). Klippið þráðinn og festið. Nú eru stykkin sett saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu með vinstri öxl að aftan, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli og síðan yfir lykkjur á hægri öxl að aftan þannig: Heklið A.1A, heklið A.1B yfir næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur og endið með A.1E. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið þannig: Heklið A.2A, heklið A.2B yfir næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur og endið með A.2C. A.2 er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-19-20-22-22 cm, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. stuðul, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýjum loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýjum loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður = 81-87-87-93-99-111 stuðlar í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú eru heklar 2 mynstureiningar fleiri af A.2B á breiddina. Heklið áfram eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm. Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum. Klippið þræðina og festið. Bakstykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Heklið 65-65-65-71-77-77 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum perla. Munið eftir RENDUR. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 63-63-63-69-75-75 stuðlar í umferð. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 4 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli + 1 loftlykkja), hoppið yfir 2 stuðla, * 2 stuðlar á undan næsta stuðli (heklast á milli stuðla), 1 loftlykkja, hoppið yfir 3 stuðla *, heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 2 stuðla á unda næsta stuðli, 1 loftlykkja, hoppið yfir 2 stuðla og endið með 1 stuðul í síðasta stuðul = 63-63-63-69-75-75 lykkjur í umferð. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2A, heklið A.2B yfir næstu 54-54-54-60-66-66 lykkjur og endið með A.2C. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 6-6-6-5-4½-4½ cm millibili alls 8-8-8-9-11-10 sinnum í hvorri hlið = 47-47-47-51-53-55 lykkjur í umferð. Klippið þræðina og festið þegar ermin mælist 55-55-56-55-54-52 cm ofan frá og niður. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið saman ermasauminn, en skiljið eftir klauf ca 4 cm efst á ermi. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma, saumið kant í kant í ystu lykkjuna, en endið sauminn þegar eftir eru ca 10 cm fyrir klauf í hvorri hlið. KANTUR: Byrjið við aðra öxlina og heklið með heklunál 4 með litnum perla þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju , * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð / loftlykkjubogi *, heklið frá *-* í kringum allt opið í hálsmáli, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið þráðinn og festið. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Judith Cockayne wrote:
Thank you for your previous answer. I'm confused because on the written instructions the previous row is a row of double crochet not treble. Which should I do?
13.06.2023 - 13:34DROPS Design answered:
Dear Mrs Cockayne, make sure you are reading the appropriate English pattern, since UK and US crochet terminology are different (click on the scroll down menu and select either UK or US) - in the UK pattern (as the flag in your comment) you crochet 1 treble crochet in each chain stitch at the beg of shoulders (= 20-20-20-26-26-32 treble crochets) and then work as shown in diagram. Happy crocheting!
13.06.2023 - 13:42Judith Cockayne wrote:
In pattern 239-22, first row of A.1a what do the vertical dashes mean at the beginning of the first crocheted row? Also, I have just completed the first 2 rows before the start of the pattern, they are double crochet rows. The pattern A1A &A1B both say the last row was trebles. Please clarify.
12.06.2023 - 21:24DROPS Design answered:
Dear Mrs Cockayne, this vertical dash is explained under 1st symbol from diagram key: it's a chain stitch, so that you will start on first row with A.1A with 2 chains, then 1 dc (UK-English) in the next stitch. The first row worked before A.1 was a row with treble crochets = the row with a star in diagram, now start on next row with A.1A (and dc + chain stitches to get chain spaces). Happy crocheting!
13.06.2023 - 08:29Pam wrote:
Hallo, irgendwie ist auf einmal das Häkeldiagramm verschwunden und die Maßskizze auch. Stecke mitten im Projekt und bräuchte beides.
20.05.2023 - 00:00DROPS Design answered:
Liebe Pam, sind die Diagramme jetzt zurück? Wenn nicht, könnten Sie mal schauen, ob Sie die Diagramme andere Modellen sehen können? Versuchen Sie die Seite zu aktualisieren (Ctrl + F5), oder auch mal Cache/Cookies zu leeren, es kann auch helfen.
22.05.2023 - 08:17April wrote:
How is A2 repeated lengthways? There are 17 rows of A2 so if I crochet 17 rows back and forth, by row 18 I'm due to work left to right, but the first row of A2 is worked right to left. Also there's not the right spaces in row 17 to accommodate the instructions for a repeat of the first row. Am I supposed to start the repeat from a different row? I've never crocheted before so thanks for all the resources on your site. It's very helpful.
30.04.2023 - 14:21DROPS Design answered:
Dear April, thanks for noticing, diagram A.2 will be updated soon. Happy crocheting!
05.05.2023 - 08:32Silke wrote:
Ik tel 17 lijnen in het patroon voor A.2. Daardoor eindig je aan de verkeerde kant. Lees ik het patroon fout? Is er een manier om dat op te vangen?
28.04.2023 - 22:38DROPS Design answered:
Dag Silke,
Dat maakt niet uit want je kunt de toeren zowel aan de goede als de verkeerde kant haken, dus als je de volgende herhaling van A.2 haakt, dan begin je met de eerste toer aan de verkeerde kant.
30.04.2023 - 16:49Paqui Fernandez Gonzalez wrote:
Sueño de verano
22.01.2023 - 12:06Zita wrote:
My Lucky Sweater
17.01.2023 - 22:36Rosa wrote:
"Meeresstrand"
17.01.2023 - 22:18Marie wrote:
Blue wave
17.01.2023 - 21:46Olga wrote:
Great combination of lace patterns. Very versatile item.
17.01.2023 - 21:27