Idle Summer |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-30 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR KANTLYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN KANTLYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR KANTLYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN KANTLYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir v-hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón áður en stykkinu er aftur skipt fyrir klauf. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður i-cord kantur í kringum allt hálsmálið. BAKSTYKKI: Fitjið upp 34-34-36-36-38-38 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Sky eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR 4 kantlykkjum í byrjun á umferð og á UNDAN 4 kantlykkjum í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið alveg eins út bæði frá réttu og frá röngu alls 32-34-36-38-38-40 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 98-102-108-112-114-118 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 13-14-15-15-16-17 cm, mælt yst meðfram handvegi. Setjið lykkjurnar á þráð og geymið stykkið, prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið við vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Notið hringprjón 4 og prjónið upp 32-34-36-38-38-40 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. það er prjónuð upp 1 lykkja í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki) með DROPS Sky. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-6-6-8-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á umferð frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, aukið er út á eftir 2 kantlykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 9-9-10-10-10-10 sinnum, síðan er aukið út í annarri hverri umferð alls 8-8-8-8-9-9 sinnum = 49-51-54-56-57-59 lykkjur. Stykkið mælist ca 23-24-26-28-29-30 cm. Setjið lykkjur á þráð og geymið stykkið þegar síðasta umferð hefur verið prjónuð frá röngu. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Notið hringprjón 4 og prjónið upp 32-34-36-38-38-40 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-6-6-8-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, aukið er út á undan 2 kantlykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 9-9-10-10-10-10 sinnum, síðan er aukið út í annarri hverri umferð alls 8-8-8-8-9-9 sinnum = 49-51-54-56-57-59 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Stykkið mælist ca 23-24-26-28-29-30 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 49-51-54-56-57-59 lykkjur frá hægra framstykki, setjið lykkjur frá vinstri öxl á vinstri prjón og prjónið þær í sléttprjóni = 98-102-108-112-114-118 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 25-26-27-29-30-31 cm – mælt yst meðfram handvegi og stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið yfir 98-102-108-112-114-118 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-10-12-18-28-38 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið), setjið 98-102-108-112-114-118 lykkjur frá bakstykki á vinstri prjón og prjónið þær í sléttprjóni, fitjið upp 4-10-12-18-28-38 nýjar lykkjur í lok umferðar = 204-224-240-260-284-312 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í 4-10-12-18-28-38 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorir hlið – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð þegar klaufin er gerð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki (að hálsmáli). Nú skiptist stykkið við prjónamerki í hlið, framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig, prjónið 102-112-120-130-142-156 lykkjur fyrir framstykki og setjið þær síðan á þráð. BAKSTYKKI: = 102-112-120-130-142-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-21-21-25-27-29 lykkjur jafnt yfir = 123-133-141-155-169-185 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff þannig, fyrsta umferð er frá röngu: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá hæsta punkti á öxl. FRAMSTYKKI: Setjið 102-112-120-130-142-156 lykkjur frá þræði á hringprjón 3 og prjónið á sama hátt og bakstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 4 og DROPS Sky eða DROPS Daisy. Prjónið upp frá réttu 52-54-56-60-62-64 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 28-30-32-32-34-36 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 80-84-88-92-96-100 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur. Umferð 1 (ranga): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 2 (rétta): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 3 (ranga): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 4 (rétta): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 5 (ranga): Prjónið 26 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 6 (rétta): Prjónið 26 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 7 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 4-5-6-7-10-12 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) . Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist alls 6-7-8-9-12-14 cm er lykkjum fækkað undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½.-2.-2.-1½.-1½.-1.cm millibili alls 13-14-15-16-16-17 sinnum = 54-56-58-60-64-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39 cm í öllum stærðum frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Það eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir = 66-68-70-72-76-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 49 cm í öllum stærðum. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt við fyrri ermi, þ.e.a.s. prjónið upp 28-30-32-32-34-36 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 52-54-56-60-62-64 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). FRÁGANGUR: Saumið botninn á handvegi við fram- og bakstykki – sjá teikningu. I-CORD KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og fitjið upp 3 lykkjur á prjóni með DROPS Sky eða DROPS Daisy, prjónið síðan upp lykkjur í kringum allt hálsmálið, byrjið við aðra axlalínuna frá réttu innan við 1 kantlykkju. Prjónið alls upp ca 138-168 lykkjur. Klippið þráðinn. Nú á að prjóna i-cord samtímis sem lykkjur eru felldar af – passið uppá að prjóna aðeins laust svo að kanturinn dragi ekki stykkið saman. Prjónið frá réttu þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, færið lykkjurnar til baka yfir á vinstri prjón í sömu röð og þær koma, ekki snúa stykkinu. * Prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð. Fellið af síðustu lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu og saumið þessar lykkjur saman við lykkjur sem fitjaðar voru upp í byrjun á umferð – notið lykkjuspor til að saumurinn sjáist sem minnst. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Viviana wrote:
Eleganza basic
17.01.2023 - 18:28