August Sunset |
|
|
|
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri). Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu á undan / á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMFERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn í næstu umferð prjónaður á undan / á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-72-76-76-80-80 lykkjur með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir) yfir stuttan hring-prjón 6 og stuttan hringprjón 8 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 8 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 6 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður þar sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá upp-fitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 10-10-11-11-12-12 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 20-20-22-22-24-24 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 10-10-11-11-12-12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerkinu (hálft bakstykki). HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 8. Byrjið mitt að aftan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 104-104-108-108-112-112 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 5-5-5-6-7-9 sinnum hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (meðtalin útaukning í stuttum umferðum) = 112-112-116-124-136-152 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 8-10-10-12-12-12 sinnum á fram- og bak-stykki (4-5-5-6-6-6 sinnum á ermum). Nú eru 160-172-176-196-208-224 lykkjur í umferð. Í stærð S og M – farðu beint áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukninu fyrir ermar er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 1-1-2-3 sinnum = 180-200-216-236 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 13-15-16-19-21-24 sinnum á fram- og bakstykki og 9-10-10-12-13-15 sinnum á ermum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 160-172-180-200-216-236 lykkjur í umferð. Prjónið slétt-prjón án útaukningar þar til stykkið mælist ca 20-22-23-26-28-30 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffið í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 24-26-28-31-34-37 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 32-34-34-38-40-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 48-52-56-62-68-74 lykkjur (framstykki), setjið næstu 32-34-34-38-40-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp nýjar 6-6-8-8-8-8 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 24-26-28-31-34-37 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-128-140-152-164 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota prjónamerkin þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 16-16-17-16-16-16 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við prjónamerkin. Setjið 54-58-64-70-76-82 lykkjur frá bakstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið síðan yfir lykkjur á framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 54-58-64-70-76-82 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-16-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 70-74-82-90-98-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff frá röngu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið 54-58-64-70-76-82 lykkjur af þræði / hjálparprjóni á hringprjón 6 og prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Setjið 32-34-34-38-40-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-40-42-46-48-52 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Byrjið við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-5½-4-3-2½-2 cm millibili alls 4-4-5-6-7-8 sinnum = 30-32-32-34-34-36 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-27-26-24-23-22 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-8-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-39-38-36-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Ragna wrote:
Vel problemet ligger etter jeg startet på bærestykket. Jeg strikketøy forkortede pinner og fikk 108 masker. Så skulle det økes 6 ganger på hver side av de fire maskene = 6*8=48, og 108+48=156. ender altså aldri opp med 124 masker
09.10.2023 - 11:41DROPS Design answered:
Hei Ragna. Husk at du allerede har økt 4 ganger når du strikket de forkortete pinnenen og det skal økes til raglan totalt 6 ganger. Så når du starter på bærestykket skal du bare øke 2 ganger til. Altså du hadde 108 masker etter 4 økninger og så skal du øke 2 ganger til = 2x8 = 16 = 108+16= 124 masker når det er økt totalt 6 ganger. mvh DROPS Design
16.10.2023 - 14:45Ragna wrote:
Jeg har feil antall på pinnene etter jeg har økt med forkortede pinner. Strikker i XL, så jeg har 124 masker + 32 (forkortede) = 156 masker totalt på pinnene. Skal maskene fra de forkortede pinnene felles på en måte, eller stemmer antallet jeg har?
05.10.2023 - 01:10DROPS Design answered:
Hei Ragna, Du legger opp 76 masker i str. XL og strikker halskanten. Du øker32 masker på de forkortede pinner (som du sier) og da skal du ha 108 masker på pinnen før du fortsetter rundt på bærestykket. Håper dette hjelper og god fornøyelse!
09.10.2023 - 07:00Candace wrote:
On Ravelry this yarn is cited as Aran weight. Is this lovely thin yarn actually an Aran weight? It looks more like Lace weight.
05.09.2023 - 21:46DROPS Design answered:
Dear Candace, the yarn is 10 ply/aran/worsted; read more about DROPS Brushed Alpaca Silk here. Happy knitting!
06.09.2023 - 09:09Claire wrote:
Are the sleeves supposed to be knit using 8mm needles? As it says twice in the pattern to change to 6mm but it never says to change to 8mm?
29.07.2023 - 20:39DROPS Design answered:
Dear Claire! Yes, 8 mm needles should be used for sleeves as well. 6 mm is used for rib only. Thank you! Happy knitting!
29.07.2023 - 21:01Rosie wrote:
To just use DROPS Alpaca Silk, if it’s two strands do you need double the amount of yarn? (I.e. 400g rather than 200g for size S)
09.07.2023 - 23:10DROPS Design answered:
Hi Rosie, no - this yarn amount of DROPS Brushed Alpaca Silk is total, so applies also when using double yarn. Happy knitting!
10.07.2023 - 07:21Karin wrote:
Kann ich den Pullover auch mit EINEM Faden Brushed Alpaca Silk stricken?
04.07.2023 - 14:53DROPS Design answered:
Liebe Karin, die Maschenprobe würde dann nicht stimmen, und die ganze Anleitung sollten Sie dann umrechnen - hier finden Sie Pullover, die mit 1 Faden Brushed Alpaca Silk gestrickt werden können (benutzen Sie den Garnumrechner um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen). Viel Spaß beim stricken!
04.07.2023 - 16:04Olivia wrote:
Det är fel antal maskor i mönstret när man ökar för raglan i minsta storleken är det 144 maskor när man ökat 5 ggr efter de förkortade varven.
22.05.2023 - 19:38Claudia wrote:
Muss bei dem Halsausschnitt/Raglanzunahmen wirklich in den Rückreihen auch rechts gestrickt werden, nicht links? Und es wird in jeder Hin-und Rückreihe zugenommen, also Umschlag verstricken und direkt ein weiterer Umschlag? Nur so würde ich in 5 Reihen auf die +32 Maschen kommen....Vielen Dank!
15.04.2023 - 11:07DROPS Design answered:
Liebe Claudia, die Raglanzunahmen werden glatt rechts gestrickt, dh links bei den Rückreihen (Halsausschnitt) und rechts bei den Hinreihen - schauen Sie unter RAGLANZUNAHMEN und Wenn in Hin- und Rück-Reihen gestrickt wird... + Wenn in Runden gestrickt wird, . Viel Spaß beim stricken!
17.04.2023 - 08:56Daphne wrote:
I think the Madelynn sweater
20.01.2023 - 02:57Virpi wrote:
Fluffy
19.01.2023 - 15:42