Autumn Sea |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3, A.4 og A.5). ÚTAUKNING: Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt í sömu lykkju. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem sléttar lykkjur eru prjónaðar yfir allar lykkjur. Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (lykkja með prjónamerki í), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður, hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorum handvegi. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka, síðan er afgangur af ermi prjónað í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna að loknu máli. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAMSTYKKI: Fyrst er vinstri öxl prjónuð, síðan er hægri öxl prjónuð og í lokin eru lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli mitt að framan, áður en afgangur af framstykki er prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 27-31-33-35-39-43 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum gallabuxnablár og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum norðursjór (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (að hálsmáli) = 28-32-34-36-40-44 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. UMFERÐ 3 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 29-33-35-37-41-45 lykkjur. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 27-31-33-35-39-43 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (að hálsmáli) = 28-32-34-36-40-44 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. UMFERÐ 3 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 29-33-35-37-41-45 lykkjur. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. FRAMSTYKKI FRAMHALD: Prjónið hægri öxl og vinstri öxl saman frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 29-33-35-37-41-45 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 27-27-27-31-31-31 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 29-33-35-37-41-45 lykkjur frá vinstri öxl = 85-93-97-105-113-121 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu í mynstri eins og áður, með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (prjónið brugðið yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli). Síðan er mynstrið prjónað frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 14-18-20-20-24-28 lykkjur, A.2, A.3, byrjið með 2. lykkju í A.1 og prjónið A.1 yfir næstu 14-18-20-20-24-28 lykkjur, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.2 og A.5 yfir lykkjur í A.3. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 93-101-109-117-129-141 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur). Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hefur fækkað um 2 lykkjur í mynsturteikningu = 91-99-107-115-127-139 lykkjur. Nú heldur A.1 áfram yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 1 lykkju, prjónið 1 lykkju slétt fram og til baka í næstu lykkju (1 lykkja fleiri), prjónið 1 lykkju brugðið, * aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju – lesið ÚTAUKNING, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 10-11-12-13-14-16 sinnum, aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju, prjónið stroff án þess að auka út þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í næstu lykkju (1 lykkja fleiri), endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Nú hafa verið auknar út 24-26-28-30-32-36 lykkjur og það eru 114-124-134-144-158-174 lykkjur í umferð. Snúið stykkinu, fellið af 1 lykkju, haldið áfram með stroff þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 113-123-133-143-157-173 lykkjur. Prjónið stroffprjón með 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Framstykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. BAKSTYKKI: Fyrst er vinstri öxlin prjónuð, síðan hægri öxl og í lokin eru lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli mitt að aftan, áður en afgangur af bakstykki er prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 27-31-33-35-39-43 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 2 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður út umferðina, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar (að hálsmáli) = 29-33-35-37-41-45 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 27-31-33-35-39-43 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 2 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar (við hálsmál) = 29-33-35-37-41-45 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. BAKSTYKKI FRAMHALD: Prjónið hægri öxl og vinstri öxl saman frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 29-33-35-37-41-45 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 27-27-27-31-31-31 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 29-33-35-37-41-45 lykkjur frá vinstri öxl = 85-93-97-105-113-121 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu í mynstri eins og áður, með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (prjónið brugðið yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli). Prjónið síðan A.1 eins og áður yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp 3-3-5-5-7-9 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 91-99-107-115-127-139 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur). Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju (1 lykkja fleiri), prjónið 1 lykkju brugðið, * aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju – lesið ÚTAUKNING, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 10-11-12-13-14-16 sinnum, aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju, prjónið stroff án þess að auka út þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í næstu lykkju (1 lykkja fleiri), endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Nú hafa verið auknar út 24-26-28-30-32-36 lykkjur og það eru 114-124-134-144-158-174 lykkjur í umferð. Snúið stykkinu, fellið af 1 lykkju, haldið áfram með stroff þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 113-123-133-143-157-173 lykkjur. Prjónið stroffprjón með 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykki. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 lykkju í garðaprjóni frá handvegi og niður þar sem stroffið byrjar (= 10 cm klauf í hvorri hlið). ERMI: Byrjið í botni á handvegi og prjónið upp frá réttu 68-72-76-80-82-86 lykkjur meðfram handvegi innan við 1 lykkju í garðaprjóni á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit (2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 1-1-2-2-3-4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið stykkið saman og A.1 er síðan prjónað í hring. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Þegar stykkið mælist 6-6-8-7-9-11 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3-3-2½-2 cm millibili alls 9-10-11-12-12-13 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 41-40-40-40-38-37 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Það eru eftir ca 10 cm að loknu máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, * aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju – munið eftir ÚTAUKNING, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 5-5-5-6-6-6 sinnum, aukið út um 2 lykkjur í næstu lykkju, prjónið stroff án þess að auka út lykkjur út umferðina. Nú hafa verið auknar út 12-12-12-14-14-14 lykkjur = 62-64-66-70-72-74 lykkjur. Haldið áfram með stroffprjón með 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 10 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykki og bakstykki. Ermin mælist ca 51-50-50-50-48-47 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR-2: Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorum lit (2 þræðir). Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 80 til 90 lykkjur í kringum hálsmál. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið af að stroffið haldi áfram fallega yfir miðju lykkjur á framstykki. Fellið af aðeins laust þegar kantur í hálsmáli mælist 12-12-13-13-14-14 cm. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Sophie wrote:
Bonjour, J'ai vu quelqu'un avec un pull présentant le même genre de motif, mais il me semble en côtes simples, et en plus je ne suis pas très à l'aise avec les "top down". Je n'ai pas trouvé sur votre site un autre modèle présentant le même genre de motif (que je trouve très beau), en commençant par le bas. En avez-vous un ? Merci pour votre réponse
08.02.2024 - 18:22DROPS Design answered:
Bonjour Sophie, retrouvez ici nos modèles de pulls tricotés de bas en haut avec un décalage de côtes, vous y trouverez peut-être l'inspiration. Bon tricot!
09.02.2024 - 07:41Maria Luisa wrote:
Modello molto bello, ma non riesco a trovare lo schema A.1.
30.12.2023 - 22:32DROPS Design answered:
Buongiorno Maria Luisa, lo schema A.1 è in fondo alla pagina di fianco allo schema A.4. Buon lavoro!
31.12.2023 - 13:33Maria Schraven wrote:
Mooie modellen maar weer gebreid van boven naar beneden. Jammer, niet voor mij weggelegd.
29.08.2023 - 13:10Patricia wrote:
Océan
03.08.2023 - 14:34