Green Whisper |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 4 lykkjum með prjónamerki í – síðar kallaðar laskalínulykkjur. Laskalínulykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu / brugðið frá röngu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan. Síðan eru nýjar lykkjru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig: Á UNDAN laskalínulykkju: Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið ef síðasta lykkjan á undan uppslætti er prjónuð slétt, eða prjónið uppsláttinn snúinn slétt ef síðasta lykkjan á undan uppslætti er prjónuð brugðið, það á ekki að myndast gat. Á EFTIR laskalínulykkju: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið ef prjóna á næstu lykkju slétt, eða prjónið uppsláttinn slétt ef prjóna á næstu lykkju brugðið, það á ekki að myndast gat. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig: Á UNDAN laskalínulykkju: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið ef prjóna á næstu lykkju slétt, eða prjónið uppsláttinn slétt ef prjóna á næstu lykkju brugðið, það á ekki að myndast gat. Á EFTIR laskalínulykkju: Prjónið uppsláttinn snúinn slétt ef næsta lykkja er prjónuð brugðið, eða prjónið uppsláttinn snúinn brugðið ef næsta lykkja er prjónuð slétt, það á ekki að myndast gat. ÚTAUKNING (þegar aukið er út jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA Fækkið um 1 lykkju til skiptist á undan og á eftir lykkju með prjónamerki í. Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman eða 2 lykkjur brugðið saman eftir því hvernig síðasta/næsta lykkja í A.1 er prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Síðan er prjónað hálsmál með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna. Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af berustykki í hring frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er kantur í hálsmáli brotinn niður og saumaður niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-68-72-80-80-84 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5,5 og prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 11-11-11-13-13-13 cm. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). ATH: Hvert prjónamerki er sett í brugðna lykkju – síðar kölluð laskalínulykkja og laskalínulykkjur á að prjóna slétt (séð frá réttu). Teljið 7-7-9-9-9-11 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 17-17-15-19-19-17 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 15-15-19-19-19-23 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 17-17-15-19-19-17 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 8-8-10-10-10-12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (ca hálft bakstykki). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 4-4-0-4-4-0 lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið eins og áður fram hjá 1. prjónamerki, fækkið 2-2-0-2-2-0 lykkjur jafnt yfir á milli 1. og 2. prjónamerkis (ekki fækka lykkjum í laskalínulykkjum), prjónið fram hjá 3. prjónamerki, fækkið um 2-2-0-2-2-0 lykkjur jafnt yfir á milli 3. og 4. prjónamerkis, prjónið eins og áður út umferðina = 64-64-72-76-76-84 lykkjur í umferð. Nú eru 15-15-15-17-17-17 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis (ermar) og 15-15-19-19-19-23 lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerkis (framstykki) og á milli 4. og 1. prjónamerkis. Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. UMFERÐ 1 (rétta): Byrjið 2 lykkjum á undan laskalínulykkju með 3. prjónamerki í (þ.e.a.s. í vinstri hlið við hálsmál að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið A.1, en munið eftir að 4 laskalínulykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu / brugðið frá röngu og aukið út fyrir LASKALÍNU hvoru megin við 4 laskalínulykkjur – lesið útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá laskalínulykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið við hálsmál að framan = 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið A.1 (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA), þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið A.1 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki (8 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og herðið á þræði. UFMERÐ 5 (rétta): Prjónið A.1 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 2. prjónamerki (8 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur = 88-88-96-100-100-108 lykkjur. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Byrjið aftur við miðju að aftan og haldið áfram með A.1 hringinn (laskalínulykkjur eru prjónaðar slétt í hverri umferð). JAFNFRAMT heldur útaukning fyrir laskalínu áfram eins og útskýrt er að neðan: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, nema í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 12-14-18-18-20-20 sinnum á framstykki/bakstykki og 6-7-9-9-10-10 sinnum á ermum = 160-172-204-208-220-228 lykkjur. Útaukning fyrir ermar hefur nú verið gerð til loka. Haldið áfram með útaukningu á framstykki/bakstykki 3-4-0-1-2-3 sinnum til viðbótar = 172-188-204-212-228-240 lykkjur. Útaukning fyrir framstykki/bakstykki og ermar hefur nú verið gerð til loka. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-22-22-25-26 cm, mælt frá eftir stroffi mitt að aftan. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 26-29-31-32-35-38 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 33-35-39-41-43-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-9-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 53-59-63-65-71-77 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 33-35-39-41-43-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-9-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 27-30-32-33-36-39 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 120-132-140-148-164-180 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-7-9-11-13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-22-23 cm frá skiptingu, skiptist fram- og bakstykkið við bæði prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Önnur lykkjan með prjónamerki tilheyrir framstykki og hin lykkjan með prjónamerki tilheyrir bakstykki. BAKSTYKKI: = 60-66-70-74-82-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-19-19-23-23-25 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 77-85-89-97-105-115 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af. Notið e.t.v. ítalska affellingu – sjá myndband undir Skýringar & Aðstoð á heimasíðunni okkar. FRAMSTYKKI: = 60-66-70-74-82-90 lykkjur. Prjónið alveg eins og bakstykki. ERMI: Setjið 33-35-39-41-43-43 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-9-11-13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-42-46-50-54-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-7-9-11-13 lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjurnar. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Þegar stykkið mælist 12-12-8-6½-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku til skiptis á undan og á eftir prjónamerki með 8-8-4-3-2-2 cm millibili alls 4-4-8-10-14-14 sinnum (2-2-4-5-7-7 sinnum á undan prjónamerki og 2-2-4-5-7-7 sinnum á eftir prjónamerki) = 36-38-38-40-40-42 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 37-35-35-36-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-14-16-16-18-18 lykkjur jafnt yfir = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af alveg eins og á fram- og bakstykki. Ermin mælist ca 47-45-45-46-44-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma i veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Boukje Van Haren wrote:
Breezy sweater
06.08.2023 - 15:03Sveta wrote:
Rice
04.08.2023 - 15:00Hanke Van De Bunt wrote:
Cozy breeze
04.08.2023 - 10:20E Veiga wrote:
Riverstone Ripples Sweater (The pattern reminds me of small pebbles by the riverbed, and the water rippling through them...)
03.08.2023 - 13:16