Mermaid Bay |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, býkúpumynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Eftir því sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ganga ekki jafnt upp í mynstri, eru prjónaðar í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á eftir / undan A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður í næstu umferð þannig: Á EFTIR A.1: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. Á UNDAN A.1: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður frá hægri öxl að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, niður að klauf, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-88-96-96-100 lykkjur með DROPS Nepal yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 11 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki í umferð – prjónamerkið er notað til að mæla frá síðar. Lesið ÚTAUKNING og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-5-5-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), A.1 (lykkjur í A.1 eiga að passa yfir lykkjur frá stroffi), prjónið 23-25-25-27-27-29 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 7-11-11-9-9-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki), A.1, prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-5-5-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), A.1, prjónið 23-25-25-27-27-29 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út um 7-11-11-9-9-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (bakstykki), A.1 = 100-112-112-124-124-124 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið fyrstu umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, A.2 (ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.3A, prjónið A.3B alls 3-4-4-4-4-4 sinnum, A.3C (framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.2 (ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.3, prjónið A.3B alls 3-4-4-4-4-4 sinnum, A.3C (bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1 (= 8 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu á eftir / undan A.1 í hverri skiptingu á milli erma og framstykkis / bakstykkis í annarri hverri umferð alls 18-21-21-15-18-24 sinnum (meðtalin útaukning í fyrstu umferð) = 244-280-280-244-268-316 lykkjur – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í MYNSTUR eins og útskýrt er að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 12-12-12-24-24-24 sinnum á framstykki / bakstykki og 6-6-6-12-12-12 sinnum á ermum. Nú hefur verið aukið út alls 30-33-33-39-42-48 sinnum á framstykki / bakstykki og 24-27-27-27-30-36 sinnum á ermum. Það eru 316-352-352-388-412-460 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-24-29-31-36 cm frá prjónamerki sem var sett eftir kant í hálsmáli. Ef stykkið mælist minna en þetta er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út lykkjum. Í næstu umferð, prjónið mynstur eins og áður án þess að auka út jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.1 með því að prjóna 3. og 4. lykkju í A.1 slétt saman (4 lykkjur færri) = 312-348-348-384-408-456 lykkjur í umferð. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. Skiptingin er gerð mitt í hverri mynstureiningu A.1, þ.e.a.s. 3 lykkjur tilheyra ermum og 3 lykkjur tilheyra framstykki / bakstykki. Byrjið 3 lykkjum á undan byrjun á umferð, þ.e.a.s. mitt í síðustu mynstureiningu með A.1 í umferð, setjið fyrstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-12-18-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 96-108-108-120-126-138 lykkjur mynstur eins og áður (framstykki – ATH: Lykkjur í A.1 eru núna inni í A.3), setjið næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-12-18-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 96-108-108-120-126-138 lykkjur í mynstri eins og áður (bakstykkið – lykkjur í A.1 eru núna prjónaðar inn í A.3). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 204-228-240-264-288-312 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-12-12-18-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur – haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við lykkjur frá berustykki. Þegar stykkið mælist 25-25-27-23-23-20 cm frá skiptingu, setjið fyrstu 102-114-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 4 (framstykki) og síðustu 102-114-120-132-144-156 lykkjur (bakstykki) hvíla nú á hringprjóni 5. FRAMSTYKKI: = 102-114-120-132-144-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 3 lykkjur jafnt yfir í umferð = 105-117-123-135-147-159 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. BAKSTYKKI: Setjið 102-114-120-132-144-156 lykkjur frá bakstykki á hringprjóna 4 og prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Setjið 60-66-66-72-78-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-12-12-18-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-84-96-108 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-12-12-18-18 lykkjur. Prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur – haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við lykkjur frá berustykki. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni). Fækkið lykkjum svona með 10-5-5-3-2-1 cm millibili alls 3-6-6-9-12-18 sinnum = 60-60-66-66-72-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 34-33-34-30-29-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 42-41-42-38-37-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (63)
Kristina wrote:
Jag stickar denna modell i S, men redan efter första varvet får jag inte ihop A3A+A3B+A3C, det fattas två maskor efter första raglanökningen, vad görs för fel? 23+7+2 maskor. Det skulle behövas 34m för att få ihop mönstret.
03.09.2023 - 14:06DROPS Design answered:
Hei Kristina Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan dobbeltsjekke og evnt komme med en rettelse. mvh DROPS Design
11.09.2023 - 14:23Lola wrote:
Me encanta!!
29.08.2023 - 22:06Laurence wrote:
Bonjour, comment et a quel endroit faire une rehausse dans le dos avec ce motif pour avoir un pull plus confortable ? merci
29.08.2023 - 12:53Laurence wrote:
Bonjour, comment et a quel endroit faire une rehausse dans le dos avec ce motif pour avoir un pull plus confortable ? merci
29.08.2023 - 12:52DROPS Design answered:
Bonjour Laurence, dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter des rangs raccourcis pour une rehausse tout en augmentant pour le raglan, mais il vous faudra également jouer avec les torsades pour que le motif tombe juste, vous devrez probablement faire quelques calculs pour tomber juste, ou bien simplement augmenter dans les côtes (avant les torsades) en suivant cette autre vidéo, vous pourrez alors vous inspirer d'un modèle de tension similaire. Bon tricot!
30.08.2023 - 07:45Hansson wrote:
Varför säljs inte garnet Daisy i Sverige? Jag använder enbart Drops garner men saknar Merinogarn som inte är Superwash... men vad är skillnaden mellan merinoull och ex ullen i Flora?
29.08.2023 - 10:55DROPS Design answered:
Hej. Garnet Daisy har precis kommit på lager hos oss, så snart kommer du kunna köpa det hos återförsäljare i Sverige. Merinoullen kommer från merinofår och ullen i tex Flora kommer från vanliga får. Mvh DROPS Design
30.08.2023 - 11:42Hansson wrote:
Liknar mönster 236-6 Northern mermaid..... Vad är största skillnaden, så jag vet vilken jag ska välja🙂
29.08.2023 - 10:34DROPS Design answered:
Hej. Denna blir lite tjockare (annat garn), har dubbel halskant, lite annorlunda utseende på raglan och har sprund i sidorna. Mvh DROPS Design
30.08.2023 - 11:46María Jesús Ojeda Ruiz wrote:
Honeycomb
06.08.2023 - 21:24Marcia Heirman wrote:
Prachtig
06.08.2023 - 11:27Edith wrote:
Ice cubes
06.08.2023 - 10:50Mieny Caddeo wrote:
Honeycomb
06.08.2023 - 09:52