DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7395.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Mermaid Bay

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, býkúpumynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 245-1
DROPS Design: Mynstur ne-368
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
750-850-950-1050-1150-1250 g litur 7120, ljós gráblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
21 lykkja á breidd og 27 umferðir á hæð með býkúpumynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7395.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).
Eftir því sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ganga ekki jafnt upp í mynstri, eru prjónaðar í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á eftir / undan A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður í næstu umferð þannig:
Á EFTIR A.1:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat.
Á UNDAN A.1:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður frá hægri öxl að aftan.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, niður að klauf, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-88-88-96-96-100 lykkjur með DROPS Nepal yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroffprjón þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 11 cm.
Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Setjið 1 prjónamerki í umferð – prjónamerkið er notað til að mæla frá síðar.
Lesið ÚTAUKNING og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-5-5-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), A.1 (lykkjur í A.1 eiga að passa yfir lykkjur frá stroffi), prjónið 23-25-25-27-27-29 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 7-11-11-9-9-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki), A.1, prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-5-5-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), A.1, prjónið 23-25-25-27-27-29 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út um 7-11-11-9-9-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (bakstykki), A.1 = 100-112-112-124-124-124 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið fyrstu umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, A.2 (ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.3A, prjónið A.3B alls 3-4-4-4-4-4 sinnum, A.3C (framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.2 (ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.3, prjónið A.3B alls 3-4-4-4-4-4 sinnum, A.3C (bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1 (= 8 lykkjur fleiri).

Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu á eftir / undan A.1 í hverri skiptingu á milli erma og framstykkis / bakstykkis í annarri hverri umferð alls 18-21-21-15-18-24 sinnum (meðtalin útaukning í fyrstu umferð) = 244-280-280-244-268-316 lykkjur – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í MYNSTUR eins og útskýrt er að ofan.
Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 12-12-12-24-24-24 sinnum á framstykki / bakstykki og 6-6-6-12-12-12 sinnum á ermum.

Nú hefur verið aukið út alls 30-33-33-39-42-48 sinnum á framstykki / bakstykki og 24-27-27-27-30-36 sinnum á ermum. Það eru 316-352-352-388-412-460 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-24-29-31-36 cm frá prjónamerki sem var sett eftir kant í hálsmáli.
Ef stykkið mælist minna en þetta er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út lykkjum.
Í næstu umferð, prjónið mynstur eins og áður án þess að auka út jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.1 með því að prjóna 3. og 4. lykkju í A.1 slétt saman (4 lykkjur færri) = 312-348-348-384-408-456 lykkjur í umferð.

Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan.
Skiptingin er gerð mitt í hverri mynstureiningu A.1, þ.e.a.s. 3 lykkjur tilheyra ermum og 3 lykkjur tilheyra framstykki / bakstykki.
Byrjið 3 lykkjum á undan byrjun á umferð, þ.e.a.s. mitt í síðustu mynstureiningu með A.1 í umferð, setjið fyrstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-12-18-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 96-108-108-120-126-138 lykkjur mynstur eins og áður (framstykki – ATH: Lykkjur í A.1 eru núna inni í A.3), setjið næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-12-18-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 96-108-108-120-126-138 lykkjur í mynstri eins og áður (bakstykkið – lykkjur í A.1 eru núna prjónaðar inn í A.3).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 204-228-240-264-288-312 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-12-12-18-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur – haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við lykkjur frá berustykki.
Þegar stykkið mælist 25-25-27-23-23-20 cm frá skiptingu, setjið fyrstu 102-114-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 4 (framstykki) og síðustu 102-114-120-132-144-156 lykkjur (bakstykki) hvíla nú á hringprjóni 5.

FRAMSTYKKI:
= 102-114-120-132-144-156 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 3 lykkjur jafnt yfir í umferð = 105-117-123-135-147-159 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm.
Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu.
Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl.

BAKSTYKKI:
Setjið 102-114-120-132-144-156 lykkjur frá bakstykki á hringprjóna 4 og prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Setjið 60-66-66-72-78-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-12-12-18-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-84-96-108 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-12-12-18-18 lykkjur.
Prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur – haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við lykkjur frá berustykki.
Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni).
Fækkið lykkjum svona með 10-5-5-3-2-1 cm millibili alls 3-6-6-9-12-18 sinnum = 60-60-66-66-72-72 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist ca 34-33-34-30-29-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 42-41-42-38-37-32 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.09.2023
Breiting á nafni í mynsturteikningu til A.3A og A.3B

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja

symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Sabine Schmitt wrote:

Welche Größe trägt das Modell auf dem Foto?

07.05.2024 - 12:22

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmitt, meistens tragen unsere Modelle entweder eine Größe S oder eine Größe M, aber um die beste passende Größe zu finden, messen Sie am besten einen ähnlichen Pullover den Sie gerne haben und vergleichen Sie mit der Maßskizze. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!

07.05.2024 - 13:37

country flag Elodie wrote:

Bonjour, une fois les 30 rangs des diagrammes tricotés, comment procéder pour continuer le motif? Merci !

28.01.2024 - 06:23

DROPS Design answered:

Bonjour Élodie, vous continuez à augmenter comme avant et tricotez les augmentations d'abord en jersey jusqu'à ce qu'il y ait suffisamment de mailles pour tricoter une torsade. Bon tricot!

29.01.2024 - 12:07

country flag Alice Kloss wrote:

Ich habe gerade die Blende mit 88 Maschen gestrickt, nun möchtel ich die Maschen für die Ärmel und das Vorder und Rückenteil aufteilen. Hierfür sind meiner Meinung nach zu wenig Maschen in der Anleitung genannt, 2x5 für die Ärmel und 2x 25 für jeweils das Vorder-und Rückenteil, ergibt 60 Maschen. Können Sie mir bitte helfen. Vielen Dank

16.01.2024 - 10:07

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kloss, es sind aber dazu bei der letzten Runde von der Halsblende Machen zugenommen (1 Masche auf jede Ärmel + 11 Maschen beim Vorder- und Rückenteil), dazu sind die 7 Maschen A.1 für den Raglan, so sind es: 5(+1 für die Ärmel)+7 M A.1+25 M (+11 für das Vorderteil)+ 7M A.1+ 5(+1 für die Ärmel)+ 7 M A.1+25 M (+11 für das Rückenteil) + 7 M A.1=88(+24 Zunahmen = 112 M). Viel Spaß beim stricken!

17.01.2024 - 08:33

country flag Antonella wrote:

Mi sembra che il diagramma sia sbagliato. Il simbolo di triangolo nero dovrebbe significare mettere una maglia sul ferro ausiliario sul davanti ( e non sul dietro) del lavoro altrimenti non si forma il motivo

16.12.2023 - 20:19

DROPS Design answered:

Buongiorno Antonella, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto la legenda. Buon lavoro!

19.12.2023 - 08:59

country flag Jz wrote:

In previous answer you misunderstood my question/comment. When I used 16 stitches, I got only 9 cm in length instead of required 10cm. Based on explanation in Design I should switch to smaller needle. I think that I should switch to larger needle. …… NOTE Needle size is only a guide. If you get too many stitches on 10 cm, change to a larger needle size. If you get too few stitches on 10 cm, change to a smaller needle size. ……

17.11.2023 - 14:31

DROPS Design answered:

Dear JZ, if you get 9 cm with 16 sts, this means approx 18 sts for 10 cm, you have too many stitches for 10 cm, and your stitches too small you should try again with larger needles. Read more here. Happy knitting!

20.11.2023 - 09:00

country flag Jz wrote:

NOTE: Needle size is only a guide. If you get too many stitches on 10 cm, change to a larger needle size. If you get too few stitches on 10 cm, change to a smaller needle size. I think it should be just opposite.. if gauge asks 16st for 10cm but I get only 9cm using 16st (to few) - I would choose larger needle. Explanation is just opposite. Maybe I read it incorrectly.

16.11.2023 - 22:29

DROPS Design answered:

Hi Jz, If you have 9 sts on your 10 cm swatch (instead of 16), your stitches are too big, so you need a smaller needle size to correct this. Happy knitting!

17.11.2023 - 06:44

country flag Ingrid De Kegel wrote:

Dag Drops Design, Voor de opmerking van de Zweden in verband met de fout in het telpatroon heb ik de oplossing gevonden denk ik. Als ik A3B als het begin brei, dan 4 keer A3A, en dan A3C als het einde, dan klopt de stekentelling. Dus A3B moet A3A genoemd worden en A3A moet A3B genoemd worden, een kleine vergissing . Klopt mijn theorie?

16.09.2023 - 15:00

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Bedankt! Er was inderdaad een fout gemaakt met de benaming van de patronen en het is inmiddels aangepast.

05.10.2023 - 06:23

country flag Deraze Isabelle wrote:

Comment connaitre le nombre de pelotes pour une taille XL sur votre site(14 pelotes pour 38-40,aiguilles 5). merci.

13.09.2023 - 11:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Deraze, vous trouverez toujours la quantité nécessaire indiquée, au poids, pour chaque taille, dans l'en-tête du modèle, autrement dit, il faut ici en XL 1050 g DROPS Nepal/50 g la pelote = 21 pelotes en taille XL. Utilisez notre convertisseur si vous souhaitez utiliser une autre alternative. Bon tricot!

13.09.2023 - 13:21

country flag Kristina wrote:

Det måste stå fel i beskrivningen när det gäller A3A+B och C. Det går inte ihop. Har nu repat flera gånger. Stickar i S.

04.09.2023 - 15:46

DROPS Design answered:

Hei Kristina Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan dobbeltsjekke og evnt komme med en rettelse. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 14:23

country flag Anita Lüthcke Larsen wrote:

Hei, Jeg tror det står feil i oppskriften. Det står at man skal strikke A3A, og så A3B totalt 4 ganger, før man avslutter med A3C. Har dere skrevet feil "navn" på de forskjellige mønsterdelene? For jeg regner med at vi skal begynne med den dere kaller A3B, Så strikke A3A 4 ganger, og så avslutte med A3C. Blir det riktig?

04.09.2023 - 14:18

DROPS Design answered:

Hei Anita Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan dobbeltsjekke og evnt komme med en rettelse. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 14:23