Oversized Hug |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-21 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI / 9 kantlykkjur að framan + 2 lykkjur sléttprjón: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI / 9 kantlykkjur að framan + 2 lykkjur sléttprjón: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur perluprjón. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 40-41-42-43-44-45 cm og 48-49-50-51-52-53 cm. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Kantar að framan eru prjónaðir í perluprjóni. Framstykkin og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og stykkið skiptist upp fyrir klauf. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur efst í hvorum kanti að framan fyrir kant í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 16-16-18-18-20-20 lykkjur á hringprjón 9 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 22-24-24-26-26-28 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 60-64-66-70-72-76 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Notið hringprjón 9, fitjið upp 9 nýjar lykkjur (kantur að framan) á prjóninn og prjónið upp 22-24-24-26-26-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónuð er upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki) = 31-33-33-35-35-37 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: PERLUPRJÓN yfir fyrstu 9 lykkjur (kantur að framan) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið er út á eftir 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni + 2 lykkjur sléttprjón – munið eftir ÚTAUKNING frá réttu. Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) 6-6-7-7-8-8 sinnum, síðan í 6. hverri umferð (3. hverri umferð frá réttu) 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-27-28-30-31-32 cm, geymið stykkið (útaukningu fyrir hálsmáli er ekki lokið), passið uppá að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Notið hringprjón 9, prjónið upp 22-24-24-26-26-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki og fitjið upp 9 nýjar lykkjur í lok umferðar (kantur að framan) = 31-33-33-35-35-37 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: Prjónið sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið perluprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið er út um 9 lykkjur á undan kantlykkjum að framan í garðaprjóni + 2 lykkjur sléttprjón – munið eftir ÚTAUKNING (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) 6-6-7-7-8-8 sinnum, síðan í 6. hverri umferð (3. hverri umferð frá réttu) 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-27-28-30-31-32 cm, er prjónað þannig – frá röngu: Prjónið yfir lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 4-4-6-8-12-12 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið frá röngu yfir 60-64-66-70-72-76 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-4-6-8-12-12 nýjar lykkjur, prjónið frá röngu yfir lykkjur frá vinstra framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og perluprjóni eins og áður. Haldið áfram með útaukningu fyrir hálsmáli á framstykkjum. Þegar útaukning hefur verið gerð til loka, eru 146-154-162-174-186-194 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki, byrjið affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm – mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Setjið fyrstu og síðustu 41-43-45-48-51-53 lykkjur á þráð, haldið eftir 64-68-72-78-84-88 lykkjum á bakstykki á prjóni. BAKSTYKKI: Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 8-9-10-9-8-9 lykkjur jafnt yfir = 72-77-82-87-92-97 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur perluprjón *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur frá vinstra framstykki á prjóninn, prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út 3-6-4-6-8-6 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 44-49-49-54-59-59 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni *, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur perluprjón *, prjónið frá *-* þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið og 9 kantlykkjur að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. Prjónið hægra framstykki á sama hátt, en í gagnstæða átt, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 9 kantlykkjur að framan í perluprjóni, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur perluprjón *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 9, prjónið upp frá réttu 26-27-28-30-31-32 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 14-15-16-16-17-18 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 40-42-44-46-48-50 lykkjur meðfram handvegi. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 2-2-3-4-6-6 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 9 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-4-5-6-8-8 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 9-9-7-7-5-5 cm millibili alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-38-37-37-38 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar. Það eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-11-11-9-14-12 lykkjur jafnt yfir = 40-40-45-45-50-50 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið stroffprjón (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur perluprjón) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 47-46-46-45-45-46 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt við fyrri ermi, þ.e.a.s. prjónið upp 14-15-16-16-17-18 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 26-27-28-30-31-32 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 9, prjónið upp 1 lykkju í hverja af 9 kantlykkjum að framan efst á hægra framstykki, prjónið perluprjón þar til kantur að framan mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm, athugið hvort kantur að framan komi ekki mitt að aftan þegar strekkt er aðeins á stykkinu. Fellið af. Prjónið á sama hátt í kantlykkjur að framan efst á vinstra framstykki. Saumið saman báða kanta að framan mitt að aftan og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Inge Voigt wrote:
Vintervarm
03.08.2023 - 13:27Nathalie Gilbert wrote:
Liberté
03.08.2023 - 12:14