Lavender Romance Cardigan |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 9, 19 og 29 cm. M: 9, 19 og 29 cm. L: 9, 19 og 29 cm. XL: 9, 18, 27 og 36 cm. XXL: 9, 18, 27 og 36 cm. XXXL: 9, 18, 27 og 36 cm. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handvegi. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað áfram fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að ermakúpu, síðan er afgangur af erminni prjónað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 262-283-297-318-346-374 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroffprjón með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1a, A.2, prjónið A.3a þar til 19 lykkjur eru eftir, A.2, A.1a og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið nú áfram þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1b, A.2, prjónið A.3b þar til 19 lykkjur eru eftir, A.2, A.1b og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.3b hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 9 cm, munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Nú er mynstrið prjónað þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 7 lykkjur í garðaprjóni, A.1b, A.2, prjónið A.4 þar til 19 lykkjur eru eftir JAFNFRAMT er fækkað um 64-69-67-72-84-88 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð, A.2, A.1b og 7 lykkjur í garðaprjóni = 198-214-230-246-262-286 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 18-18-18-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 35-34-35-36-37-38 cm. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Prjónið 52-54-56-58-62-66 lykkjur eins og áður (hægra framstykki), setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, fellið af 2-6-10-14-14-18 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-94-98-102-110-118 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið þær síðan á hjálparprjón/þráð, fellið af 2-6-10-14-14-18 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 52-54-56-58-62-66 lykkjur eins og áður (vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka, hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 52-54-56-58-62-66 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur eins og áður þar til A.4 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina. Síðan er prjónað sléttprjón yfir A.4 að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, prjónið skáhallandi öxl með byrjun frá næstu umferð frá hálsmáli þannig: Prjónið þar til 7-8-8-9-9-10 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-8-8-9-9-10 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við á öxl og alls 3 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 17-17-18-18-19-20 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 17-17-18-18-19-20 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga. Prjónið 1 umferð sléttprjón til baka yfir allar 35-37-38-40-43-46 lykkjur frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist 56-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. SJALKRAGI: Setjið 17-17-18-18-19-20 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið kant að framan og mynstur A.1b og A.2 eins og áður. Jafnframt eru prjónaðar stutta umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjurnar, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjurnar. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 52-54-56-58-62-66 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur eins og áður þar til A.4 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina. Síðan er prjónað sléttprjón yfir A.4 að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, prjónið skáhallandi öxl með byrjun frá næstu umferð frá hálsmáli þannig: Prjónið þar til 7-8-8-9-9-10 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-8-8-9-9-10 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við á öxl og alls 3 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 17-17-18-18-19-20 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 17-17-18-18-19-20 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga. Prjónið 1 umferð sléttprjón til baka yfir allar 35-37-38-40-43-46 lykkjur frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist 56-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. SJALKRAGI: Setjið 17-17-18-18-19-20 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið kant að framan og mynstur A.1b og A.2 eins og áður. Jafnframt eru prjónaðar stutta umferðir þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjurnar, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. BAKSTYKKI: = 90-94-98-102-110-118 lykkjur. Haldið áfram með mynstrið eins og áður þar til A.4 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina og stykkið mælist ca 54-54-54-59-59-59 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, prjónið skáhallandi öxl og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 36-38-39-41-44-47 lykkjur, fellið af næstu 18-18-20-20-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið þar til 7-8-8-9-9-10 lykkjur eru eftir í umferð. Snúið og prjónið til baka. Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-8-8-9-9-10 lykkjur færri í lok hverrar umferðar frá hálsmáli alls 3 sinnum og fækkið JAFNFRAMT um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á fyrstu umferð frá hálsmáli = 35-37-38-40-43-46 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur frá öxl. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 63-70-70-77-77-77 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð, látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroffprjón eins og útskýrt er í A.3a yfir allar lykkjur. Þegar A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3b yfir allar lykkjur alls 4 sinnum á hæðina. Prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 17-20-20-23-23-19 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 46-50-50-54-54-58 lykkjur. Stykkið mælist ca 15 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón að loka máli. Þegar stykkið mælist 17-17-16-17-17-16 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 9-9-11-11-12-12 sinnum = 64-68-72-76-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-45-44-43-42-41 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjón að loka máli. Fellið af þegar ermin mælist ca 47-47-47-47-46-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-2-3-4-4-5 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið sjalkragann mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermakúpuna við handveg og saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Svetla Tsvetkova wrote:
Lavanda dreams
04.08.2023 - 10:04Dianne wrote:
Lacey
04.08.2023 - 01:07