Cable Beach Sweater |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð oversized / stór peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-23 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 til A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um handveg á bakstykki): Fækkið um 1 lykkju yst í hvorri hlið með því að prjóna ystu 2 lykkjurnar saman. Lykkjurnar eru annað hvort prjónaðar slétt saman (ef prjóna á næstu lykkju brugðið / ef prjóna á síðustu lykkju brugðið) eða brugðið saman (ef prjóna á næstu lykkju slétt / ef prjóna á síðustu lykkju slétt). ÚRTAKA-2: Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni og köðlum. Bakstykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni. Bakstykkið er 6 cm lengra en framstykkið. Lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hvorum handveg og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður í sléttprjóni. Kantar eru prjónaðir í stroffprjóni. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónaður er hár kantur í hálsmáli í stroffprjóni sem brotinn er saman inn að stykkinu. FRAMSTYKKI: Byrjið við vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Síðan er hægri öxlin prjónuð áður en stykkið er sett saman fyrir framstykki. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.2 yfir fyrstu 17-17-17-15-15-15 lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 2-4-6-8-10-12 lykkjur og prjónið síðustu lykkju sem fyrstu lykkju í A.1. Eftir fyrstu umferð eru 22-24-26-26-28-30 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, endurtakið e.t.v. 2 síðustu umferð í A.2 þar til stykkið mælist 3-3-4-3-4-5 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.4 yfir fyrstu 19-19-19-17-17-17 lykkjur, prjónið A.1 eins og áður yfir síðustu 3-5-7-9-11-13 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju alls 3 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur í lok síðustu umferðar = 41-43-45-49-51-53 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 2-4-6-8-10-12 lykkjur, prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.1, prjónið A.3 yfir síðustu 17-17-17-15-15-15 lykkjur. Eftir fyrstu umferð eru 22-24-26-26-28-30 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, endurtakið e.t.v. 2 síðustu umferð í A.3 þar til stykkið mælist 3-3-4-3-4-5 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 3-5-7-9-11-13 lykkjur, prjónið A.5 yfir síðustu 19-19-19-17-17-17 lykkjur og fitjið upp 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok fyrstu umferðar frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum) = 25-27-29-29-31-33 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka (síðasta umferðin er prjónuð frá röngu), setjið stykkin saman fyrir framstykki. FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur frá vinstri og hægri öxl á sama hringprjón 8 (þær 16-16-16-20-20-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp í lok vinstri axlar = hálsmál mitt að framan) = 66-70-74-78-82-86 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið fyrstu umferð þannig: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 3-5-7-9-11-13 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur yfir næstu 15 lykkjur, prjónið A.1 yfir miðju 30 lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram beint yfir lykkjur í A.4 og A.5), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 15 lykkjur og haldið áfram með A.1 yfir síðustu 3-5-7-9-11-13 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu á sama hátt. Nú byrja kaðlar mitt að framan – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 3-5-7-9-11-13 lykkjur, prjónið A.6A, A.6B, A.6C og haldið áfram með A.1 yfir síðustu 3-5-7-9-11-13 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp 2-2-2-4-4-6 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 70-74-78-86-90-98 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í A.1 (= 5-7-9-13-15-19 lykkjur A.1 hvoru megin við A.6). Prjónið A.6 þar til prjónað hefur verið alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 56-56-57-56-57-58 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-56-58-56-58-58 cm, þ.e.a.s. í stærð L og XXL er hægt að prjóna 2 eða 4 umferðir til viðbótar í byrjun á A.6, en endið eftir umferð frá röngu – JAFNFRAMT í síðustu umferð frá röngu (allar stærðir), er aukið út um 4-2-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir fyrstu 5-7-9-13-15-19 lykkjur og síðustu 5-7-9-13-15-19 lykkjur = 78-78-86-94-94-102 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff fram og til baka þannig: A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-3-3-4 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.7A, A.7B, A.7C, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-3-3-4 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 8-8-8-10-10-10 cm. Fellið af aðeins laust. Framstykkið mælist ca 64-64-66-66-68-68 cm frá uppfitjunarkanti. BAKSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Síðan er hægri öxlin prjónuð áður en stykkið er sett saman fyrir bakstykki. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm og prjóna á næstu umferð frá réttu, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 22-24-26-26-28-30 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur, en byrjið A.1 með 1 lykkju brugðið (þetta er gert til að mynstrið komi til með að ganga upp eftir að lykkjur hafa verið fitjaðar upp fyrir hálsmáli mitt að aftan). Þegar stykkið mælist 2 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 1 sinni og 17-17-17-21-21-21 lykkjur 1 sinni = 39-41-43-47-49-51 lykkjur. Nú eru stykkin sett saman fyrir bakstykki. BAKSTYKKI: Setjið lykkjur frá vinstri og hægri öxl á sama hringprjón 8 (þær 17-17-17-21-21-21 lykkjur sem fitjaðar voru upp í lok hægri axlar = hálsmál mitt að aftan) = 61-65-69-73-77-81 lykkjur. Byrjið frá réttu og haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-5-7-6-8-6 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 6-5-7-6-8-6 cm millibili alls 2-3-2-3-2-3 sinnum = 57-59-65-67-73-75 lykkjur. ATH: Lykkjum er fækkað í hvorri hlið á bakstykki til að fá sama form og á framstykki. Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp 2-2-2-4-4-6 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 61-63-69-75-81-87 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í A.1. Þegar stykkið mælist 56-58-58-56-58-58 cm, prjónið ystu 9 lykkjur í hvorri hlið þannig (séð frá réttu): 3 lykkjur í A.1, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt – aðrar lykkjur halda áfram í A.1. Þegar stykkið mælist 62-62-64-62-64-64 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur í A.1, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið sléttprjón yfir næstu 43-45-51-57-63-69 lykkjur og aukið jafnframt út 26-30-30-30-30-36 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar = 87-93-99-105-111-123 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 lykkjur í A.1, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 11-12-13-14-15-17 sinnum, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur í A.1. haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8-8-8-10-10-10 cm. Fellið af aðeins laust. Bakstykkið mælist ca 70-70-72-72-74-74 cm. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. ERMI: Notið stuttan hringprjón 8 og DROPS Snow. Prjónið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur frá réttu innan við 1 lykkju meðfram handvegi. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar ermin mælist 2-2-2-4-4-5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið stykkið saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – látið hann fylgja með í stykkinu. Þegar ermin mælist 6-6-6-8-7-8 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 6-6-4½-4½-3½-3½ cm millibili alls 5-5-6-6-7-7 sinnum = 34-36-36-38-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-35-34-33-32-31 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Það eru ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-12-18-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54-54-54-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroffprjón hringinn (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR-2: Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana – byrjið sauminn við handveg og saumið niður að stroffi á framstykki (klaufin mælist 8-8-8-10-10-10 cm á framstykki og 14-14-14-16-16-16 cm á bakstykki). Saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 6 og DROPS Snow. Prjónið upp frá réttu ca 72-72-78-84-84-90 lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 6). Prjónið stroffprjón (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn í 20-20-20-22-22-22 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum við hvern axlasaum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Magda wrote:
Dzień dobry, Nie mogę zmaleć schematu A.1, A.2 Mam tylko schematy zaczynające się od A.4.
29.12.2023 - 14:18DROPS Design answered:
Witaj Magdo, schematy A.1 i A.2 znajdują się na samej górze, pod legendą do schematu. Pozdrawiamy!
29.12.2023 - 14:22Anne-Marie Kragh Sørensen wrote:
Hej. Jeg syntes der er en maske for meget, ved start skulder. Har slået 24 masker, derefter 17 masker A2 og 6 masker A1 = 23 masker 🤔🤔
23.12.2023 - 16:06DROPS Design answered:
Hej Anne-Marie, husk også at strikke: "og strik sidste maske som første maske i A.1."
02.01.2024 - 09:35Deloffre wrote:
Bonjour je ne comprends ce symbole dans le diagramme carré noir avec la notation ce carré n'est pas une maille; passer directement au symbole suivant du diagramme merci bien cordialement bonne journée
14.12.2023 - 22:15DROPS Design answered:
Bonjour Mme Deloffre, au 1er rang des diagrammes, on va augmenter (cf jeté = ovale noir), par conséquent, ces mailles n'existent pas encore et sont représentées au 1er rang par un carré noir. Dans A.2 par ex, vous tricotez le 1er rang sur 17 ou 15 mailles (cf taille), et après le 1er rang, vous avez 19 ou 17 mailles. Bon tricot!
15.12.2023 - 08:29L De Rooij wrote:
Hallo! Bij het achterpand moet ik voordat de boordsteek begint in een toer 51 steken in tricotsteek breien, dan moet ik rechte steken breien toch? Hoe meerder ik over deze 51 steken? Deze zijn afwisselend recht en averecht door de gerstekorrelsteek. Alvast bedankt!
29.11.2023 - 22:33DROPS Design answered:
Dag L De Rooij,
tricotsteek is recht aan de goede kant en averecht aan de verkeerde kant. Als je aan de goede kant bent brei je dus al deze 51 steken recht en als je aan de verkeerde kant bent, dan brei je al deze 51 steken averecht.
02.12.2023 - 17:35Lucia Battisti wrote:
Buongiorno ho realizzato il davanti taglia M, ho iniziato il dietro (quasi a metà) come da vostre spiegazioni, mi sembra troppo grande, pur avendo adoperato i ferri più piccoli. Si può realizzare il dietro come il davanti? Grazie
24.11.2023 - 08:01DROPS Design answered:
Buonasera Lucia, questo è un modello che rimane comunque morbido: prima di iniziare ha controllato che il campione corrispondesse a quello indicato? Buon lavoro!
30.11.2023 - 22:56Helena wrote:
Can you please translate this manuall into Czech as well? Thank you.
23.11.2023 - 10:22DROPS Design answered:
Dear Helena, sure - we will add this during few days, so stay in touch! Happy knitting!
29.11.2023 - 12:33Toni wrote:
Can this piece be worked top up instead of top down with cables? I find top down very confusing. Do you have this pattern with instructions for top up? Thank you
21.11.2023 - 20:48Ans Klaassen wrote:
Moet deze trui met rond breinaalden,dat kan ikniet
12.11.2023 - 15:21Emanuela Monaci wrote:
Buongiorno, nei diagrammi A.6C e A.6A secondo me manca una X: nel diagramma A.6C alla RIGA 20 (dal basso) e COLONNA 13 (da sinistra guardando il diagramma) nel diagramma A.6C alla RIGA 20 (dal basso) e COLONNA 12 (da sinistra guardando il diagramma) Potete verificare? In caso contrario non mi quadra la lavorazione..... Grazie Emanuela
02.11.2023 - 16:16DROPS Design answered:
Buongiorno Emanuela, abbiamo inoltrato la sua richiesta al settore design: se ci dovessero essere delle correzioni, il modello verrà corretto direttamente online. Buon lavoro!
30.12.2023 - 11:11Emanuela wrote:
Buongiorno, ho un dubbio sull'avvio: scrivete spalla sinistra con maglione indossato, ma il diagramma A.4 corrisponde alla spalla destra indossato....o sbaglio io?
31.10.2023 - 22:24DROPS Design answered:
Buongiorno Emanuela, le istruzioni sono corrette: si inizia a lavorare dalla spalla sinistra. Buon lavoro!
01.11.2023 - 14:46