DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11000.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cable Beach Sweater

Prjónuð oversized / stór peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 243-23
DROPS Design: Mynstur ee-760
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
1000-1100-1200-1350-1450-1600 g litur 102, marshmallow

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11000.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 til A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um handveg á bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju yst í hvorri hlið með því að prjóna ystu 2 lykkjurnar saman. Lykkjurnar eru annað hvort prjónaðar slétt saman (ef prjóna á næstu lykkju brugðið / ef prjóna á síðustu lykkju brugðið) eða brugðið saman (ef prjóna á næstu lykkju slétt / ef prjóna á síðustu lykkju slétt).

ÚRTAKA-2:
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni og köðlum. Bakstykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni. Bakstykkið er 6 cm lengra en framstykkið.
Lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hvorum handveg og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður í sléttprjóni. Kantar eru prjónaðir í stroffprjóni. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónaður er hár kantur í hálsmáli í stroffprjóni sem brotinn er saman inn að stykkinu.

FRAMSTYKKI:
Byrjið við vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Síðan er hægri öxlin prjónuð áður en stykkið er sett saman fyrir framstykki.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.2 yfir fyrstu 17-17-17-15-15-15 lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 2-4-6-8-10-12 lykkjur og prjónið síðustu lykkju sem fyrstu lykkju í A.1. Eftir fyrstu umferð eru 22-24-26-26-28-30 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, endurtakið e.t.v. 2 síðustu umferð í A.2 þar til stykkið mælist 3-3-4-3-4-5 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.4 yfir fyrstu 19-19-19-17-17-17 lykkjur, prjónið A.1 eins og áður yfir síðustu 3-5-7-9-11-13 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju alls 3 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur í lok síðustu umferðar = 41-43-45-49-51-53 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 2-4-6-8-10-12 lykkjur, prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.1, prjónið A.3 yfir síðustu 17-17-17-15-15-15 lykkjur. Eftir fyrstu umferð eru 22-24-26-26-28-30 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, endurtakið e.t.v. 2 síðustu umferð í A.3 þar til stykkið mælist 3-3-4-3-4-5 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 3-5-7-9-11-13 lykkjur, prjónið A.5 yfir síðustu 19-19-19-17-17-17 lykkjur og fitjið upp 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok fyrstu umferðar frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum) = 25-27-29-29-31-33 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka (síðasta umferðin er prjónuð frá röngu), setjið stykkin saman fyrir framstykki.

FRAMSTYKKI:
Setjið lykkjur frá vinstri og hægri öxl á sama hringprjón 8 (þær 16-16-16-20-20-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp í lok vinstri axlar = hálsmál mitt að framan) = 66-70-74-78-82-86 lykkjur.
Byrjið frá réttu og prjónið fyrstu umferð þannig: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 3-5-7-9-11-13 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur yfir næstu 15 lykkjur, prjónið A.1 yfir miðju 30 lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram beint yfir lykkjur í A.4 og A.5), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 15 lykkjur og haldið áfram með A.1 yfir síðustu 3-5-7-9-11-13 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu á sama hátt.

Nú byrja kaðlar mitt að framan – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 3-5-7-9-11-13 lykkjur, prjónið A.6A, A.6B, A.6C og haldið áfram með A.1 yfir síðustu 3-5-7-9-11-13 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp 2-2-2-4-4-6 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 70-74-78-86-90-98 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í A.1 (= 5-7-9-13-15-19 lykkjur A.1 hvoru megin við A.6).
Prjónið A.6 þar til prjónað hefur verið alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 56-56-57-56-57-58 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-56-58-56-58-58 cm, þ.e.a.s. í stærð L og XXL er hægt að prjóna 2 eða 4 umferðir til viðbótar í byrjun á A.6, en endið eftir umferð frá röngu – JAFNFRAMT í síðustu umferð frá röngu (allar stærðir), er aukið út um 4-2-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir fyrstu 5-7-9-13-15-19 lykkjur og síðustu 5-7-9-13-15-19 lykkjur = 78-78-86-94-94-102 lykkjur.

Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff fram og til baka þannig:
A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-3-3-4 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.7A, A.7B, A.7C, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-2-3-3-4 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 8-8-8-10-10-10 cm. Fellið af aðeins laust. Framstykkið mælist ca 64-64-66-66-68-68 cm frá uppfitjunarkanti.

BAKSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Síðan er hægri öxlin prjónuð áður en stykkið er sett saman fyrir bakstykki.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm og prjóna á næstu umferð frá réttu, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 22-24-26-26-28-30 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp 20-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur, en byrjið A.1 með 1 lykkju brugðið (þetta er gert til að mynstrið komi til með að ganga upp eftir að lykkjur hafa verið fitjaðar upp fyrir hálsmáli mitt að aftan).
Þegar stykkið mælist 2 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 1 sinni og 17-17-17-21-21-21 lykkjur 1 sinni = 39-41-43-47-49-51 lykkjur. Nú eru stykkin sett saman fyrir bakstykki.

BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur frá vinstri og hægri öxl á sama hringprjón 8 (þær 17-17-17-21-21-21 lykkjur sem fitjaðar voru upp í lok hægri axlar = hálsmál mitt að aftan) = 61-65-69-73-77-81 lykkjur.
Byrjið frá réttu og haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 6-5-7-6-8-6 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum svona með 6-5-7-6-8-6 cm millibili alls 2-3-2-3-2-3 sinnum = 57-59-65-67-73-75 lykkjur. ATH: Lykkjum er fækkað í hvorri hlið á bakstykki til að fá sama form og á framstykki.
Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp 2-2-2-4-4-6 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 61-63-69-75-81-87 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í A.1.
Þegar stykkið mælist 56-58-58-56-58-58 cm, prjónið ystu 9 lykkjur í hvorri hlið þannig (séð frá réttu): 3 lykkjur í A.1, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt – aðrar lykkjur halda áfram í A.1.
Þegar stykkið mælist 62-62-64-62-64-64 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur í A.1, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið sléttprjón yfir næstu 43-45-51-57-63-69 lykkjur og aukið jafnframt út 26-30-30-30-30-36 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar = 87-93-99-105-111-123 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 lykkjur í A.1, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 11-12-13-14-15-17 sinnum, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur í A.1. haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8-8-8-10-10-10 cm. Fellið af aðeins laust. Bakstykkið mælist ca 70-70-72-72-74-74 cm.

FRÁGANGUR-1:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn.

ERMI:
Notið stuttan hringprjón 8 og DROPS Snow. Prjónið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur frá réttu innan við 1 lykkju meðfram handvegi. Prjónið sléttprjón fram og til baka.
Þegar ermin mælist 2-2-2-4-4-5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið stykkið saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – látið hann fylgja með í stykkinu.
Þegar ermin mælist 6-6-6-8-7-8 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 6-6-4½-4½-3½-3½ cm millibili alls 5-5-6-6-7-7 sinnum = 34-36-36-38-38-40 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-35-34-33-32-31 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Það eru ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-12-18-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54-54-54-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroffprjón hringinn (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR-2:
Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana – byrjið sauminn við handveg og saumið niður að stroffi á framstykki (klaufin mælist 8-8-8-10-10-10 cm á framstykki og 14-14-14-16-16-16 cm á bakstykki).
Saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 6 og DROPS Snow. Prjónið upp frá réttu ca 72-72-78-84-84-90 lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 6).
Prjónið stroffprjón (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn í 20-20-20-22-22-22 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum við hvern axlasaum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið svo ekki myndist gat
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = prjónstefna
symbols = saumið b við B
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Carlyn wrote:

Nog een vraag over het achterpand bij 56 cm in XL: de steken combinatie zoals aangegeven moet aan de goede kant gebreid worden. Wat doe ik dan aan de verkeerde kant? Gewoon A.1 breien of recht over averecht en averecht over recht (en dus eigenlijk hetzelfde als aan de goede kant) Alvast bedankt voor de reactie!

01.04.2024 - 11:56

DROPS Design answered:

Dag Carlyn,

In de telpatronen staat ook aangegeven hoe je de steken aan de verkeerde kant breit. (Dus recht aan de goede kant, averecht aan de verkeerde kant etc. In he telpatroon staan alle naalden weergegeven. Dus zowel de heengaande als de teruggaande naalden.

03.04.2024 - 20:58

country flag Carlyn wrote:

Hallo, Bij het achterpand moet je als het werk in xl 62cm meet meerderen. Lees ik het goed dat dit moet over de 57 steken in tricotsteek? Kan ik het beste meerderen door 2x in 1 steek te breien, door een omslag of door tussen twee steken een draad op te halen? Wat past het beste bij dit patroon gezien de gaatjes die de laatste 2 methodes veroorzaken? Alvast bedankt voor de reactie!

21.03.2024 - 11:06

DROPS Design answered:

Dag Carlyn,

Je meerdert inderdaad alleen over die 57 steken en niet over de andere steken. Dus je verdeelt de meerderingen over die 57 steken. Zelf meerder ik graag door de draad tussen 2 steken van de vorige naald op te nemen en deze gedraaid te breien. Door hem gedraaid te breien heb je geen last van gaatjes.

21.03.2024 - 20:48

country flag Carlyn wrote:

Hallo, Ik ben bezig met het achterpand en op een gegeven moment moet ik als het werk 56 cm meet, bepaalde steken breien aan de goede kant. Moet ik dit één toer doen of moet ik het zo lezen dat ik vanaf dat moment aan de goede kant deze steken combinatie moet breien? Alvast bedankt voor de reactie!

21.03.2024 - 10:52

DROPS Design answered:

Dag Carlyn,

Vanaf dat moment moet je de steken op die manier breien.

21.03.2024 - 20:45

country flag Carlyn wrote:

Hallo, Ik ben bezig met het achterpand en op een gegeven moment moet ik als het werk 56 cm meet, bepaalde steken breien aan de goede kant. Moet ik dit één toer doen of moet ik het zo lezen dat ik vanaf dat moment aan de goede kant deze steken combinatie moet breien? Alvast bedankt voor de reactie!

21.03.2024 - 10:51

country flag Tina wrote:

Hello! When reading over the “Diagram Explained” I’m not sure what to do with the stich corresponding the black box(no stitch). I understand that I don’t “work” or “slip” the stitch but where do I put it? Should I leave it on the needle and continue knitting, move it to another needle, or let it fall off the needle?

21.03.2024 - 01:30

DROPS Design answered:

Hi Tina, When you come to a black square, work the next stitch according to the square after the black square; e.g., in A.2 S-M-L, working from right to left on the first row, K1, P1, K1, P1, K3, P3, K1, 1 yo, K2, 1 yo, K1, P3. Hope this helps and happy knitting!

21.03.2024 - 06:41

country flag Carlyn wrote:

Bij de linker schouder achter moet je 2 steken opzetten en dan de teruggaande naald breien. De zojuist opgezette steken, moeten die dan juist wel of juist niet gebreid worden?

13.03.2024 - 11:31

DROPS Design answered:

Dag Carlyn

Je zet deze steken op aan het einde van de naald, dan keer je het werk en begin je dus met het breien van de zojuist opgezette steken.

14.03.2024 - 22:06

country flag Birgit wrote:

Der er 4 - 5 billeder til hver opskrift, men aldrig et eneste foto af modellens ryg. Hvorfor?

06.02.2024 - 21:51

DROPS Design answered:

Hei Birgit. Noen oppskriften har bilde bak andre ikke. Som regel er plagget ganske lik foran og bak. Men ditt ønsket om bilde bakfra er oversendt til design avd og fotograf. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 08:02

country flag Charlotte wrote:

Hei! Finner ikke diagram for A.1 - har dette falt ut av oppskriften? Evt hvordan skal det strikkes? Takk på forhånd

02.02.2024 - 18:14

DROPS Design answered:

Hei Charlotte, Diagram A.1 er øverst på høyre siden av diagrammene. Diagrammene finner du på bunnen av oppskriften. God fornøyelse

07.02.2024 - 06:47

country flag Mary Meier-Roeder wrote:

This is related to my previous question? So I only knit that way for one row? And then continue back and forth until it reached 62 cm and then increase the stitches to create the ribbing on the back?

08.01.2024 - 08:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Meier-Roeder, from 56 to 62 cm work A.1 with the 9 sts on each side as explained before, then when piece measures 62 cm knit the middle stitches increasing evenly then start ribbing edge on next row from WS. Happy knitting!

08.01.2024 - 11:10

country flag MARY MEIER-ROEDER wrote:

After reaching 56 cm on the back piece, are you supposed to continue with the A1, knit 2 purl 2 knit 2, A1 rib for the outermost 9 stitches until you reach a length of 62 cm? A photo of the back ofthis sweater would be helpful.

06.01.2024 - 20:10

DROPS Design answered:

Dear Mary, after reaching 56cm, work as follows for the back piece: 3 stitches in A.1, knit 2, purl 2, knit 2, repeat A.1 the whole row until 9 stitches are left, knit 2, purl 2, knit 2, 3 stitches in A.1. Happy knitting!

07.01.2024 - 18:33