Hazy Dream Cardigan |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, v-hálsmáli og víðum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 250-18 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. RANGA: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið – svo það myndist gat, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafn óðum inn í mynstur. ÚTAUKNING-1 (v-hálsmál): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 10 kantlykkjur að framan með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo það myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafn óðum inn í mynstur. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkað er um 2 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við lykkju með merki í þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkjur), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. UMFERÐ 1: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið síðan kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2: Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið og prjónað hefur verið ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu (framstykkið mælist ca 29-30-33-35-36-37 cm, mælt frá öxl), síðan er fellt af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist: XS: 33-38-43-48 cm S: 35-40-45-50 cm M: 37-42-46-51 cm L: 39-44-48-53 cm XL: 40-45-49-54 cm XXL: 41-46-51-56 cm (= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs neðst á framstykki). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Byrjið með að prjóna 2 lausa kanta að framan sem sauma á saman meðfram hnakka við frágang, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli á milli þessa 2 kanta að framan og berustykkið er prjónað ofan frá og niður og fram og til baka á hringprjóna. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = mitt að aftan, síðan eru kantar að framan saumaðir við lykkjur í kringum hálsmál. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 10 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Kid-Silk. Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 17-17-17-19-19-19 cm, endið með síðustu umferð frá réttu, klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan hægri kant að framan. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 10 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Kid-Silk. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 17-17-17-19-19-19 cm, endið með síðustu umferð frá röngu, klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan hægri kant að framan. BERUSTYKKI: Haldið eftir 10 lykkjum frá hægra framstykki á prjóni (síðasta umferð er prjónuð frá röngu), fitjið upp 77-77-77-85-85-85 lykkjur í lok umferðar, setjið inn lykkjur frá vinstri kanti að framan yfir á vinstri prjón og prjónið frá röngu eins og áður yfir þessar 10 lykkjur = 97-97-97-105-105-105 lykkjur. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið. Merkiþræðirnir eru settir í stykkið frá réttu, án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 12 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 35-35-35-43-43-43 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki). Nú er prjónað MYNSTUR fram og til baka jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina (= hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón) – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið vinstri kant að framan með I-cord eins og áður, prjónið A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2, prjónið A.3, prjónið A.4 (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2, prjónið A.3 alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, prjónið A.4 (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2, prjónið A.3, prjónið A.4 (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 og prjónið hægri kantur að framan með I-cord eins og áður = 105-105-105-113-113-113 lykkjur. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, þ.e.a.s. gatamynstur er prjónað á framstykkjum, bakstykki og ermum, 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkja/bakstykkis og erma og 10 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina á framstykkjum, prjónið A.2, A.3 og A.4 yfir þessar lykkjur. Síðan í hvert skipti sem prjónuð er 1 mynstureining á hæðina með A.2, A.3 og A.4, er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri með A.3 á milli A.2 og A.4. Að auki er aukið út fyrir laskalínu og v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. PRJÓNIÐ ÞANNIG: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 28-32-36-36-36-40 sinnum (ásamt útaukningu í fyrstu umferð). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í mynstri fram og til baka og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið út fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 16-14-10-20-18-16 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 0-2-6-0-2-4 sinnum í hvorri hlið. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu mælist stykkið ca 20-23-26-26-26-29 cm frá uppfitjunarkanti aftan í hnakka – útaukning fyrir v-hálsmáli er ekki lokið. Í næstu umferð (= ranga), á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Munið eftir að útaukning fyrir v-hálsmáli er ekki lokið. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður fram að fyrsta merkiþræði (= hægra framstykki), setjið næstu 75-83-91-91-91-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 13-13-13-13-21-21 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 91-99-107-115-115-123 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 75-83-91-91-91-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 13-13-13-13-21-21 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka, þ.e.a.s. prjónið gatamynstur fram og til baka yfir allar lykkjur með 10 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir v-hálsmáli (passið uppá að gatamynstrið passi á hæðina yfir lykkjur frá berustykki). Þegar síðasta útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, eru 229-245-261-277-293-309 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstrið við miðju að framan, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 23-22-20-22-23-22 cm frá skiptingu – munið eftir HNAPPAGAT sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 73-77-77-85-93-97 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið ÚTAUKNING-2 = 302-322-338-362-386-406 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, fellið af með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 75-83-91-91-91-99 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 13-13-13-13-21-21 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 88-96-104-104-112-120 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 13-13-13-13-21-21 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar á undan lykkju með merki. Merkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn með gatamynstri – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-3-3-3-3-3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-3-2½-2½-2½-1½ cm alls 8-12-12-12-12-16 sinnum (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni) = 72-72-80-80-88-88 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-35-35-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-28-28-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 96-96-108-108-116-116 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, fellið af með 2 þráðum. Ermin mælist ca 44-42-40-40-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið saman kanta að framan (= mitt að aftan, saumið síðan kanta að framan við uppfitjunarkantinn aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Flavia wrote:
Summer Cloud
18.01.2024 - 13:00Tonje wrote:
Første som dukket opp var «sommerdrøm» eller «summer dreams»🌱
18.01.2024 - 12:43