DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Little Miss Berry Cardigan

Hekluð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og blúndu kanti, sumarhatti og skór DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.

DROPS Baby 14-5
Alpaca.

DROPS design: Mynstur nr z-028-by-a
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
Peysa:
150-200-200 (250-300) gr nr 3720 millibleikur
+ afgangur af nr 7300 lime og 3140 ljós bleikur (fyrir blóm)
Hattur:
50-50 (100) gr nr 3720 millibleikur
+ afgangur af nr 7300 lime og 3140 ljós bleikur
(fyrir blóm)
Skór:
50-50-50 (50-50) gr nr 3720 millibleikur
+ afgangur af nr 7300 lime og 3140 ljós bleikur (fyrir blóm og kant)

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 stuðlar og 13 umferðir með Alpaca verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉ TALA, ljós NR 503: 5 st fyrir peysu og 2 st fyrir skó.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

ÚRTAKA-1:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla saman 2 stuðla, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

ÚRTAKA-2:
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju/stuðli með 1 keðjulykkju.
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi fastalykkja/stuðla sem fækka á og heklið til baka.

LEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Heklað er í hvern stuðul (ekki á milli).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar hekla á saman nokkra tvíbrugðna stuðla þá er það gert þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta tvíbrugðna stuðulinn en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), haldið svona áfram þar til heklaður hefur verið sá fjöldi með tvíbrugðnum stuðlum sem hekla á saman og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni.
--------------------------------------------------------

PEYSA:

BAKSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR! Heklið 110-120-129 (138-148) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur.
Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán og 2 ára er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 5 síðustu loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum) og í stærð 12/18 mán er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 4 síðustu loftlykkjum = 82-89-96 (103-110) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt því sem fækkað er um 1 stuðul í hvorri hlið alls 12 sinum í stærð 1/3 mán + 6/9 mán: til skiptis í hverri og annarri hverri umferð, stærð 12/18 mán + 2 ára: í annarri hverri umferð, stærð 3/4 ára: til skiptis í annarri hverri umferð og í 3. hverri umferð – sjá ÚRTAKA-1 = 58-65-72 (79-86) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-26) cm fellið af 5-5-6 (6-7) stuðla í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2 = 48-55-60 (67-72) stuðlar eftir. Geymið stykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 61-66-70 (76-80) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur.
Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 4 síðustu loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum) og í stærð 6/9 mán + 12/18 mán er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 5 síðustu loftlykkjum = 45-49-52 (56-59) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið nú 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt því sem lykkjum er fækkað í hlið eins og á bakstykki = 33-37-40 (44-47) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-26) cm – stillið af eftir bakstykki – fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 28-32-34 (38-40) stuðlar. Geymið stykkið.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og vinstra framstykki nema gagnstætt. Að auki er fellt af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = heklið 2 síðustu stuðlana við miðju að framan eins og áður, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, heklið síðan áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðul um loftlykkju.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð 1/3 mán: 5, 11, 16, 22 og 27 cm
Stærð 6/9 mán: 6, 12, 18, 24 og 29 cm
Stærð 12/18 mán: 7, 13, 20, 26 og 33 cm
Stærð 2 ára: 9, 16, 23, 30 og 37 cm
Stærð 3/4 ára: 10, 17, 25, 32 og 40 cm

ERMI:
Heklið 46-49-50 (52-53) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur.
Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán og 12/18 mán er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 5 síðustu loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum) og í stærð 6/9 mán og 3/4 er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 4 síðustu loftlykkjum = 34-36-37 (38-39) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett eitt prjónamerki í stykkið (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út í hvorri hlið með því að hekla 1 auka stuðul í næst ysta stuðul í hvorri hlið með ca 1½ cm millibili (= ca í annarri hverri umferð) alls 6-7-9 (11-13) sinnum = 46-50-55 (60-65) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 15-16-18 (23-27) cm frá prjónamerki eru felldar af 5-5-6 (6-7) stuðlar í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 36-40-43 (48-51) stuðlar. Geymið stykkið og heklið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Heklið nú stykkin saman frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul á hægra framstykki, heklið 1 stuðul í hvern stuðul á hægri ermi, 1 stuðul í hvern stuðul á bakstykki, 1 stuðul í hvern stuðul á vinstri ermi og 1 stuðul í hvern stuðul í vinstra framstykki = 176-199-214 (239-254) stuðlar. Heklið 2 umferðir til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið síðan áfram með stuðla JAFNFRAMT því sem fækkað er um 10-10-10 (11-11) stuðla jafnt yfir í næstu 10-12-13 (14-15) umferðum (ekki er lykkjum fækkað yfir ystu 4 stuðlana í hvorri hlið) – sjá ÚRTAKA-1. Eftir síðustu úrtöku er hekluð 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem fækkað er um 16-17-20 (19-21) stuðla jafnt yfir (ekki yfir ystu 4 lykkjurnar í hvorri hlið) = 60-62-64 (66-68) stuðlar.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant með smáu fínu spori. Saumið hliðarsauma alveg eins og saumið saman op undir ermum.

KRAGI:
Heklið með heklunál 3 og millibleikur þannig – byrjið og endið í 3. stuðli frá miðju að framan og inn á stykki.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð = 56-58-60 (62-64) fastalykkjur, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Heklið 7 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull + 3 loftlykkjur), * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næstu fastalykkju eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman – sjá HEKLLEIÐBEININGAR – að ofan, heklið 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðna stuðla í sömu fastalykkju *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið og endið með 3 loftlykkjum og 1 tvíbrugðnum stuðli í síðustu fastalykkju, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: Heklið 7 loftlykkjur, * í loftlykkjuboga í sjálfum tvíbrugðna stuðla hópnum eru heklaðir 4 tvíbrugðnir stuðlar saman, 4 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar saman og 4 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í 4. loftlykkju sem hekluð var í byrjun á fyrri umferð, snúið stykkinu.

KANTUR Í KRINGUM PEYSU:
Heklið 1 umferð með loftlykkjubogum meðfram öllu opinu á peysunni með heklunál 3 og millibleikur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 6 loftlykkjur, hoppið yfir ca ½ - 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 6 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð – ATH: Í kringum kraga eru heklaðir loftlykkjubogar þannig að 1 fastalykkja komi efst á hverjum tvíbrugðnum stuðlahóp með 6 loftlykkju millibili.

KANTUR Á ERMI:
Heklið 1. og 2. umferð alveg eins og útskýrt er í KRAGI, heklið síðan kant í lokin eins og KANTUR Í KRINGUM PEYSU.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá.
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið ljós bleika blómið ofan á blómið úr lime. Heklið annað blóm alveg eins og saumið blómin á hægra framstykki. Saumið tölur í.
--------------------------------------------------------

HATTUR:
Stærð: 1/3 - 6/18 mån (2/4) ára
Höfuðmál: ca 40/42 - 44/46 (48/50) cm

LEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
--------------------------------------------------------

HATTUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 og millibleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – sjá LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 24 stuðlar.
UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvern og einn af 2 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 stuðlar.
UMFERÐ 5: * 1 stuðull í hvern og einn af 3 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 stuðlar.
UMFERÐ 6: * 1 stuðull í hvern og einn af 4 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar.
UMFERÐ 7: * 1 stuðull í hvern og einn af 5 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 stuðlar.
UMFERÐ 8: * 1 stuðull í hvern og einn af 6 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 stuðlar.
UMFERÐ 9: * 1 stuðull í hvern og einn af 7 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar.
UMFERÐ 10: * 1 stuðull í hvern og einn af 8 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 80 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 1/3 mán.
UMFERÐ 11: * 1 stuðull í hvern og einn af 9 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 88 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 6/18 mán.
UMFERÐ 12: * 1 stuðull í hvern og einn af 10 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 96 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 2/4 ára.
Allar stærðir. Haldið áfram hringinn með stuðlum án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 13-14 (16) cm ofan frá.
Heklið nú 1 umferð með stuðlum með 2 stuðla í 8. hvern stuðul = 90-99 (108) stuðlar í umferð. Heklið 1 umferð með stuðlum án þess að auka út, heklið síðan 1 umferð með stuðlum og með 2 stuðla í 6. hvern stuðul (í stærð 6/18 mán verða 3 stuðlar eftir í umferð á eftir síðustu útaukningu í stað 6) = 105-115 (126) stuðlar í umferð.

KANTUR MEÐ BLÚNDU:
UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 2 tvíbrugðnir stuðlar saman – sjá HEKLLEIÐBEININGAR undir peysu, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman í fyrsta stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta tvíbrugðna stuðlahópinn, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda, hatturinn mælist ca 18-19 (21) cm ofan frá.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 2 blóm eins og áður – sjá útskýringu undir PEYSA – og saumið blómin niður á hattinn.
--------------------------------------------------------

SKÓR:
Lengd fótar: 10-11-12 (14-15) cm

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og í lok umferðar er síðasta fastalykkjan hekluð í loftlykkju í byrjun frá fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðul skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun frá fyrri umferð. Heklað er í hverja fastalykkju/stuðul (ekki á milli).
--------------------------------------------------------

SKÓR:

VINSTRI SKÓR:
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sólanum. Heklið 15-18-20 (25-27) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur.

Fyrsta umferð er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja og ein af næstu 13-16-18 (23-25) loftlykkjur = 15-18-20 (25-27) fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið nú 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð jafnframt er aukið út um 2 fastalykkjur í byrjun og í lok fyrstu umferðar með því að hekla 3 fastalykkjur í fyrstu og síðustu fastalykkju í umferð = 19-22-24 (29-31) fastalykkjur. Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist 3-4-4 (5-5) cm. Fækkið um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 15-18-20 (25-27) fastalykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 3-4-4 (5-5) cm. Klippið frá og festið enda. Setjið eitt prjónamerki í hvert horn = 4 prjónamerki.
Heklið nú stuðla í kringum sólann þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= mitt á annarri skammhliðinni) – heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðul í hvern og einn af næstu 2-3-3 (4-4) stuðlum, 2 stuðlar í hornið, 15-18-20 (25-27) stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið, 5-7-7 (9-9) stuðlar meðfram annarri skammhliðinni (= tá), 2 stuðlar í hornið, 15-18-20 (25-27) stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3 (4-4) stuðlar, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 48-58-62 (76-80) stuðlar.
UMFERÐ 2: Eins og umferð 1 – nema heklið saman 2 stuðla í bæði hornin við tá = 46-56-60 (74-78) stuðlar.
UMFERÐ 3 OG 4: Heklið 2 umferðir með stuðlum án þess að fækka lykkjum. Stykkið mælist nú ca 2 cm á hæðina.

ÖKKLABAND:
Heklið 2 umferðir með stuðlum yfir miðju 5-5-5 (7-7) stuðla mitt að aftan fyrir ökklaband, heklið síðan 33-34-35 (36-37) loftlykkjur í lok síðustu umferðar, snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunál, 1 stuðull í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul (= hnappagat), heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af 27-28-29 (30-31) loftlykkjum sem eftir eru og 1 stuðul í hvern og einn af 5-5-5 (7-7) síðustu stuðlum. Klippið frá og festið enda.

EFRI HLUTI:
Heklið 1 stuðul í hvern og einn af 7-9-9 (11-11) stuðlum mitt framan á skó. Heklið fram og til baka þar til efri hlutinn mælist 4-4-5 (5-6) cm. Klippið frá og festið enda. Saumið efri hlutann að skó í hvora hlið með smáu spori.
Skiptið yfir í ljós bleikur og heklið krabbahekl meðfram öllu opinu á skónum og í kringum alla ökklaólina (krabbahekl = heklið fastalykkjur frá vinstri til hægri).

MIÐJU ÓL:
Heklið 5 fastalykkjur yfir miðju lykkjur framan á skónum með ljós bleikur (1. umferð er hekluð frá bakhlið á krabbahekli). Heklið fram og til baka þar til ólin mælist 6 cm. Brjótið uppá ólina tvöfalda að röngu og saumið niður innan verðu á skónum. Saumið tölu mitt aftan á skó ca ca ½ cm ofan frá.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá.
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið ljós bleika blómið ofan á blómið úr lime og saumið blómið á efri hlutann á skónum.

HÆGRI SKÓR:
Heklið eins og vinstri skór, nema gagnstætt.


Kjóll: SjáDROPS Baby 14-4
Taska: SjáDROPS Baby 14-4

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (180)

country flag Plet wrote:

Bonjour, j'aurais besoin d'explication pour les manches taille 6 mois je monte 49 mailles après le premier rang il reste 36 brides,, a 4 centimètres je dois mettre un marqueur je voudrais savoir exactement ou je dois le positionner ? est ce qu'il doit servir pour les diminutions ou simplement pour la mesure de la hauteur ? merci de votre réponse cordialement MC PLET

19.01.2021 - 10:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Plet, ce marqueur est placé sur les mailles du dernier rang, les mesures suivantes sont indiquées à partir de ce marqueur (début des diminutions par ex.). Quand le gilet est terminé, la manche est repliée ici sur l'endroit. Bon crochet!

19.01.2021 - 13:40

country flag Plet Marie wrote:

Bonjour pouvez me dire pour la manche ou l'on doit faire 49 mailles pour commencer combien de centimètres ça mesure car je travaille avec une autre laine merci de votre réponse cordialement, j'ai bien reçu votre réponse donc 15 centimètres, pouvez vous me dire combien de centimètres, pouvez vous me dire combien de large fera la manche a 16 centimètre de haut (sans les diminutions des emmanchures , merci de votre réponse cordialement MC PLET

05.01.2021 - 11:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Plet, quand toutes les augmentations sont terminées en taille 6/9 mois, vous aurez 50 brides, autrement dit (= règle de 3 sur la base de l'échantillon: (50 x 10)/24= 21 cm environ. Bon crochet!

05.01.2021 - 14:30

country flag Plet wrote:

Bonjour pouvez me dire pour la manche ou l'on doit faire 49 mailles pour commencer combien de centimètres ça mesure car je travaille avec une autre laine merci de votre réponse cordialement PLET MC

04.01.2021 - 12:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Plet, rappelez-vous que ce modèle est calculé sur la base de 24 brides = 10 cm. Pour les manches, si vous montez 49 mailles en l'air (2ème taille), vous devez n'avoir que 36 brides au 1er rang; on monte volontairement plus de mailles en l'air car la chaînette de base est souvent trop serrée, et on saute des mailles en l'air au 1er rang. Vos 36 brides vous donneront ainsi 15 cm. Bon crochet

05.01.2021 - 10:29

country flag Zainab wrote:

Hi, I have another question. What do you mean by bind off on each side? Does it means binding off on each side of every row or it means every side when the row is turned. Please if you can tell me if I am gradually decreasing it to 72 treble or I decrease the treble to 72 in my first row and just continue further till the desired length of 21 cm in case of 12-18 month size. Thank you

05.12.2020 - 03:20

DROPS Design answered:

Dear Zainab, you decrease 1 stitch on each side on every other row (= 1 row decreasing 1 st at the beg + 1 st at the end of the row/ 1 row wihtout dec and repeat these 2 rows). You start with 96 sts and decrease 12 times 1 stitch on each side = 96 - (12x2) = 72 sts remain. When piece measures 21 cm in height, put aside and work front pieces + sleeves - yoke will be then worked over all pieces - see under Crochet the pieces together. Happy crocheting!

07.12.2020 - 07:31

country flag Zainab wrote:

Hi Thank you for the lovely pattern. Can you please post a video about “bind off 1 tr each side a total of 12 times” in relation to 12-18 month old size. I am not able to follow the instructions. Sorry I am ver new to crocheting. Thank you

05.12.2020 - 02:23

DROPS Design answered:

Dear Zainab, this will be worked as explained under Binding off tips-2 and as shown in this video. Happy crocheting!

07.12.2020 - 07:22

country flag Ella Rabes wrote:

The 110 chain for 0-3 month back panel seems extremely long for a 3 month old’s back, even after skipping every 4th chain in row 2 it is still way too long. Same is for front panels. Was this pattern verified?

11.08.2020 - 22:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rabes, Chain stitches are slightly narrower than other stitches and to avoid working the cast-on edge too tight, we simply chain more stitches to begin with. The stitch count will be adjusted on the following row to fit the pattern and measurement chart. Make sure to get the correct tension = 24 dc = 4" - then you will get 82 dc at the end of first row = 34 cm as shown in the chart. Happy crocheting!

12.08.2020 - 08:02

country flag Ulrika Lundin wrote:

Beskrivning på höger framstycke är att man ska virka lika som vänster- fast tvärtom. Till ålder 1 år skall man virka vä framstycke till 21 cm uppnås. Men på hö framstycke ska man ju göra knapphål vid 26 och 33 cm också? Förstår inte? Tacksam för förklaring!

22.03.2020 - 16:20

DROPS Design answered:

Hei Ulrika. De 2 siste knapphullene hekles når forstykkene, bakstykket og ermene hekles sammen og har kommet til den lengden som er oppgitt (26 og 33 cm), og da hekles de som tidligere. God Fornøyelse!

23.03.2020 - 16:07

country flag Jannice King wrote:

Thank you. One more question. When you begin to work the Collar with a row of dc. Do you start on the right side or wrong side of the work.?Beautiful pattern!

05.11.2019 - 09:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs King, you can either start on RS (then the last row will be worked from RS), or from WS (then the 2nd row will be worked from RS), as you prefer. Happy crocheting!

05.11.2019 - 09:17

country flag Jannice King wrote:

Finishing Edge hook no. 3 and old rose Alpaca as follows: 1 dc in the first st, *6 ch, skip 0.5 – 1 cm, 1 dc in the next ch* repeat from *-* and finish with 6 ch and 1 sl st in the first dc from beginning of round –NB: Around the collar crochet ch loops so there will be 1 dc at the top of each dtr group with 6 ch in between. However on the photo it shows a shell pattern along the front opening and edges. Am I missing something ?

04.11.2019 - 18:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs King, this is the finished crocheted edge worked around whole opening of jacket, ie chain-spaces, adjust the width/height of ch-spaces skipping more or less cm (= 0,5 to 1 cm). Happy crocheting!

05.11.2019 - 08:46

country flag Allyson Thickett wrote:

Hello, thank you for the lovely pattern. Is it right that on the back you have to decrease at each end of every other row to 72 sts (12-18mths). This is causing the front to slant rather than be straight. Should I be decreasing where the side seams would be so that it slants at the sides rather than the front. Please advise

10.08.2019 - 15:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Thickett, on back piece you decrease 1 st on each side on every other row, you should decrease the same number of stitch on each side to get the correct slanting. Happy crocheting!

12.08.2019 - 07:30