Little Miss Berry Cardigan |
|
|
|
Hekluð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og blúndu kanti, sumarhatti og skór DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-5 |
|
ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla saman 2 stuðla, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju/stuðli með 1 keðjulykkju. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi fastalykkja/stuðla sem fækka á og heklið til baka. LEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Heklað er í hvern stuðul (ekki á milli). HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar hekla á saman nokkra tvíbrugðna stuðla þá er það gert þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta tvíbrugðna stuðulinn en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), haldið svona áfram þar til heklaður hefur verið sá fjöldi með tvíbrugðnum stuðlum sem hekla á saman og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. -------------------------------------------------------- PEYSA: BAKSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Heklið 110-120-129 (138-148) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán og 2 ára er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 5 síðustu loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum) og í stærð 12/18 mán er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 4 síðustu loftlykkjum = 82-89-96 (103-110) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt því sem fækkað er um 1 stuðul í hvorri hlið alls 12 sinum í stærð 1/3 mán + 6/9 mán: til skiptis í hverri og annarri hverri umferð, stærð 12/18 mán + 2 ára: í annarri hverri umferð, stærð 3/4 ára: til skiptis í annarri hverri umferð og í 3. hverri umferð – sjá ÚRTAKA-1 = 58-65-72 (79-86) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-26) cm fellið af 5-5-6 (6-7) stuðla í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2 = 48-55-60 (67-72) stuðlar eftir. Geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 61-66-70 (76-80) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 4 síðustu loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum) og í stærð 6/9 mán + 12/18 mán er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 5 síðustu loftlykkjum = 45-49-52 (56-59) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið nú 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt því sem lykkjum er fækkað í hlið eins og á bakstykki = 33-37-40 (44-47) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-26) cm – stillið af eftir bakstykki – fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 28-32-34 (38-40) stuðlar. Geymið stykkið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið eins og vinstra framstykki nema gagnstætt. Að auki er fellt af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = heklið 2 síðustu stuðlana við miðju að framan eins og áður, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, heklið síðan áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðul um loftlykkju. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð 1/3 mán: 5, 11, 16, 22 og 27 cm Stærð 6/9 mán: 6, 12, 18, 24 og 29 cm Stærð 12/18 mán: 7, 13, 20, 26 og 33 cm Stærð 2 ára: 9, 16, 23, 30 og 37 cm Stærð 3/4 ára: 10, 17, 25, 32 og 40 cm ERMI: Heklið 46-49-50 (52-53) frekar lausar loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina en í stærð 1/3 mán og 12/18 mán er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 5 síðustu loftlykkjum (í stað 3 síðustu loftlykkjum) og í stærð 6/9 mán og 3/4 er endað með 1 stuðli í hverja og eina af 4 síðustu loftlykkjum = 34-36-37 (38-39) stuðlar, snúið stykkinu. Heklið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett eitt prjónamerki í stykkið (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út í hvorri hlið með því að hekla 1 auka stuðul í næst ysta stuðul í hvorri hlið með ca 1½ cm millibili (= ca í annarri hverri umferð) alls 6-7-9 (11-13) sinnum = 46-50-55 (60-65) stuðlar. Þegar stykkið mælist ca 15-16-18 (23-27) cm frá prjónamerki eru felldar af 5-5-6 (6-7) stuðlar í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 36-40-43 (48-51) stuðlar. Geymið stykkið og heklið aðra ermi alveg eins. BERUSTYKKI: Heklið nú stykkin saman frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul á hægra framstykki, heklið 1 stuðul í hvern stuðul á hægri ermi, 1 stuðul í hvern stuðul á bakstykki, 1 stuðul í hvern stuðul á vinstri ermi og 1 stuðul í hvern stuðul í vinstra framstykki = 176-199-214 (239-254) stuðlar. Heklið 2 umferðir til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið síðan áfram með stuðla JAFNFRAMT því sem fækkað er um 10-10-10 (11-11) stuðla jafnt yfir í næstu 10-12-13 (14-15) umferðum (ekki er lykkjum fækkað yfir ystu 4 stuðlana í hvorri hlið) – sjá ÚRTAKA-1. Eftir síðustu úrtöku er hekluð 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem fækkað er um 16-17-20 (19-21) stuðla jafnt yfir (ekki yfir ystu 4 lykkjurnar í hvorri hlið) = 60-62-64 (66-68) stuðlar. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant með smáu fínu spori. Saumið hliðarsauma alveg eins og saumið saman op undir ermum. KRAGI: Heklið með heklunál 3 og millibleikur þannig – byrjið og endið í 3. stuðli frá miðju að framan og inn á stykki. UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð = 56-58-60 (62-64) fastalykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 7 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull + 3 loftlykkjur), * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næstu fastalykkju eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman – sjá HEKLLEIÐBEININGAR – að ofan, heklið 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðna stuðla í sömu fastalykkju *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið og endið með 3 loftlykkjum og 1 tvíbrugðnum stuðli í síðustu fastalykkju, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 7 loftlykkjur, * í loftlykkjuboga í sjálfum tvíbrugðna stuðla hópnum eru heklaðir 4 tvíbrugðnir stuðlar saman, 4 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar saman og 4 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í 4. loftlykkju sem hekluð var í byrjun á fyrri umferð, snúið stykkinu. KANTUR Í KRINGUM PEYSU: Heklið 1 umferð með loftlykkjubogum meðfram öllu opinu á peysunni með heklunál 3 og millibleikur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 6 loftlykkjur, hoppið yfir ca ½ - 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 6 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð – ATH: Í kringum kraga eru heklaðir loftlykkjubogar þannig að 1 fastalykkja komi efst á hverjum tvíbrugðnum stuðlahóp með 6 loftlykkju millibili. KANTUR Á ERMI: Heklið 1. og 2. umferð alveg eins og útskýrt er í KRAGI, heklið síðan kant í lokin eins og KANTUR Í KRINGUM PEYSU. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið ljós bleika blómið ofan á blómið úr lime. Heklið annað blóm alveg eins og saumið blómin á hægra framstykki. Saumið tölur í. -------------------------------------------------------- HATTUR: Stærð: 1/3 - 6/18 mån (2/4) ára Höfuðmál: ca 40/42 - 44/46 (48/50) cm LEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. -------------------------------------------------------- HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 og millibleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – sjá LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvern og einn af 2 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 stuðlar. UMFERÐ 5: * 1 stuðull í hvern og einn af 3 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 stuðlar. UMFERÐ 6: * 1 stuðull í hvern og einn af 4 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 7: * 1 stuðull í hvern og einn af 5 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 stuðlar. UMFERÐ 8: * 1 stuðull í hvern og einn af 6 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 stuðlar. UMFERÐ 9: * 1 stuðull í hvern og einn af 7 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar. UMFERÐ 10: * 1 stuðull í hvern og einn af 8 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 80 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 1/3 mán. UMFERÐ 11: * 1 stuðull í hvern og einn af 9 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 88 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 6/18 mán. UMFERÐ 12: * 1 stuðull í hvern og einn af 10 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 96 stuðlar. Endið útaukningu hér í stærð 2/4 ára. Allar stærðir. Haldið áfram hringinn með stuðlum án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 13-14 (16) cm ofan frá. Heklið nú 1 umferð með stuðlum með 2 stuðla í 8. hvern stuðul = 90-99 (108) stuðlar í umferð. Heklið 1 umferð með stuðlum án þess að auka út, heklið síðan 1 umferð með stuðlum og með 2 stuðla í 6. hvern stuðul (í stærð 6/18 mán verða 3 stuðlar eftir í umferð á eftir síðustu útaukningu í stað 6) = 105-115 (126) stuðlar í umferð. KANTUR MEÐ BLÚNDU: UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 2 tvíbrugðnir stuðlar saman – sjá HEKLLEIÐBEININGAR undir peysu, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman í fyrsta stuðul, * hoppið yfir ca 2 - 2½ cm, í næsta stuðul eru heklaðir 3 tvíbrugðnir stuðlar saman, 3 loftlykkjur og 3 tvíbrugðnir stuðlar saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju efst í fyrsta tvíbrugðna stuðlahópinn, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta tvíbrugðna stuðlahóp *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 6 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda, hatturinn mælist ca 18-19 (21) cm ofan frá. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 2 blóm eins og áður – sjá útskýringu undir PEYSA – og saumið blómin niður á hattinn. -------------------------------------------------------- SKÓR: Lengd fótar: 10-11-12 (14-15) cm HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og í lok umferðar er síðasta fastalykkjan hekluð í loftlykkju í byrjun frá fyrri umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðul skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun frá fyrri umferð. Heklað er í hverja fastalykkju/stuðul (ekki á milli). -------------------------------------------------------- SKÓR: VINSTRI SKÓR: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sólanum. Heklið 15-18-20 (25-27) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur. Fyrsta umferð er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja og ein af næstu 13-16-18 (23-25) loftlykkjur = 15-18-20 (25-27) fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið nú 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð jafnframt er aukið út um 2 fastalykkjur í byrjun og í lok fyrstu umferðar með því að hekla 3 fastalykkjur í fyrstu og síðustu fastalykkju í umferð = 19-22-24 (29-31) fastalykkjur. Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist 3-4-4 (5-5) cm. Fækkið um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 15-18-20 (25-27) fastalykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 3-4-4 (5-5) cm. Klippið frá og festið enda. Setjið eitt prjónamerki í hvert horn = 4 prjónamerki. Heklið nú stuðla í kringum sólann þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= mitt á annarri skammhliðinni) – heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðul í hvern og einn af næstu 2-3-3 (4-4) stuðlum, 2 stuðlar í hornið, 15-18-20 (25-27) stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið, 5-7-7 (9-9) stuðlar meðfram annarri skammhliðinni (= tá), 2 stuðlar í hornið, 15-18-20 (25-27) stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3 (4-4) stuðlar, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 48-58-62 (76-80) stuðlar. UMFERÐ 2: Eins og umferð 1 – nema heklið saman 2 stuðla í bæði hornin við tá = 46-56-60 (74-78) stuðlar. UMFERÐ 3 OG 4: Heklið 2 umferðir með stuðlum án þess að fækka lykkjum. Stykkið mælist nú ca 2 cm á hæðina. ÖKKLABAND: Heklið 2 umferðir með stuðlum yfir miðju 5-5-5 (7-7) stuðla mitt að aftan fyrir ökklaband, heklið síðan 33-34-35 (36-37) loftlykkjur í lok síðustu umferðar, snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunál, 1 stuðull í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul (= hnappagat), heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af 27-28-29 (30-31) loftlykkjum sem eftir eru og 1 stuðul í hvern og einn af 5-5-5 (7-7) síðustu stuðlum. Klippið frá og festið enda. EFRI HLUTI: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af 7-9-9 (11-11) stuðlum mitt framan á skó. Heklið fram og til baka þar til efri hlutinn mælist 4-4-5 (5-6) cm. Klippið frá og festið enda. Saumið efri hlutann að skó í hvora hlið með smáu spori. Skiptið yfir í ljós bleikur og heklið krabbahekl meðfram öllu opinu á skónum og í kringum alla ökklaólina (krabbahekl = heklið fastalykkjur frá vinstri til hægri). MIÐJU ÓL: Heklið 5 fastalykkjur yfir miðju lykkjur framan á skónum með ljós bleikur (1. umferð er hekluð frá bakhlið á krabbahekli). Heklið fram og til baka þar til ólin mælist 6 cm. Brjótið uppá ólina tvöfalda að röngu og saumið niður innan verðu á skónum. Saumið tölu mitt aftan á skó ca ca ½ cm ofan frá. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið ljós bleika blómið ofan á blómið úr lime og saumið blómið á efri hlutann á skónum. HÆGRI SKÓR: Heklið eins og vinstri skór, nema gagnstætt. Kjóll: SjáDROPS Baby 14-4 Taska: SjáDROPS Baby 14-4 |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (180)
LECOMTE Sylviane wrote:
Madame, C'est pas hasard, je suis tombée sur votre site en regardant la laine d'Alpaga et je l'ai regardé...
30.04.2023 - 15:25Jaye Hubarth wrote:
I'm having trouble understanding the instructions for crocheting together. It says to crochet from right side by crocheting 1tr in each tr. Are these up the sides?
22.03.2023 - 16:21DROPS Design answered:
Dear Mrs Hubarth, you will now crochet all pieces together for the round yoke, this means starting from RS crochet 1 stitch in each of the stitches on front piece, then on right sleeve, then on back piece, left sleeve and left front piece. Happy crocheting!
23.03.2023 - 09:19Rikke wrote:
Hej. I teksten på venstre forstk. står der”Videre hækles der 1st i hver st samtidig med at der tages ind i siden som rygstk. “ Men på rygstk. Er der i HVER side- og en reduktion på 24 st. Men her på sidestk. Skal jeg kun reducere med 12 st? Er det så kun den ENE side? Og hvilken? Er det stadig 12 rækker? Syntes opskriften er meget mangelfuld. Håber I kan uddybe Vh Rikke
29.01.2023 - 17:28DROPS Design answered:
Hej Rikke, du tager ind i siden, lige som du tog ind på rygstykket. Stykkerne skal sys sammen i siden til sidst :)
31.01.2023 - 11:56Jenny Quintero wrote:
Hola, gracias por aclarar mis dudas. Me gusta mucho este cardigan.
31.08.2021 - 20:09Jenny Quintero wrote:
Unir las piezas a ganchillo: al empezar a tejer el canesú para la talla 12/18 ¿cuantas hileras son en total? ¿17?
27.08.2021 - 19:04DROPS Design answered:
Hola Jenny, después de unir las piezas (1 fila), se trabajan 2 filas con 1 p.a en cada p.a y después se trabajan 13 filas con disminuciones y 1 fila más con otro tipo de disminuciones; en total son 17 filas.
30.08.2021 - 19:10Jenny Quintero wrote:
Abajo de Manga, al final(rem 5-5-6 (6-7) p.a., no solamente 5 p.a.): .... Cuando la pieza mida aprox 15-16-18 (23-27) cm a partir del marcapuntos, rem 5-5-6 (6-7) p.a. en cada lado . No entiendo ¿cual fue la corrección?
27.08.2021 - 18:48DROPS Design answered:
Hola Jenny, esta corrección es de 2014, por lo que el patrón completo ya tiene la corrección incluida, no hay que tener en cuenta el tip; eso es solo para aquellos que tenían el patrón impreso antes de la fecha indicada. En todo caso, hace referencia a que la cantidad de p.a rematados varía según la talla y no es 5 p.a para todas, solo para algunas.
30.08.2021 - 19:12Julia wrote:
Continue to crochet 1 dc in each dc at the same time dec 1 dc each side a total of 12 times for Size 1/3 month + 6/9 month: Alternate between every and every other row What does this mean please? Alternate between every and every other row. really doesnt make an ounce of sense to me
27.02.2021 - 18:39DROPS Design answered:
Dear Julia, decrease like this: *work 1 row decreasing, work 1 row without decreasing, work 1 row decreasing*, and repeat these 3 rows a total of 6 times = you have decreased 12 sts on each side. Happy crocheting!
01.03.2021 - 08:38Plet wrote:
Bonjour pouvez vous me dire combien l'encolure de ce gilet doit faire de hauteur une fois fini les diminutions, merci de votre réponse cordialement MC PLET
03.02.2021 - 09:14DROPS Design answered:
Bonjour Mme Plet, vous retrouverez ces mesures dans le schéma: l'empiècement terminé mesure de 11 à 15 cm selon la taille. Bon crochet!
03.02.2021 - 09:52Zainab wrote:
Hello, I am struggling to understand the binding off for button hole. If the length of the front and back pieces is 21 cm in case of 12-18 month size, then how can I bind off at length of 7, 13, 20, 26 & 33 cm (26 and 33 cm is above 21 cm length of the pieces). Please also can you share a video that helps in instructions for sewing the parts together. Thank you Zainab
29.01.2021 - 04:38DROPS Design answered:
Dear Zainab, the yoke part of the cardigan is worked under Crochet the pieces together, look at this section, you will read how to crochet both pieces (front piece, sleeve, back piece, sleeve, front piece) together and decrease for yoke. Happy crocheting!
29.01.2021 - 08:13Plet wrote:
Bonjour sachant que je fais ce gilet avec une autre laine pouvez me dire combien fera l'encolure après les diminution pour la taille 6 mois merci de votre réponse cordialement MC PLET
20.01.2021 - 16:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Plet, lorsque toutes les diminutions de l'empiècement sont terminées, il vous restera 62 brides soit 26 cm environ. Bon crochet!
20.01.2021 - 16:56