Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= fl í l | |
= st í l | |
= ll | |
= st um ll | |
= 1 kúla með 4 tbst: Heklið 1 tbst í næsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 tbst í hvern og einn af næstu 3 st alveg eins, dragið síðan bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni. | |
= tbst í l | |
= fyrsta umf er útskýrð í uppskrift | |
= 1 fl um ll | |
= 2 st í sömu l | |
= heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í hvern og einn af næstu 2 st alveg eins, dragið síðan bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni. | |
= 7 st í sömu ll/st | |
= byrjið að hekla þessa umferð |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Peach Dream |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð ferhyrnd peysa úr DROPS Paris með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 170-26 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umf með fl byrjar á 1 ll (kemur í stað fyrstu fl). Hver umf með st byrjar á 3 ll (kemur í stað fyrsta st). Hver umf með tbst byrjar á 4 ll (kemur í stað fryst tbst). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í/um sömu l. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermar): Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram til næstu umf með 1 fl um næsta ll-boga (= fyrsti ll-boginn í næstu umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu ll í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. ATH: PASSIÐ VEL UPPÁ AÐ PRJÓNAMERKIÐ FÆRIST EKKI TIL! ÚRTAKA: Heklið 1 fl um næsta ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næstu fl um næsta ll-boga (ekki eru heklaðar 5 ll á milli fl), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA Heklið 207-229-252-275 ll með heklunál nr 5 með Paris. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 3-5-3-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 165-183-201-219 st. Heklið síðan NÆST SÍÐUSTU umf í mynstri A.1 til A.5 – sjá ör í mynstri – þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 4 st, heklið A.2 yfir næstu 6 st, endurtakið A.3 þar til 11 st eru eftir (= alls 24-27-30-33 sinnum á breiddina), heklið A.4 yfir næstu 7 st og endið á A.5. Heklið síðustu umf af A.1 til A.5. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið síðan A.1 til A.5 á hæðina. ATH: Fyrsta umf í mynstri er ekki hekluð, hún sýnir hvernig næsta umf er hekluð í l frá fyrri umf. Þegar stykkið mælist 37-38-41-42 cm, passið uppá að næsta umf sé með st og frá réttu (klippið frá ef næsta umf sé frá röngu), skiptið stykkinu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.1 og A.2 eins og áður, endurtakið A.3 yfir næstu 36-42-48-54 st (= alls 6-7-8-9 sinnum á breiddina), heklið A.4 og síðan A.5, snúið stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur yfir þessar l þar til stykkið mælist 18-19-20-21 cm frá þar sem stykkinu var skipt upp, passið að næsta umf sé með st og frá röngu (klippið frá ef næsta umf sé frá réttu). BAKSTYKKI: Heklið frá réttu þannig: Heklið A.1, A.2, endurtakið A.3 yfir næstu 30-36-42-48 st (= alls 5-6-7-8 sinnum á breidd), A.4, endið á A.5. Haldið svona áfram með mynstur yfir þessar l þar til stykkið mælist 18-19-20-21 cm, mátið mynstrið við hægra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið eins og hægra framstykki. FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Heklið síðan stykkin saman frá röngu (þ.e.a.s. heklið frá vinstra framstykki, yfir bakstykki og að hægra framstykki) með mynstri eins og áður, þ.e.a.s. heklið frá röngu þannig: Heklið A.5 og A.4 eins og áður, A.3 alls 24-27-30-33 sinnum á breidd, A.2, endið á A.1. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 63-67-73-77 cm alls, passið að næsta umf sé með st, aukið út um 4-2-0-14 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 169-185-201-233 st. Heklið síðan næstu umf þannig: A.6 yfir fyrstu 4 st, endurtakið A.7 þar til 5 st eru eftir (= 10-11-12-14 sinnum á breiddina), A.8 yfir næsta st, endið á A.9 yfir síðustu 4 st. Þegar A.6 til A.9 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 71-75-81-85 cm alls. Klippið frá og festið enda. ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Heklið 78-78-83-83 ll með heklunál nr 5 með Paris. UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 13. ll frá heklunálinni, * 5 ll, hoppið yfir 4 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* yfir ll, heklið 1 fl um fyrstu 3 ll = 14-14-15-15 ll-bogar – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram að hekla 5 ll og 1 fl um hvern ll-boga. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 ll-boga á undan prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku til skiptis hvoru megin við prjónamerki með 4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 9-9-10-10 ll-bogar. Þegar stykkið mælist 26 cm, endið umf á 1 kl í síðustu ll mitt undir ermi. Heklið síðan í hring þannig: UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, * 4 st umf fyrsta/næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 32-32-35-35 st. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermarnar á peysuna, saumið í ysta lykkjubogann, passið að saumurinn verði ekki of stífur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (44)
Bibi wrote:
Bonjour j attend votre reponse pour les manches merci
01.04.2016 - 16:24DROPS Design answered:
Bonjour Bibi, votre question est bien prise en compte, merci d'avance pour votre patience.
02.04.2016 - 17:33Bibi wrote:
Ok pour le debut sauf que sur le patron ses indiquer au dessus des ml 1ml au dessus des 3 premieres ml???? Il y a 13 m dans cette arceau ses dans laquel? Et pour le 2 eme rang si je fait 5ml et 1 ms autout de chaques arceau je fais la 1 ere ms dans le 1 er arceau? Ca va donner un petit arceau? Et le 15 eme arceau je fais la ms ou? Comme je vous ai mentionne les explications ne sont pas clair. Pourquoi ne pas avoir fait un video pour montrer clairment comment faire ses arceaux????
30.03.2016 - 17:13DROPS Design answered:
Bonjour Bibi, après la dernière ms dans la dernière ml de la chaînette, crochetez 1 ms dans le 1er arceau du rang (celui de 12 ml) et continuez en arceau de (5 ml, 1 ms) tout le tour. Bon crochet!
05.04.2016 - 08:38Bibi wrote:
Je ne comprend pas les explications des manche ? ? Vous dite qu il se travaille en rond mais où on doit le rejoindre pour faire le rond? Vos explications ne sont pas clair. Si je rejoins en rond après avoir fait les 83m ses impossible de faire 1 ms dans la 13eme ml ? Pouvez vous expliquer le procéder de la manche clairement svp? Et comment faire les arceaux d'y 2 ème tour? Je trouve que ce patron manque d explication clair. Merci
27.03.2016 - 04:24DROPS Design answered:
Bonjour Bibi, les manches se crochètent en rond sur la base d'une chaînette de ml, on crochète ensuite 1 rang d'arceaux, et on termine par 1 ms autour du 1er arceau, on forme ainsi un rond et on continue en arceaux de 5 ml. Bon crochet!
29.03.2016 - 09:44Beaute wrote:
Votre patron ne peu pas fonctionné calculer pour qui reste 165 B déjà sauter 1b et 1b dans chacune des 4 ml suivante 40 fois = 160 + les 2 bride du départ = 162b il manque 3b et il reste à faire 1B dans chacune des 3-5-3-1 ml suivante ? Alors il manque des m au depart dans le 207 m . Expliquer moi en détail . Voir mon autre message plus bas. Merci
18.03.2016 - 02:37DROPS Design answered:
Bonjour Beaute, vous commencez en taille S par une chaînette de 207 ml et crochetez ainsi: 1 B dans la 4ème ml à partir du crochet (2 B - 4 ml "utilisées"), puis 1 B dans chacune des 3 B suivantes (3B - 3 ml), puis *sautez 1 ml, 1 B dans les 4 ml suivante* (4 B - au-dessus de 5 ml), répétez de *-* 40 fois au total (= 160 B crochetées au-dessus de 200 ml) - vous avez un total de 2+3+160= 165 B au-dessus de 4+3+200= 207 ml. Bon crochet!
21.03.2016 - 08:45Beaute wrote:
Bonjour Pouvez vous expliquer 1B dans chacune des 3-5-3-1ml suivante??? Est que vous voulez dire dans les 12 m suivante?? Merci
17.03.2016 - 23:56DROPS Design answered:
Bonjour Beaute, pour que la chaînette de base ne resserre pas l'ouvrage, on va crocheter moins de B que de ml et ainsi, au 1er rang, on saute régulièrement des ml ainsi: 1 B dans la 4ème ml à partir du crochet, puis 1 B dans chacune des 3 ml suiv en taille S et L-1B dans chacune des 5 ml suivantes en taille M et dans la ml suiv en taille XL, puis répétez jusqu'à la fin du rang: *sautez 1 ml, puis 1 B dans chacune des 4 ml suivantes*, vous devez avoir un total de 165-183-201-219B à la fin du 1er rang sur la chaînette de base. Bon crochet!
21.03.2016 - 08:36Beaute wrote:
Comment faire 1 bride autour de la maille. Ses sur le patron drops 170-26. Et en passant votre début de la veste la chainette n à pas le bin nombre de maille s il doit rester 15.
10.03.2016 - 03:37DROPS Design answered:
Bonjour Mme Beaute, la vidéo ci-dessous montre comment faire une bride autour d'une maille ou dans une maille. Après vérification du nbe de ml, vous devez bien monter 207-229-252-275 ml et crocheter le 1er rang ainsi: Crocheter 1 B dans la 4ème ml à partir du crochet (= 2 B), 1 B dans chacune des 3-5-3-1 ml suivantes, *sauter 1 ml, 1 B dans chacune des 4 ml suiv*, répéter 40-44-49-54 fois au total de *-* tout le rang = 165-183-201-219 B. Bon crochet!
10.03.2016 - 08:56Vay Eniko wrote:
Elnézést de van nénéhány dolog amit nem értek.A kardigán bekezdésnél a végén 219 erp van, kozben pedig rp-ről van szó.ínem tudom hogyan kezdek. A következő bekezdésnél van egy köv-ut meggjegyés. Ez mit is jelent. Köszönettel
07.03.2016 - 20:44Linda Augustsson wrote:
Fråga ang. diagrammet. rad 2 efter pilen. OM man läser rad två från höger. så undrar jag lite. ska det bara vara en stolpe direkt innan den andra långa linjen? Överallt annars är det 2 stolpar förutom i början och i slutet. Mvh Linda
04.03.2016 - 14:49DROPS Design answered:
Hej, Jeg kan ikke se hvor du er. Hvilket diagram og hvilken række talt fra nederste og op.
07.03.2016 - 16:13Lisette wrote:
Ik heb een vraagje over het telpatroon. Klopt het dat in het begin als je A1 tot A5 doet de rechter en de linkerkant niet precies gelijk zijn? En wat betekenen de drie streepjes/ stipjes voor de stokjes in A1?
22.02.2016 - 20:45DROPS Design answered:
Hoi Lisette. Rechts en links zijn wel gelijk. A.1 en A.5 zijn de zijkanten, en haak je de overige telpatronen zoals beschreven, dan heb je ook symmetrie met de boogjes/stokjes. 1 streepje ("stip") is 1 losse.
23.02.2016 - 14:15Katharina wrote:
Fertig - in apricot. Eigentlich wollte ich Größe XXXL machen, jedoch mit Nadel 5 kam ich bei der Maschenprobe zu Größe L/XL. Garnmenge für diese Größe stimmte genau. Eine tolle Jacke und sehr ausgefallen - ich habe sie auch sehr schnell fertig bekommen. Vielen Dank mal wieder für einen neuen Blickfang in meiner Garderobe. Herzliche Grüße aus Hamburg!
03.02.2016 - 22:58