Janis |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð ferhyrnd peysa úr DROPS Paris með flaksandi ermum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 170-2 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð. Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Heklunálinni er stungið í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni, dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni = 1 fl, heklið síðan 8 fl um lykkjuna, endið á 1 kl í fyrstu fl = 9 fl. Heklið síðan eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í garnendann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í umf er skipt út fyrir 1 ll. Endið umf á einni kl í fyrstu ll í byrjun umf. Fyrsti st í umf er skipt út fyrir 3 ll. Endið umf á einni kl í þriðju ll í byrjun umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. 4-TBST: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um ll-bogann og dragið þráðinn í gegnum ll-bogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 1 l á heklunálinni: ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni) heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, síðan í ferhyrning frá miðju að aftan. Að lokum er það heklað upp meðfram annarri hlið á ferhyrning fyrir öxl/háls. BAKSTYKKI: Heklið GALDRAHRINGUR með heklunál nr 4,5 með Paris – sjá útskýringu að ofan = 9 fl um hringinn. Heklið nú eftir A.1 (í fyrstu umf í A.1 eru heklaðar 2 fl í hverja og eina af 9 fl = 18 fl). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 120 st í umf og stykkið mælist ca 22 cm að þvermáli. Heklið síða eftir A.2, heklið 4 mynstureiningar af A.2 um hringinn – byrjið á annarri umf í A.2. ATH! Kl í byrjun á A.2 er einungis hekluð í byrjun umf. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka er haldið áfram að hekla eftir A.3. A.x sýnir 1 mynstureiningu af A.3 á breidd. Heklið A.3, í hvert horn er heklað 1 tbst + 3 ll + 1 tbst, heklið 2 mynstureiningar fleiri af A.3 á milli allra horna fyrir hverja umf sem er hekluð. Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist 23-25-27-29-33-36 cm frá miðju (alls 46-50-54-58-66-72 cm), nú eru ca 18-20-22-24-28-30 mynstureiningar af A.3 meðfram hvorri hlið á ferhyrning. Stykkið á nú að hekla fram og til baka og það á að fækka l fyrir hálsmáli mitt í fyrstu hliðinni á ferhyrning. Klippið frá og hoppið yfir miðju 6-6-8-8-10-10 mynstureiningar (= hálsmál) í fyrstu hlið á ferhyrning, haldið áfram með A.3 með útaukningu í horni þar til umf hefur verið hekluð til loka, ekki er heklað yfir 6-6-8-8-10-10 mynstureiningar sem hoppað var yfir í byrjun umf. Klippið frá og festið enda, stykkið mælist 25-27-29-31-35-38 cm frá miðju (alls 50-54-58-62-70-76 cm), nú eru ca 7-8-8-9-10-11 mynstureiningar á hvorri öxl og ca 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar meðfram hverri og einna af 3 hinum hliðum. Setjið 1 prjónamerki í hverja hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl, þau sýna hvar sauma á ermina í. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 17-19-21-23-27-30 cm frá miðju (alls 32-36-40-44-52-58 cm), nú eru ca 14-16-18-20-24-26 mynstureiningar af A.3 meðfram hverri hlið á ferhyrning. Hekla á nú stykkið fram og til baka og það á að fækka l fyrir hálsmáli mitt í fyrstu hlið á ferhyrningi. Klippið frá og hoppið yfir miðju 2 mynstureiningarnar (= hálsmál) á fyrstu hlið á ferhyrning, haldið áfram með A.3 (með útaukningar í horni) þar til umf hefur verið hekluð til loka, ekki er heklað yfir 2 mynstureiningar sem hoppað var yfir í byrjun umf. Snúið við og heklið eina umf frá röngu. Klippið frá, hoppið yfir fyrstu 2-2-3-3-4-4 mynstureiningar, haldið áfram með A.3 og útaukningar í horni, en snúið við þegar eftir eru 2-2-3-3-4-4 mynstureiningar í umf, nú hefur fækkað um 6-6-8-8-10-10 mynstureiningar við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram fram og til baka með A.3 og útaukningar þar til stykkið mælist 25-27-29-31-35-38 cm frá miðju (alls 50-54-58-62-70-76 cm), þá eru ca 7-8-8-9-10-11 mynstureiningar á hvorri öxl og ca 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar meðfram hverri og einni af 3 hinum hliðunum, stillið af eftir bakstykki. Klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í hverja hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl, þau sýna hvar sauma á ermina í. ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Heklið 64-64-69-69-74-74 ll og tengið saman í hring með einni kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hverja af næstu 6-6-3-3-0-0 ll, hoppið yfir 1 ll, * heklið 1 st í hverja af næstu 7 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 56-56-60-60-64-64 st. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan í hring og eftir A.3. Í umf A.3 er fækkað um 8 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hvert skipti sem umf 3 í mynstri er heklað, alls 3 sinnum = 32-32-36-36-40-40 st. Heklið A.3 þar til stykkið mælist 33-32-31-30-27-25 cm, endið eftir 2. eða 4. umf í A.3. Heklið alls 40-40-40-48-48-48 st um ll-boga. Heklið eftir A.4 (5-5-5-6-6-6 mynstureiningar á breidd, mynstrið sýnir 2 mynstureiningar á breidd), fyrsta umf er hekluð þannig: * Heklið 1 st í hvern og einn af 7 fyrstu st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 4-4-4-5-5-5 sinnum til viðbótar. ATH! Keðjulykkjurnar í byrjun á A.4 eru einungis heklaðar í byrjun umf. Heklið A.4 einu sinni á hæðina. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 48-47-46-45-42-40 cm. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá prjónamerki á hlið og niður. Saumið ermar í. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í kringum hálsmál. Klippið 8 þræði ca 20 cm. Þræðið endana í gegnum endann á snúrunni og leggið þá saman tvöfalda. Vefjið einum að þráðunum um toppinn á kögrinu. Gerið annað kögur til viðbótar í hinn endann á snúrunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (165)
Helen Lindblad wrote:
Snygg!!
11.12.2015 - 19:59Riisa wrote:
Todella hieno!
11.12.2015 - 16:15Andre Ruster wrote:
Absolutely Beautiful! Where could I obtain the pattern, please?
11.12.2015 - 12:21Koszinski wrote:
J adore
11.12.2015 - 05:31Vanina wrote:
Juste magnifique!!
10.12.2015 - 19:21