DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Moorland Jumper

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Fabel og DROPS Delight með ísettum ermum. Stærð S – XXXL.

DROPS 174-9
DROPS Design: Mynstur nr de-165
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
300-300-300-350-350-350 g litur nr 905, svartur/natur
Og einnig:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
350-350-350-400-400-400 g litur nr 01, grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) OG SOKKAPRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund (2 þræðir).
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) OG SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 23 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund (2 þræðir).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka l í umf, teljið fjölda l í umf (t.d. 210 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 40) = 5,3. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 4. og 5. l saman.

ÚTAUKNING (fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (ermar):
Aukið er út hvoru megin við prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 l (= prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, síðan er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. Byrjun umf = miðja að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 204-216-234-252-276-300 l með 1 þræði Fabel og 1 þræði Delight (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (3 l sl, 3 l br) í 5 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 40-40-42-44-52-56 l jafnt yfir – LESIÐI ÚRTAKA (jafnt yfir) = 164-176-192-208-224-244 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið: Setjið fyrra prjónamerkið eftir 41-44-48-52-56-61 l og seinna prjónamerki eftir 123-132-144-156-168-183 l. Nú skiptist stykkið við prjónamerkin og hvort stykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Bakstykkið er prjónað fram og til baka.
= 82-88-96-104-112-122 l. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Fitjið upp 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni til loka), * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, 1 l sl (= 7-7-7-7-9-9 l stroff), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 7-7-7-7-9-9 l, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, 1 l sl (= 7-7-7-7-9-9 l stroff), fitjið upp 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni til loka) = 84-90-98-106-114-124 l. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l hvoru megin við mynstureiningu í sléttprjóni – LESIÐ ÚTAUKNING (fram- og bakstykki). Aukið svona út í 3.-4.-5.-7.-9.-12. hverri umf alls 10-9-7-6-5-4 sinnum = 104-108-112-118-124-132 l. Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og stroff í hvorri hlið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið síðan af miðju 28-30-32-34-36-36 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsi = 36-37-38-40-42-46 l eftir á hvorri öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 52-54-55-57-58-60 cm setjið miðju 16-18-18-18-20-20 l á þráð fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af l í hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 4 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 0-0-1-2-2-2 sinnum = 36-37-38-40-42-46 l eftir á hvorri öxl. Fellið laust af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

ERMAR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 48-48-54-54-54-60 l með 1 þræði Fabel og 1 þræði Delight (= 2 þræðir) á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (3 l sl, 3 l br). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 7 cm. Í næstu umf er fækkað um 8-6-10-8-8-12 l jafnt yfir = 40-42-44-46-46-48 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-11-11 cm setjið eitt prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING (ermar)! Aukið svona út í ca 10.-9.-9.-8.-6.-5. hverri umf alls 10-11-11-12-14-16 sinnum = 60-64-66-70-74-80 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-52-51-51-50-49 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan laust af allar l.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu á hringprjóna nr 4,5 ca 96-114 l (meðtaldar l af þræði við miðju að framan) með 1 þræði Fabel og 1 þræði Delight (= 2 þræðir). Prjónið stroff (3 l sl, 3 l br) hringinn þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Torbjørg wrote:

Ser jeg har samme problem som Sanne sendte inn 25/3. Får ikke oppskriften på bak- og forstykket av bolen til å stemme med det jeg ser på bildet av genseren (hvor er vrangborden?)

27.03.2022 - 16:17

DROPS Design answered:

Hei Torbjørg, Denne genseren er stikket fra bunnen og oppover, slik at du begynner i bunnen, med vranbord, og strikker rundt opp til ermehullene. Deretter deles til for- og bakstykket. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

28.03.2022 - 06:52

country flag Sanne wrote:

Hei! Jeg skjønner ikke hvordan man skal strikke bakstykket? Og hvorfor skal man strikke vrangbord i bakstykket og forstykket?

25.03.2022 - 17:32

country flag Rosario Elias Liñero wrote:

Hola Estoy haciendo la talla XL ya puse los marcadores para dividir entre espalda y delantero, pero no entiendo si tengo un marcador por donde empecé el cuerpo ahora por donde tengo que empezar Después del primer pto puse a un marcador después de 52 pts y otro a los 156 Mi duda es que tengo otro marcador al comienzo de la labor por donde empiezo a tejer la espalda Muchas gracias

23.02.2022 - 02:44

DROPS Design answered:

Hola Rosario, cuando dividimos para la espalda y el delantero, empezamos a trabajar desde una de la sisas (uno de los marcapuntos). Entonces, el marcapuntos del inicio de la vuelta usado antes, si estaba en el centro de la espalda, ya lo puedes quitar, porque no va a servir de aquí en adelante. Solo necesitas los marcapuntos en las sisas.

27.02.2022 - 18:43

country flag Rosario wrote:

Hola estoy tejiendo la talla L , para la espalda dice que se repite 3 veces esto quiere decir que hago la puntada de elastio y jersey en 6 vueltas? Tampoco entiendo cuando dice se continúa a pto bobo Por ahora estoy tres meses en Mexico y aquí no encuentro las lanas dron, me podrías decir que otra marca ya sea merino cuál puedo comprar Muchas gracias Muchas gracias

03.02.2022 - 20:22

DROPS Design answered:

Hola Rosario, cuando dice repetir 3 veces se refiere en esa misma fila, que los 7 puntos del borde a cada lado se trabajan en punto elástico. El punto musgo solo se trabaja sobre el punto orillo, y quiere decir que este punto se trabaja siempre de derecho. Puedes ver en el siguiente link las tiendas DROPS con envío internacional: https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=19&w=1&cid=19

05.02.2022 - 19:06

country flag Max C wrote:

After BODY separation on BACK PIECE, first row is a Right Side row where you add 1 garter st at each side and set up the rib stitches at either side. After where the pattern identifies the new number of stitches (i.e. now increased by 2) it says "on the next row from RS" and then goes on to instruct the increases on each side of the section of stocking st. Should this be WS? or should there be another WS row before starting the next RS row and the start of the increases?

05.05.2021 - 20:58

DROPS Design answered:

Dear Max, it is what it says, in the next RS row, so the next time you are knitting from the right side (so yes, there should be a WS row before that.) I hope that helps. Happy Knitting!

05.05.2021 - 21:21

country flag Orsi wrote:

Hàta: * 1 S, 1 F.* Ism a *-* közötti részt összesen 3-3-3-3-4-4( szemen /soron keresztül ismètelünk?)alkalommal, 1 S (= 7-7-7-7-9-9 szem bordásmintával), ( 1 s szem után 7-et kötsz bordásmintával?)kössünk harisnyakötéssel, amíg 7-7-7-7-9-9 szem marad a sorban. Ism a *-* közötti részt összesen 3-3-3-3-4-4 alkalommal, 1 S, (ha 7 szem marad ès ismèteljük 3-szor, akkor 1 szem marad sorban.azt lekötjûk simával ès ez?(= 7-7-7-7-9-9 szem bordásmintával),

21.03.2021 - 09:32

DROPS Design answered:

Kedves Orsi! Ha a szövegben az szerepel, hogy *1 S, 1 F* ismételjük 3 alkalommal, akkor 2 szemes egységet ismétlünk 3-szor, vagyis 6 szemen, utána még 1 S, az összesen 7 szem. Ha kérdése másra vonatkozott, kérem fejtse ki bővebben. Sikeres Kötést!

21.03.2021 - 23:38

country flag Orsi wrote:

Hello, új vagyok pulóver kötèsben ès a kèrdèsem az lenne, hogy a testrèsznèl a vègèn amikor belerakjuk a kèt kötèsjelölőt akkor azt elosztva nem láncoljuk le, hanem folytatjuk a hátával ès az elejèvel ugyanazon a darabon?

21.03.2021 - 09:15

DROPS Design answered:

Kedves Orsi! Pontosan úgy, ahogy mondja, a jelölőknél szétosztjuk a szemeket, és ott nem leláncoljuk a szemeket, hanem oda-vissza haladva kötjük tovább. Sikeres Kötést!

21.03.2021 - 23:33

country flag Essie wrote:

I have a question about "Now divide the piece at the markers and finish each part separately". Does this mean you have to put the front end on a stitch holder? And then continue with the back? (And later on do the front with a new thread?

04.12.2020 - 00:02

DROPS Design answered:

Hei Essie, It is easiest to place the stitches for the front piece on a thread or an extra needle, while you work the back piece. Happy knitting!

04.12.2020 - 07:25

country flag Paola wrote:

Dritto taglia xl: sono arrivata a cm 57 e ho messo le 18 m centrali in attesa. Ora devo intrecciare le maglie per lo scollo. Sto eseguendo la spalla destra. 1) Le maglie le intreccio solo quando lavoro il dritto del lavoro, vero? 2) Le maglie le intreccio quando sono allo scollo o le intreccio sia a dx che a sx della mia riga di lavoro? Grazie.

17.10.2020 - 21:29

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. Deve intrecciare le maglie solo dal lato dello scollo, e le intreccia quando il ferro inizia dallo scollo (quindi per la spalla dstra solo sui ferri sul diritto del lavoro). Buon lavoro!

19.10.2020 - 22:21

country flag Ines Kretschmer wrote:

Hallo, ich hab für meinen Sohn den Pullover Moorland Jumper ausgesucht, meine Frage: kann ich den auch nur mit Fabel Garn stricken? Also mit 2 Knäulen zusammen? Vielen Dank

17.10.2020 - 19:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kretschmer, ja gerne, solange daß Sie mit 2 Fäden einer Garngruppe A stricken (und Ihre Maschenprobe stimmt), können Sie Fabel anstatt Delight stricken. Benutzen Sie unseren Garnumrechner, um die neue Garnangabe kalkulieren zu lassen. Viel Spaß beim stricken!

19.10.2020 - 08:27