Bonita |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað vesti með hekluðum ferning og gatamynstri úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-24 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli í umferð skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. Aukið út um 1 tvíbrugðinn stuðul með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla í sömu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í 3 stykkjum. Bakstykkið er fyrst heklað sér sem einn ferningur. Framstykkin eru hekluð sem hálfur ferningur og síðan er haldið áfram upp að öxl. Þegar framstykkin og bakstykkið hafa verið saumuð saman er hekluð 1 umferð með picotkanti meðfram öllum ytri kantinum. BAKSTYKKI: Byrjið með heklunál 5 og Paris og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 alls 4 sinnum í umferð (A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2 er lokið eru 35 stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 horn sem samanstanda af 2 stuðlum, 3 loftlykkjum og 2 stuðlum. Nú er ferningurinn fyrir bakstykki lokið fyrir stærð S/M, klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 28 x 28 cm. Heklið síðan hringinn í stærð L/XL og XXL/XXXL þannig: L/XL: Endurtakið 2 síðustu umferðirnar. Aukið út um 1 stuðul á undan og á eftir hverju horni. Nú eru 2 stuðlar fleiri í hverri og einni af 4 hliðunum = 39 stuðlar meðfram hvorri hlið. Klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 37 x 37 cm. XXL/XXXL: Endurtakið 2 síðustu umferðirnar. Aukið út um 1 stuðul á undan og á eftir hverju horni. Nú eru 2 stuðlar fleiri í hverri og einni af 4 hliðunum = 43 stuðlar meðfram hverri hlið. Heklið keðjulykkjur að loftlykkjuboga með 3 loftlykkjum í fyrsta horni. Heklið síðan frá 2. umferð í mynsturteikningu A.3A til A.3C fram og til baka meðfram annarri hliðinni þannig: Heklið A.3A um þennan loftlykkjuboga (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.3B þar til 1 stuðull er eftir á undan loftlykkjuboga í næsta horni, heklið A.3C (= 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul og heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga í horni). Snúið og heklið til baka síðustu umferðina í mynsturteikningu. Klippið frá og festið enda. Heklið á sama hátt meðfram hlið í gagnstæðri hlið á ferningi. Klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 47 x 37 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 5 með Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan hálfan hring þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur, * 1 stuðull um loftlykkjuhring, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar, endið með 1 stuðli um hringinn. Snúið við og heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.4A, A.4B, A.4C. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út jafnt yfir þannig – LESIÐ ÚTAUKNING: Aukið út um 0-6-6 stuðla yfir A.4A (= 27-33-33 stuðlar) og 0-9-9 tvíbrugðnir stuðlar yfir A.4B (= 30-39-39 tvíbrugðnir stuðlar). Aukið út um 0-3-3 stuðlar á undan horni í A.4C (= 6-9-9 stuðlar) og aukið út um 0-3-3 stuðla á eftir horni (= 13-16-16 stuðlar). Aukið út alls 76-97-97 lykkjur + horn (= 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) í síðustu umferð. Nú er stærð S/M lokið, klippið frá og festið enda. Heklið síðan fram og til baka í 2 næstu stærðum þannig: L/XL- XXL/XXXL: Snúið við og heklið áfram frá röngu. Heklið síðan umferð merktri með ör í mynsturteikningu þannig: Heklið A.5B yfir fyrstu 15 stuðlana, A.5A, 3 loftlykkjur, (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) um loftlykkjuboga í horni, 3 loftlykkjur, A.5B yfir næstu 9 stuðla, A.5C yfir næstu 39 tvíbrugðnu stuðla, A.5B yfir næstu 32 stuðla, endið með A.5A í síðasta stuðul í umferð. Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu A.5 alveg eins. Nú eru 97 stuðlar/tvíbrugðnir stuðlar + 1 horni (= 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda. ÖXL: Heklið nú fram og til baka yfir fyrstu stuðlana frá réttu í A.4 (í stærð S/M) og A.5 (í stærð L/XL og XXL/XXXL) með byrjun frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.3A, A.3B alls 5-6-7 sinnum á breidd. Snúið við og heklið síðustu umferð til baka. Endurtakið 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu 3-3-4 sinnum til viðbótar. Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: S/M og L/XL: Saumið niður axlirnar yst í hvorri hlið á efsta kanti á heklaða ferningnum/bakstykki. Saumið lykkjurnar saman eina og eina. Á bakstykki eru nú 17-21 stuðlar fyrir hálsmál á milli axlastykkja. Klippið frá og festið enda. XXL/XXXL: Saumið niður axlirnar yst í hvorri hlið á efsta kanti á heklaða ferningnum/bakstykki þannig: Saumið niður ystu 6 stuðlana á öxl meðfram hlið á 2 ystu umferðunum á bakstykki og saumið hinar lykkjurnar eina og eina saman. Á bakstykki eru nú 25 stuðlar fyrir hálsmáli á milli axlastykkja. Klippið frá og festið enda. PICOTKANTUR: Byrjið uppi á annarri öxlinni og heklið picotkant þannig: Heklið * 1 stuðul í stuðul/um umferð, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu af 3 loftlykkjunum, 2 stuðlar í sama stuðul/um umferð, hoppið yfir ca 2,5 cm *, endurtakið frá *-* hringinn allt vestið, þ.e.a.s. í kringum báða handvega, meðfram kanti á framstykki, aftan í hnakka meðfram neðri kanti á bakstykki. Endið með einni keðjulykkju í fyrsta stuðul í umferð. Klippið frá og festið enda. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 1,5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið einn hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum picotkant framan á öðru framstykki og hnýtið hnút. Gerið 3 snúrur alveg eins. Önnur er fest við hitt framstykki. Notið hina 2 þræðina til að halda saman framstykkinu og bakstykkinu í hvorri hlið: Byrjið ca 21-23-25 cm ofan frá við annað framstykkið og bakstykkið. Þræðið snúruna í gegnum göt á picotkanti fram og til baka á milli framstykkis og bakstykkis í kross (eins og að reima skó) og hnýtið saman endana neðst niðri – sjá mynd. Lagið lengdina á snúrunni til þannig að bilið á milli framstykkis og bakstykkis verði ca 6-6-8 cm. Endurtakið í hinni hliðinni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
" Wonderful Dream " wrote:
Einfach und doch schick.
18.12.2016 - 02:13Lauren McRoberts wrote:
Beautiful! Please include.
14.12.2016 - 14:45