DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cute Mermaid Blanket

Prjónað hafmeyju teppi fyrir börn. Stærð 3-14 ára. Stykkið er prjónað neðan frá og upp úr DROPS Snow.

DROPS Children 28-12
DROPS Design: Mynstur ee-137-bn
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164
Mál: Lengd án sporðs = 70-84-98-112-128-142 cm.
Breidd efst = 81-86-90-99-103-112 cm.
Ummál neðst fyrir sporð = 31-34-38-42-45-51 cm.
Hæð á sporð = 26-27-29-30-31-32 cm.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-650-700-750-850-900 g litur 54, millifjólublár
250-250-300-300-350-350 g litur 12, ljós blár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið umferðina hringinn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Teppið er prjónað frá sporði og upp. Stykkið er fyrst prjónað í hring á hringprjóna, eitt stykki upp frá sporði og síðan skiptist stykkið og prjónað er fram og til baka.

SPORÐUR:
Fitjið upp 110-116-124-130-136-142 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum ljós blár. Klippið frá annan þráðinn og prjónið síðan í hring einungis með 1 þræði.
Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 25-26-28-29-30-31 cm prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 55-58-62-65-71 lykkjur. Sporðurinn er nú tilbúinn. Klippið frá.

BÚKUR:
Skiptið yfir í litinn milli fjólublár. Nú á að prjóna áfram í sléttprjóni og í fyrstu umferð er fækkað um 21-20-20-19-18-15 lykkjur jafnt yfir = 34-38-42-46-50-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki og mælið síðan héðan. Prjónið 2 cm með sléttprjóni. Í næstu umferð er aukið út um 1-2-3-4-5-4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 35-40-45-50-55-60 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 4 cm. Setjið 5 prjónamerki jafnt yfir í umferð. Skiptið yfir í langa hringprjóna eftir þörf.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Nú á að auka út til skiptis á undan og á eftir hverju prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 5 nýjar lykkjur í hvert skipti) í 3.-4.-4.-5.-5.-5. hverjum cm, aukið út alls 10-11-11-12-12-13 sinnum, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat.
Eftir síðustu útaukningu eru 85-95-100-110-115-125 lykkjur á prjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-29-31-33-35 cm á að skipta stykkinu upp í byrjun á umferð = miðja að aftan. Eftir það eru prjónaðar fyrstu og síðustu 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og afgangur er prjónaður í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 64-78-92-106-122-136 cm eru prjónaðir 6 cm í garðaprjóni yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 70-84-98-112-128-142 cm. Fellið af og klippið frá.

FRÁGANGUR:
Festið enda. Saumið saman op neðst á sporði meðfram neðstu 5 cm eða eins langt upp og óskað er eftir. Leggið sporðinn saman tvöfaldan við op á miðju á stykki. Saumið búkinn saman meðfram uppfitjunarkanti.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.12.2017
Leiðrétting á sporði
Yfirfarið á vefsvæði: 16.02.2021
Leiðrétting: Ummál neðst á sporð = 31-34-38-42-45-51 cm. Hæð á sporð = 26-27-29-30-31-32.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Anja wrote:

Tack för fina mönster! Det har dock smugit sig in en miss. Det saknas antal maskor efter minskning på stjärtfenan för näst största stl 146/152. 68 maskor bör finnas med.

03.12.2019 - 15:43

country flag Agnieszka wrote:

Czy całość robimy dwiema nitkami czy tylko płetwę? Nie bardzo to wynika z opisu.

09.11.2019 - 09:30

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko! Nabieramy oczka na płetwę 2 nitkami, ale przerabiamy ją tylko jedną nitką, podobnie jak pozostałą część koca. Pozdrawiamy!

10.11.2019 - 11:32

country flag Kathrin wrote:

Hallo, muss ich nach dem Teilen der Arbeit am Rundenanfang dann 5 neue Maschen für die Zunahmen markieren? Bei mir sitzt eine Markierung genau am Rundenanfang...

24.10.2019 - 20:53

DROPS Design answered:

Liebe Kathrin, nach allen Zunahmen stricken Sie in Reihen und nicht in Runden mehr, dh stricken Sie die letzte Runde bis Rundenanfant, dann, anstatt die nächste Masche wie zuvor stricken, wenden Sie die Arbeit und stricken Sie die Rückreihen auf der Rückseite, mit 5 Maschen Krausrechts beidseitig. Und so in Hin- und Rück-Reihen weiterstricken. Viel Spaß beim stricken!

25.10.2019 - 09:33

country flag Barbara Karli wrote:

Guten Tag Es steht, dass man Zunahmen *vor* und *nach* dem Markierungsfaden: = 2*5 pro Zunahmerunde, dies 11 x. also total 110 Maschen. Wenn ich nur 1 Masche pro Faden zunehme stimmt die Maschenzahl. Ist hier ein Fehler? Danke für eine Antwort.

20.10.2019 - 19:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Karli, es wird nur 5 Maschen jeweils zugenommen, bei der 1. Zunahmenrunde nehmen Sie vor jeder Markierung, bei der 2. Zunahmenrunde nehmen Sie nach jeder Markierung, so wird "abwechselnd vor und nach allen Markierungsfäden" gemeint. Viel Spaß beim stricken!

21.10.2019 - 11:14

country flag Inger Lise Drage wrote:

Får ikkje fram rettelsen på dette teppet når eg trykker på linken ovafor. Står berre at det er rettelser på halefinnen og ingenting meir.

11.10.2019 - 11:56

DROPS Design answered:

Hej. Själva oppskriften är rättad/uppdaterad, så följ bara den så blir det riktigt! Lycka till!

11.10.2019 - 13:49

country flag Mette Bolsø Strøm wrote:

Finnes det en oppskrift på den uten splitten? Klarer ikke lese ut fra oppskriften hvordan jeg kan strikke uten å lage splitt.

27.04.2019 - 09:58

DROPS Design answered:

Hei Mette, Da fortsetter du bare å strikke rundt (isteden for å dele arbeidet) fram til ferdig mål. God fornøyelse!

27.04.2019 - 15:06

country flag Marlies Hoffmann wrote:

Hallo, da die Wolle sich zum Filzen eignet, befürchte ich, dass sie sich kratzig anfühlt. Können Sie mit bitte hierüber Auskunft geben? Mit frdl. Gruß Marlies Hoffmann

24.02.2019 - 19:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hoffmann, Eskimo ist zwar zum Filzen geeignet aber ist trotzdem angenehm zu tragen, wenn die Wolle nicht gefiltzt ist. Nehmen Sie bitte Kontakt mit Ihrem DROPS Laden auf - auch telefonisch oder per E-Mail, gerne werden sie Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

25.02.2019 - 11:07

country flag Marylise wrote:

J'ai comme l'impression qu'il manque des explication ou bien sais mal expliquer, mais après avoir les 31 cm il n'explique pas vraiment pour faire l'ouverture a l'arrière

06.02.2019 - 12:31

DROPS Design answered:

Bonjour Marylise, l'ouverture se fait à 31 cm (4ème taille): on commence désormais les rangs au début du tour, et on continue en allers et retours avec 5 m point mousse de chaque côté, en continuant les augmentations comme avant. Bon tricot!

06.02.2019 - 14:06

country flag J.C. Janssen-Koot wrote:

Goedemorgen, Afgelopen weekend heb ik het Mermaid-pakket besteld, maar geen bevestigingsmail gekregen. Is het pakket al onderweg? Met vriendelijke groet, Mevr. J.C. Janssen-Koot

05.02.2019 - 08:57

DROPS Design answered:

Dag J.C. Jansen,

Hopelijk is het pakket inmiddels gekomen, maar anders kun je het beste even contact opnemen met de winkel waar je het pakket gekocht hebt.

08.02.2019 - 17:29

country flag Christiane wrote:

Hallo !Wird die Flosse in Hin uns Rückrunden gestrickt oder in RUnden ? Danke für eine Info.

08.11.2018 - 22:11

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, die Flosse wird in Runden gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

09.11.2018 - 08:05