DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 28-13
DROPS Design: Mynstur ee-138-bn
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164.
Mál: Lengd án sporðs = 70-84-98-112-128-142 cm.
Breidd efst = 81-86-90-99-103-112 cm.
Ummál neðst á undan sporði = 35-37-39-40-42-44 cm.
Hæð á sporði = 27-31-33-35-37-39 cm.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400-500-600-800-900-950 g litur 46, milligrár
200-200-250-250-300-350 g litur 14, dökk grár
50-50-50-50-50-100 g litur 02, svartur
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 56, jólarauður

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 9 stuðlar og 5 umferðir með stuðlum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI:
Búkurinn á hákarlinum er heklaður neðan frá og upp, hann byrjar á milli búks og sporðs. Síðan er sproðurinn heklaður frá botni á búk og niður. Allt stykkið er heklað fram og til baka.

BÚKUR:
Heklið 32-34-34-36-38-40 loftlykkjur með heklunál 8 með litnum milligrár.
Tengið saman loftlykkjuumferðirnar í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan fram og til baka. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja lykkju umferðina út = 32-34-34-36-38-40 stuðlar.
Snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í hvern stuðul út umferðina.
Í næstu umferð eru lykkjur auknar út jafnt yfir í umferð – LESIÐ ÚTAUKNING! Heklið stuðla og aukið út um 8-6-6-9-7-10 stuðla í umferð = 40-40-40-45-45-50 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Nú eru umferðirnar heklaðar áfram svona, það á að auka út jafnóðum – LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HALDIÐ ER ÁFRAM!

Aukið út um 5 stuðla jafnt yfir með 4-5-6-8-7-10 cm millibili alls 6-6-8-7-9-10 sinnum = 70-70-80-80-90-100 stuðlar. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er hekluð 1 umferð með stuðlum án útaukninga, í næstu umferð eru heklaðir stuðlar og aukið út um 3-7-1-9-3-1 stuðla jafnt yfir = 73-77-81-89-93-101 stuðlar. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 66-80-94-108-124-138 cm.
Skiptið yfir í svartan og heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Skiptið yfir í litinn jólarauður og heklið 1 umferð með 1 stuðli í hverja fastalykkju og hekliið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Skiptið yfir í litinn natur og heklið næstu umferð þannig: 1 loftlykkju, * hoppið yfir 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju er heklað: 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkja, heklið 1 keðjulykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina út. Klippið frá og festið enda. Búkurinn er nú klár.

SPORÐUR:
Leggið búkinn tvöfaldan með op í miðju á stykki. Notið litinn dökk grár og heklunál 8, heklið 1 umferð með fastalykkjum í gegnum bæði lögin neðst meðfram uppfitjunarkantinum = 16-17-17-18-19-20 fastalykkjur.
Heklið síðan hverja umferð þannig: 3 stuðlar í fyrstu lykkju, heklið 1 stuðul í hverja lykkju fram að 4 miðju lykkjurnar, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 lykkjunum, 1 stuðull í hverja lykkju fram að síðustu lykkju og heklið 3 stuðla í síðustu lykkju.
Endurtakið þessa umferð alls 13-15-16-17-18-19 sinnum = stykkið mælist ca 26-30-32-34-36-38 cm. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum svartur, heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda.

AUGU:
Heklið 2 augu, saumið þau niður með litnum milligrár ca 10 cm frá kanti efst.
Heklið þannig:
Heklið 3 loftlykkjur með litnum svartur og heklunál 8, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað 1. stuðuls), heklið 11 stuðla um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju (= 12 stuðlar). Klippið frá og skiptið yfir í natur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju (kemur í stað 1 fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju (= 12 fastalykkjur).
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju (kemur í stað 1. fastalykkju), 1 fastalykkja í sömu lykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju (= 24 fastalykkjur). Klippið frá og skiptið yfir í milligrár.
UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju (kemur í stað 1. fastalykkju), hklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju (= 24 fastalykkjur).
Klippið frá og festið enda.

OP:
Saumið saman opið eins langt og óskað er eftir – 20-30 cm upp ef bara á að fela fæturna eða hálfa leiðina upp opið ef teppið á að þekja meira.
Njótið!

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2020
Nýtt efnismagn: Efni: DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E) 400-500-600-800-900-950 g litur 46, milligrár
Yfirfarið á vefsvæði: 15.02.2021
Leiðrétting í 2.- 4. umferð undir AUGU.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Gertrud wrote:

Hej igen! Jag menar om stjärtfenan skall virkas med dubbelt garn,eftersom jag får hälften över. Kan inte se att det står någonstans. Nån som vet??

16.10.2023 - 17:05

DROPS Design answered:

Hej Gertrud. Stjärtfenan ska inte virkas med dubbelt garn vad jag kan se heller. Jag ser inte att vi fått andra kommentarer om att det är för mycket garn i den färgen. Det som kan påverka garnåtgången är virkfastheten, så dubbelkolla gärna den. Mvh DROPS Design

19.10.2023 - 09:40

country flag Gertrud wrote:

Hej! Jag undrar angående stjärtfenan. Ska den virkas dubbel? Jag har nästan virkat den färdig och får hälften av det mörkgrå garnet över. Vad har jag gjort för fel? De andra färgerna har stämt jättebra.

12.10.2023 - 17:23

country flag Heidi wrote:

Hej, jeg er nyhækler og kunne godt tænke mig at hækle, haj tæppet i voksenudgave, ca. 185 cm høj, hvor mange masker vil I tro jeg skulle gå ud fra? Det er til min mand, da han elsker hajer.

05.09.2023 - 21:42

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Se på målene på den største str. Om du syns bredden er bra, fortsetter du bare å hekle med grå til ønsket lengde før det byttet til sort/rødt/natur. Om du ønsker bredere teppe øverst, fortsetter du å øke til ønsket bredde, så hekles det til ønsket lengde før det byttet til sort/rødt/natur. HUSK du trenger mer garn (det har vi ikke oversikten over). mvh DROPS Design

11.09.2023 - 15:14

country flag Miriam wrote:

Boating

01.09.2023 - 04:08

country flag Josephine wrote:

Wenn ich bei 50 Stäbchen aller 10cm 5Stäbchen zunehmen muss (10x)komme ich auf 100stäbchen.wenn ich aber nach JEDER Zunahme in Jeder 2.Reihe noch 1Stäbchen zunehmen muss dann komm ich nicht auf 101 Stäbchen sondern auf 111Stäbchen oder nicht?

28.05.2023 - 18:33

DROPS Design answered:

Liebe Josephine, es sind 50 Stäbchen vor den Zunahmen, dann nehmen Sie zuerst 5 Stäbchen 10 Mal = 50 Stäbchen werden zugenommen = 100 Stäbchen + 1 Zunahme = 101 Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

30.05.2023 - 10:50

country flag Christine wrote:

Die Anleitung ist wirklich gut. Allerdings habe ich Probleme mit den Zähnen. Zumal die Anleitung in Deutsch und Englisch sich an dieser Stelle widersprechen. Im Deutschen heisst es man startet mit 2 festen Maschen, dann ein Doppeltes Stäbchen, 2 Stäbchen und nochmal ein doppeltes Stäbchen in eine Masche, etc. Im Englischen heisst es man startet damit, zwei Maschen zu überspringen, was in meinen Augen viel mehr Sinn ergibt. Ich ribbel noch einmal die kompletten Zähne auf und starte neu.

18.05.2023 - 16:30

DROPS Design answered:

Liebe Christine, vielen Dank für den Hinweis, das Wort *überspringen* fehlt ja in deutch und wird korrigiert; viel Spaß beim häkeln!

19.05.2023 - 09:11

country flag Michelle wrote:

Hello! I am wondering how to scale up this pattern for an adult. I’d like to make this as a gift, but the person is 6ft tall 117kg so I’m not sure this will fit them! Love the pattern, seems straightforward enough as a beginner! Thank you :)

08.12.2022 - 03:53

DROPS Design answered:

Dear Michelle, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every individual request - feel free to ask your yarn store or any crochet forum. Thanks for your comprehension. Happy crocheting!

08.12.2022 - 10:09

country flag Gitte wrote:

Any problems if I crochet the bottom of the tail in a circle instead of back and forth.? And avoid having to sew it together

10.01.2022 - 20:51

DROPS Design answered:

Dear Gitte, do you want to avoid the vent/opening at the top of blanket avoiding a seam? then just think about how long you would like this opening to be then work in the round (but maybe working alternately from RS and from WS to keep same texture all the way). Happy crocheting!

11.01.2022 - 09:03

country flag Laurie wrote:

Bonjour, pouvez vous me confirmer, pour le corp je fais le modèle 7/8 ans, après avoir augmenté de 1 BRIDE afin d'obtenir 81 brides, je dois continuer sans augmentation jusqu'à le modèle fasse 94 cm ou je dois augmenter de 1 bride un tour sur 2 jusqu'à le modèle fasse 94 cm ? Merci de votre réponse

06.10.2021 - 08:58

DROPS Design answered:

Bonjour Laurie, en taille 7/8 ans, quand toutes les augmentations sont faites, vous avez 81 brides, et vous continuez ensuite en brides (= 1 bride dans chacune de ces 81 brides) sans augmenter davantage jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 94 cm. Bon crochet!

06.10.2021 - 16:14

country flag Annemiek Van De Rijt wrote:

Er staat bij het lijf dat je de lossen met een halve vaste tot een ring moet sluiten en daarna heen en weer haken maar de deken is toch niet rondom gesloten?

28.05.2021 - 18:31

DROPS Design answered:

Dag Annemiek,

Het werk wordt inderdaad heen en weer gehaakt en op het einde gesloten door de naad in de lengte dicht te naaien.

31.05.2021 - 10:18