Flamenco |
|
|
|
Prjónuð aðsniðin peysa með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 187-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 176 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5,9. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): * Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið að næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið að næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 4 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 8 lykkjur færri í umferð). ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): * Prjónið að fyrsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Fækkið fyrir hálsmáli innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 5 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 176-188-204-224-248-268 lykkjur á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 30-30-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 146-158-170-186-206-222 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: * Prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 33-39-45-53-63-71 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinum. Fækkið nú um 1 lykkju við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm = 130-142-154-170-190-206 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-23-23 cm aukið út 1 lykkju við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm = 146-158-170-186-206-222 lykkjur. Setjið 2 ný prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 73-79-85-93-103-111 lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm skiptist stykkið við nýju prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 73-79-85-93-103-111 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður og fitjið upp 1 kantlykkju í lok næstu 2 umferða = 75-81-87-95-105-113 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 25-25-27-27-29-31 lykkjur, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af miðju 15-15-17-17-19-21 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 30-33-35-39-43-46 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram yfir 30-33-35-39-43-46 lykkjur sem eftir eru með 5 lykkjur garðaprjón við hálsmál að aftan, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – lesið ÚRTAKA-2 = 29-32-34-38-42-45 lykkjur á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af – lesið AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 73-79-85-93-103-111 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón eins og áður og fitjið upp 1 kantlykkju í lok næstu 2 umferða = 75-81-87-95-105-113 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 36-37-38-40-41-42 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 11 lykkjur í umferð, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður. Eftir 4 umferðir í garðaprjóni er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 37-40-43-47-52-56 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið 1. lykkju yfir 2. lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja færri við miðju að framan), prjónið 36-39-42-46-51-55 lykkjur slétt. Setji 37-40-43-47-52-56 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 37-40-43-47-52-56 lykkjur sem eftir eru með 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið – þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-6-6-7-7 sinnum og eftir það í 4. hverri umferð alls 3-3-3-3-3-4 sinnum = 29-32-34-38-42-45 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. Prjónið síðan yfir lykkjur í hægri hlið á stykki alveg eins og í vinstri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Setjið lykkju sem var felld af við miðju að framan á vinstri prjón og prjónið lykkjuna slétt saman með næstu lykkju á vinstri prjóni (þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist “hak” neðst í v-hálsmálinu), prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 31-34-37-41-46-50 lykkjur í sléttprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir 37-40-43-47-52-56 lykkjur með 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan, sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið – þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-9-9-10-11 sinnum = 29-32-34-38-42-45 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-3-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 35-37-39-42-44-46 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 35-37-39-42-44-46 lykkjur (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja lykkju) = 70-74-78-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón, uppslátturinn er prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat. Þegar stykkið mælist 9 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með 5½-5½-4½-4-3½-3 cm millibili alls 8-8-9-10-10-11 sinnum = 54-58-60-64-68-70 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 50-50-49-47-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Danka wrote:
Can't wait to get this pattern, such a modern and flattering construction! Love everything about this pattern!
19.12.2017 - 07:16Marion wrote:
So pretty!!! Love it
13.12.2017 - 22:24Natacha wrote:
Excellent ,la forme,le choix de la couleur,la qualité de la laine ...j'ai hâte !
13.12.2017 - 19:01