DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Roulette

Hekluð peysa með gatamynstri, hekluð frá miðju og út úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-25
DROPS Design: Mynstur w-684
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
700-750-850-900-1000-1100 g litur 100, ljós þveginn

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
Tvær síðustu umferðir í A.3c mælast 4 cm á breidd og 4 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.5a og A.5c).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju á fram-/bakstykki og út. Fyrst er heklaður hringur, síðan er heklað þannig að það myndist ferningur fyrir fram-/bakstykki, síðan eru axlir heklaðar og neðsti hluti á fram-/bakstykki fram og til baka. Ermar eru heklaðar í hring ofan frá og niður.

BAKSTYKKI:
Byrjið með heklunál 5,5 með Paris og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1b alls 10 sinnum í umferð (A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1a og A.1b er lokið mælist hringurinn ca 40 cm að þvermáli. Heklið síðan ferning þannig: Byrjið í umferð merktri með ör og heklið A.2b alls 4 sinnum hringinn í umferð (A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). Þegar. A.2a og A.2b er lokið mælist stykkið ca 47 x 47 cm. Klippið frá.
Festið endann með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga merktri með svartri stjörnu – sjá síðustu umferð í A.2b og heklið frá umferð merktri með ör þannig:
Heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b í sama loftlykkjuboga og næsta loftlykkjuboga (= horn), * heklið A.3c fram að næsta horni (= 10 mynstureiningar), heklið A.3b um 2 næstu loftlykkjuboga (= horn) *, heklið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.3c fram að byrjun á umferð.
Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu. Stærð S + M + L + XL er nú lokið.
Í stærð XXL + XXXL haldið síðan áfram að endurtaka 2 síðustu umferðirnar 1 sinni til viðbótar á hæðina.

Allar stærðir:
Nú eru 2-2-2-2-4-4 umferðir með A.3a - A.3c í kringum ferninginn og 13-13-13-13-15-15 sólfjaðrir (= 2 stuðlar + 3 loftlykkjur + 2 stuðlar) meðfram hverri hlið á ferning. Stykkið mælist ca 55-55-55-55-63-63 x 55-55-55-55-63-63 cm. Klippið frá.
Stærð S + M er lokið. Í stærð L + XL + XXL + XXXL er síðan heklað úr í hvorri hlið á bakstykki. Festið enda með 1 fastalykkju um miðju loftlykkjuboga í eitt af hornunum og heklið frá umferð með ör frá réttu þannig:
Heklið A.4a, A.4b þar til eftir er 1 stuðlahópur (= 2 stuðlar + 3 loftlykkjur + 2 stuðlar) á undan næsta horni, A.4c.
Endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.4a - A.4c þar til heklaðar hafa verið alls 1-2-2-3 umferðir á hæðina.

Allar stærðir:
Nú hafa verið heklaðar 0-0-1-2-2-3 umferðir með A.4a - A.4c út á annarri hlið. Heklið alveg eins í gagnstæðri hlið á ferning.

HÆGRI ÖXL:
Heklið í mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S + M:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni – sjá svartan ferning á teikningu. Heklið mynstur frá umferð með ör í mynsturteikningu fram og til baka frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: Heklið A.4a, A.4b 2-2 sinnum, A.5b (= að hálsi).
UMFERÐ 2: Snúið og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu til baka alveg eins.
UMFERÐ 3: Snúið og heklið eins og umferð 1. Klippið frá.

Stærð L + XL, XXL + XXXL:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju yst í horni – sjá svartan ferning í teikningu.
Heklið mynstur frá umferð með ör í mynsturteikningu fram og til baka frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: Heklið A.5a (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð), A.4b 2-2-2-2 sinnum, A.5b (= að hálsi).
UMFERÐ 2: Snúið og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu til baka alveg eins.
UMFERÐ 3: Snúið og heklið eins og umferð 1. Klippið frá.

VINSTRI ÖXL:
Heklið alveg eins og hægri öxl, en byrjið frá röngu og í horni merktri með svörtum punkti – sjá mynsturteikningu. ATH: Ekki er heklað yfir miðju 5 mynstureiningarnar með stuðlahópum (= 2 stuðlar + 3 loftlykkjur + 2 stuðlar) mitt í þessari hlið = háls.

NEÐST Á BAKSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki neðst á bakstykki og heklið mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S + M:‘
Festið þráðinn með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni neðst á bakstykki. Heklið mynstur frá umferð með ör í mynsturteikningu fram og til baka frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: Heklið A.4a, A.4b 11 sinnum, A.4c.
UMFERÐ 2: Snúið og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu til baka alveg eins.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 4-6 cm frá prjónamerki neðst á bakstykki. Stykkið mælist ca 65-67 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

Stærð L + XL, XXL + XXXL:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju yst í horni neðst á bakstykki. Heklið mynstur frá umferð með ör í mynsturteikningu fram og til baka frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: Heklið A.5a (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð), A.4b 11 sinnum, A.5c (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð).
UMFERÐ 2: Snúið og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu til baka alveg eins.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 8-10-4-6 cm frá prjónamerki neðst á bakstykki. Stykkið mælist ca 69-71-73-75 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

FRAMSTYKKI:
Heklið alveg eins og bakstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma lykkjur eina og eina. Setjið eitt prjónamerki 16-16-18-20-20-22 cm frá öxl og niður meðfram hlið (merkir handveg). Saumið hliðarsauma neðan frá og upp að prjónamerki fyrir handveg. Endurtakið á hinni hliðinni.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring frá handveg.
Festið þráðinn með 1 fastalykkju við annað prjónamerkið mitt undir handveg og heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* alls 15-15-17-19-19-21 sinnum, heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = 16-16-18-20-20-22 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið frá umferð með ör: A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.3c alls 8-8-9-10-10-11 sinnum í umferð.
Endurtakið síðustu umferð í mynsturteikningu þar til ermin mælist ca 33-34-33-32-29-28 cm.
Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju á annarri öxlinni og heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1-1½ cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið, en í hverju horni í skiptingunum á milli axla og hálsmáls er heklaður 1 stuðull í stað 1 fastalykkju.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu lykkju), * 2 fastalykkjur um fyrsta/næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð, heklið síðan keðjulykkjur fram að fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 3: 1 loftlykkja (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju), * 1 fastalykkja um fyrstu/næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Svartur punktur er í byrjun á umferð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 hálfur stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga/um bil á milli 2 lykkja
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um bil á milli 2 lykkja/um loftlykkjuboga
symbols = heklið 4 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 3 stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum hvern og einn af stuðlunum, heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 4 þríbrugðna stuðla saman þannig: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul í hvern og einn af næstu 3 tvíbrugðnu stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum og einum af þríbrugðnu stuðlunum, heklið 1 þríbrugðinn stuðul í næsta stuðul og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 og 2 stuðla saman þannig: Heklið 2 stuðla um fyrstu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hvorum stuðli, heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni í lokin.
symbols = í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan er hekluð 1 keðjulykkja í næsta stuðul
symbols = í byrjun á hverri umferð með loftlykkjum eða fastalykkjum heklið 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu lykkju), endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = byrjið á þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð

symbols = byrjið í þessum loftlykkjuboga þegar heklað er áfram með A.3a til A.3c
symbols = byrjið hér þegar hægri öxl á bakstykki/framstykki er hekluð
symbols = byrjið hér þegar vinstri öxl á bakstykki/framstykki er hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Laurence Guilbert wrote:

Bonjour Je dois être bête mais j'ai beaucoup de mal à lire vos diagrammes de crochet Désolée

12.05.2024 - 10:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guilbert, cette leçon pourra alors peut-être vous aider? Nous y expliquons comment lire les diagrammes crochet. Bon crochet!

13.05.2024 - 08:39

country flag Ninette Larsen wrote:

Hej Er denne Hæklet i dobbelt tråd?

12.06.2023 - 16:27

DROPS Design answered:

Hej Ninette, den er hæklet i 1 tråd DROPS Paris på hæklenål 5,5, du skal få 13 stangmasker på 10 cm i din hækleprøve :)

13.06.2023 - 13:51

country flag Estelle Rademeyer wrote:

Do you perhaps have a written version of this patten as I am having difficulty in following the charts

29.12.2022 - 12:55

DROPS Design answered:

Hello Estelle Rademeyer! Charts are much easier to follow than written patterns and have fewer mistakes. Please look at the videos and step-by-step tutorials at the end of the pattern. Happy crocheting!

30.12.2022 - 12:17

country flag Anneke wrote:

Hoeveel stokjes worden er in de eerste toer van de lossen ring gehaakt? Ik kom er niet uit.

16.03.2021 - 21:23

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Je haakt eerst 4 lossen en deze sluit je tot een ring. In deze ring haak je A.1b in totaal 10 keer, dus je haakt 10 stokje in de ring. In plaats van het eerste stokje haak je 3 lossen (dus deze 3 lossen vervangen het eerste stokje).

21.03.2021 - 11:38

country flag Anna Pacifico wrote:

Buongiorno Quante maglie alte nel primo giro,

20.02.2021 - 15:28

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, deve iniziare a lavorare dal diagramma A.1b. Buon lavoro!

20.02.2021 - 19:11

country flag GHISLAINE wrote:

Bonjour, je suis sur le diagramme A.3a, A.3b et A.3C. Il est écrit "*répéter A.3c jusqu'au coin suivant (= 10 fois). On commence sur l'arceau près du coin "2 brides/3ml/2 brides" - 2ml - puis le coin (A.2b) - 2ml et à nouveau "2 brides/3ml/2 brides". Si vous comptez 10 fois à partir du coin, cela fait 11 fois. Pouvez-vous m'expliquer, je suis un peu perdue.Dans l'attente de votre réponse. Merci à vous.

02.07.2019 - 20:48

DROPS Design answered:

Bonjour Ghislaine, dans le dernier arceau avant le coin, on crochète comme A.3c, puis le coin, et on répète A.3c 10 fois jusqu'à ce qu'il reste 1 arceau avant le coin suivant, on crochète A.3b : dans le dernier arceau avant le coin + dans le coin. Bon crochet!

03.07.2019 - 07:22

country flag Larruy Chantal wrote:

JE NE COMPRENDS PAS BIEN L\'ENCHAINEMENT DES DIAGRAMMES\r\nhelp!\r\nmerci

03.05.2019 - 21:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Larruy, vous trouverez ici quelques informations complémentaires sur les diagrammes. Bon crochet!

06.05.2019 - 15:29

country flag Tanja Rocks wrote:

Ich verstehe leider nicht, wie man die Schulterpartie arbeiten soll. Könnt Ihr das bitte detaillierter erläutern? Danke

28.04.2019 - 23:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rocks, rechte Schulter (Rückenteil) beginnen Sie in der Ecke mit dem schwarzen Vierecke in der Maßskizze) und häkeln Sie von hier: Größe S+M(= von Schulter) die Reihe mit dem Pfeil im Diagram: A.4a, A.4b x 2, A.5.b (Hals) - Größe L bis XXXL: A.5a, A.4b x 2, A.5b. Wenden Sie und dann häkeln Sie die nächste Reihe genauso links nach rechts. Wenden Sie, und dann noch mal die 1. Reihe wierderholen. Viel Spaß beim häkeln!

29.04.2019 - 10:56

country flag Kathy McCabe wrote:

Good morning, I would like to know if your patterns come in written versions? Following graphs doesn't work for me.

26.04.2019 - 14:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs McCabe, most of the time when there are diagrams, there aren't any written pattern but you will find here how to read diagrams. Happy crocheting!

26.04.2019 - 15:47

country flag Yvonne Lagarde wrote:

Wat betekent in patroon A.2b het tekentje dat lijkt op een vlindertje met een lang lijfje ?

26.12.2018 - 13:24

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

Vermoedelijk bedoel je het 8e symbool van boven in de lijst? Dit is een half stokje in de steek, dus je maakt het halve stokje in de steek van de vorige toer en niet om de steek.

27.12.2018 - 10:36