DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Wayfarer

Prjónuð peysa í klukkuprjóni, sléttprjóni og vösum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS 191-18
DROPS Design: Mynstur ai-109
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 15, fjólublá þoka

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 12 lykkjur með klukkuprjóni verði 10 cm á breidd og 14 lykkjur og 17 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 fyrir stroff (fyrir ermar) - eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (bleik) NR 608: 6 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka, meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið):
UMFERÐ 1: 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2: 1 lykkja garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 3: 1 lykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja garðaprjón.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚRTAKA-1 (= á við um hliðar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Í byrjun á umferð: Fækkið um 1 lykkju á eftir 2 lykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Í lok umferðar: Fækkið um 1 lykkju á undan 2 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku í hálsi):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju á eftir 5 kantlykkjum að framan þannig (á við um hægra framstykki):
Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan 5 kantlykkjum að framan þannig (á við um vinstra framstykki): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 14, 22, 31, 40, 49 og 58 cm
M: 14, 23, 32, 41, 50 og 60 cm
L: 14, 23, 32, 42, 52 og 62 cm
XL: 14, 24, 34, 44, 54 og 64 cm
XXL: 14, 24, 34, 44, 54 og 65 cm
XXXL: 14, 24, 34, 45, 56 og 67 cm

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

--------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Bakstykki og framstykkin eru prjónuð hvert fyrir sig og saumuð saman í lokin. Síðan eru ermarnar prjónaðar og saumaðar við fram- og bakstykki.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.
Fitjið upp 81-84-90-99-105-114 lykkjur á hringprjón 7 með Air. Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 4 lykkjur garðaprjón.
Prjónið 6 umferðir svona. Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni með 4 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í sléttprjóni er lykkjufjöldinn jafnaður út til 80-84-90-98-106-114 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í lok 2 næstu umferða (= 1 ný lykkja hvoru megin á stykki) = 82-86-92-100-108-116 lykkjur. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 15 cm er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – lesið ÚRTAKA-1 = 2 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona með 8-8-8½-9-9½-10 cm millibili alls 6 sinnum = 70-74-80-88-96-104 lykkjur. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 64-66-72-78-86-92 lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð, fækkið alls 0-0-1-3-5-7 sinnum = 64-66-70-72-76-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm fellið af miðju 16-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli = 24-24-25-26-27-28 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið síðan af lykkjur fyrir aflíðandi öxl í byrjun á hverri umferð við háls – þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá réttu á hægri öxl (séð þegar stykkið er mátað) og í byrjun á hverri umferð frá röngu á vinstri öxl (séð þegar stykkið er mátað). Fellið af fyrir skáhallandi öxl þannig: 6 lykkjur 3 sinnum, síðan eru felldar af 6-6-7-8-9-10 lykkjur sem eftir eru. Endurtakið í hinni hliðinni. Stykkið mælist alls 79-82-85-88-91-94 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 46-49-49-55-58-61 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan) á hringprjón 7 með Air. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 4 lykkjur garðaprjón. Prjónið 6 umferðir svona. Prjónið síðan stykkið áfram frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 4 lykkjur garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í sléttprjóni er lykkjufjöldinn jafnaður til 45-47-50-54-58-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm, stillið af við bakstykki, fitjið upp 1 kantlykkju í lok næstu umferðar frá réttu = 46-48-51-55-59-63 lykkjur. Prjónið síðan stykkið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið.
Fellið af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 15 cm er fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkju í hlið í lok næstu umferðar frá réttu. Fellið svona af með 8-8-8½-9-9½-10 cm millibili alls 6 sinnum = 40-42-45-49-53-57 lykkjur. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm fellið nú af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 37-38-40-41-43-44 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 59-61-63-65-66-68 cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 5 kantlykkjur að framan – lesið ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 8-9-10-10-11-11 sinnum = 29-29-30-31-32-33 lykkjur eftir þegar úrtaka fyrir hálsmáli er lokið. Þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm fellið af fyrir skáhallandi öxl í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: 6 lykkjur 3 sinnum, 6-6-7-8-9-10 lykkjur 1 sinni = 5 kantlykkjur að framan eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón yfir kantlykkjur að framan þar til kantur að framan mælist ca 10-11-11-12-13-13 cm frá þar sem síðasta lykkjan var felld af fyrir skáhallandi öxl (það á að sauma hana við kant í hálsmáli á bakstykki).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki, nema gagnstætt. Ekki fella af fyrir hnappagötum.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.
Fitjið upp 44-47-47-50-50-53 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4 með Air. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-7-7 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu, prjónið 1 umferð stroff eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 11-12-12-13-13-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING! = 55-59-59-63-63-67 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 37-37-37-37-37-37 cm og prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 8-9-6-7-4-6 lykkjur jafnt yfir = 47-50-53-56-59-61 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 45-45-45-45-45-45 cm. Fellið nú af 4 lykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 15-18-21-24-27-29 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, ermin mælist 50-50-50-50-50-50 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Fitjið upp 25 lykkjur á hringprjón 7 með Air.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón, síðan er prjónað KLUKKUPRJÓN með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16 cm eru prjónaðar 2 umferðir í garðaprjóni, fellið síðan af.
Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, saumið niður að klauf (= 14 cm klauf). Saumið axlasauma og saumið kant í hálsmáli saman frá framstykki og saumið við hálsmál að aftan. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið, saumið síðan ermar við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið einn vasa á hvort framstykki – ca 14 cm frá neðri kanti og 8 cm frá miðju að framan – sjá mynd.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.08.2019
Það á að vera 60 cm, ekki 40 cm (öxl að öxl) á mæliteikningu í stærstu stærðinni

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Heleen wrote:

Geachte heer/ mevrouw, Ik wil dit patroon plus garen graag bestellen, maar ik zie geen winkelwagentje, Kunt u mij helpen. Met vr groet,

31.03.2021 - 23:55

DROPS Design answered:

Dag Heleen,

Het patroon kun je op onze site gratis downloaden via de knop 'Afdrukken' onderaan de materialenlijst. Voor het garen kun je terecht bij een van onze verkooppunten

01.04.2021 - 20:06

country flag Lise Emond Pellerin wrote:

À chaue fois que je tricot une bordure elle condolle toujours pourquoi..

04.03.2021 - 23:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pellerin, je ne suis pas sûre de voir de quelle bordure vous parlez, toutefois, bien souvent un simple "blocage" peut permettre de retirer toute irrégularité, humidifiez votre ouvrage terminé (ou bien lavez-le en suivant les indications de l'étiquette) et faites le sécher bien à plat, en épinglant les parties "rebelles" si besoin. Bon tricot!

05.03.2021 - 07:44

country flag Mette Tode wrote:

Jeg er i tvivl om, hvad der er ærmets længde og hvad der hører til ærmegabet - altså hvor langt skal ærmet syes sammen inden det monteres i ærmegabet?

03.02.2021 - 19:30

DROPS Design answered:

Hej Mette, ærmet måler 45 cm når du tager ind til ærmekuppel :)

17.05.2021 - 16:01

country flag Małgorzata wrote:

Szkoda, że zapytania i komentarze nie są tłumaczone na język polski, na pewno zawarte są w nich cenne uwagi :) taka moja sugestia i prośba , pozdrawiam ciepło Małgorzata

26.01.2021 - 14:29

DROPS Design answered:

Witaj Małgorzato, obawiam się, że to byłoby bardzo trudne do wykonania. Zachęcam do zadawania pytań jak tylko pojawi się wątpliwość dotycząca wzoru, zawsze odpowiadamy:) Pozdrawiamy!

26.01.2021 - 16:05

country flag Malene Wulff wrote:

Hej. Jeg skal lukke af til skuldre, først ve side fra vrang siden, jeg forstår ikke hvad der menes, 6 masker 3 gange derefter lukkes de sidste 6 masker af? Hvordan skal det forstås? Mange hilsner Malene

04.01.2021 - 22:01

DROPS Design answered:

Hei Malene. Du har 24 masker igjen på hver skulder.Fell 6 masker på første pinne fra vrangen, strikk pinnen ut, neste pinne fra vrangen felles det også 6 masker og 3. pinne fra vrangen felles det også 6 masker. Du har nå felt 18 masker og har 6 masker igjen på pinnen, fell nå de resterende 6 maskene av. Gjenta i den andre siden. God Fornøyelse!

13.01.2021 - 15:51

country flag Melanie wrote:

Hallo! Habe die Jacke gerade fertig gestellt. Sie sieht toll aus in Jeansblau! Danke für die super Anleitung!

01.01.2021 - 13:56

country flag Peggy wrote:

Hallo, beim Ärmel wird erst das Bündchen gestrickt, in der letzten Reihe nehme ich 11 Maschen zu, dann stricke ich Vollpatent bis ich 37 cm erreicht habe. Aber wann nehme ich die 8 Maschen ab? In der Beschreibung steht gleichzeitig mit Beginn des Wechsels auf Nadel 7.... Über eine kurze Rückmeldung würde ich mich freuen. Viele Grüße Peggy

05.10.2020 - 21:31

DROPS Design answered:

Liebe Peggy, wenn die Ärmel 37 cm mist, dann stricken Sie 1 Reihe glatt rechts und gleichzeitig nehmen Sie 8 Maschen ab. Jetzt stricken Sie glatt rechts über die 47 Maschen bis die Arbeit 45 cm mist (immer noch mit der Nadel Nr 7). Viel Spaß beim stricken!

06.10.2020 - 10:52

country flag Aj wrote:

Drops pattern 191-18 Hi il doing this pattern but a bit confused on the shoulders on the back piece I cast off from the arms (not the neck) On the front sides do I cast off the same way or the other side eg after the band side?

11.07.2020 - 19:21

DROPS Design answered:

Dear Aj, you cast off for shoulder at the beg of the row from the armhole (from RS on right shoulder, from WS on left shoulder). On right front piece, you cast off for shoulder at the beg of rows from WS and for left front piece at the beg of rows from RS. Happy knitting!

13.07.2020 - 09:35

country flag Nora wrote:

Bij dit patroon bij de uitleg van de Engelse Patentsteek staat bij naald 2: tot er 2 steken over zijn, eindig met 1 omslag, 1 steek averecht, 1 steek ribbelsteek. Dit moet volgens mij zijn: 1 omslag, 1 steek averecht afhalen, 1 steek ribbelsteek.

08.07.2020 - 10:53

country flag Mette wrote:

Jeg har et spørgsmål til højre forstykke - er det virkelig rigtigt, at jeg allerede skal begynde at tage ind , når arbejdet målet 15 cm? Og også allerede tage ind til knaphul der?

09.05.2020 - 19:11

DROPS Design answered:

Hej Mette, Ja vi tager ind i hver side, så jakken former sig mere til kroppen. Og ja vi har lavet 6 knapper inden vi starter på indtagningerne til v-hals. Vil du kun have 5 knapper, så starter du bare højere oppe :)

12.05.2020 - 15:09