DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Rosalina

Heklað pils með sólfjaðramynstri úr DROPS Muskat, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 190-28
DROPS Design: Mynstur r-729
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 09, ljós brúnn

DROPS HEKLUNÁL 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Boglaga (hvít) NR 521: 5 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar (þ.e.a.s. þegar heklað er fram og til baka er ekki hekluð 1 keðjulykkja í loftlykkju í byrjun á umferð).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur (koma ekki í stað fyrsta stuðul).
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).

ÚTAUKNING:
Aukið er út í umferð 1, 4, 7, 11 og 12 í mynstri A.2b (þ.e.a.s. aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir alls 5 sinnum í hverri endurtekningu í A.2b á hæðina).
Aukið er út með því að hekla 2 stuðla í/um sömu lykkju.
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 stuðlar) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 22.
Í þessu dæmi þá er aukið út um 1 stuðul í/um/á milli 22. hverrar lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka þar til klauf í hlið hefur verið hekluð til loka, síðan er heklað í hring.

PILS:
Heklið 142-156-170-184-212-233 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Muskat.
Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 120-132-144-156-180-198 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið A.2a alls 20-22-24-26-30-33 sinnum á breidd. Þegar A.2a hefur verið heklað, heklið A.2b yfir A.2a (fyrsta umferð í A.2b er frá röngu) og aukið út þannig (þ.e.a.s. aukið út í fyrstu umferð og A.2b er endurtekið á hæðina): ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Aukið út um 6 stuðla jafnt yfir - lesið ÚTAUKNING – alls 16-16-17-18-18-20 sinnum = 216-228-246-264-288-318 lykkjur. Í hvert skipti sem aukið er út, heklið 1 mynstureiningu fleiri af A.2b á breiddina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11 cm endar klaufin í hlið og stykkið er nú heklað í hring með byrjun á umferð í hlið. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm, endið fallega miðað við mynstur.

KANTUR AÐ OFAN:
Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju þar sem stuðlar voru heklaðir í fyrstu umferð 120-132-144-156-180-198 fastalykkjur. Heklið alls 3 umferðir með fastalykkjum. Klippið frá og festið enda.

HNESLUR:
Meðfram hlið á opi sem tilheyrir framstykki eru heklaðar hneslur þannig (byrjið neðst niðri): Heklið 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð og 1 fastalykkju um hverja fastalykkju umferð þannig: Heklið 1 keðjulykkju um fyrstu umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, * heklið fastalykkjur um næsta stuðul/fastalykkju umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* alls 4 sinnum og endið með 2 fastalykkjum um 2 síðustu fastalykkju umferðir efst, snúið og heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur í hvern loftlykkjuboga. Klippið frá og festið enda.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram annarri hlið á opi eru heklaðar 5 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram og til baka (í 1. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð og 1 fastalykkja um hverja fastalykkju umferð), klippið frá. Saumið tölur í kantinn.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja í aftari lykkjuboga á lykkju frá réttu og í fremri lykkjuboga í lykkju frá röngu
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull á milli 2 stuðla
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 stuðul í/um næsta stuðul/loftlykkju, 1 stuðull í lykkju sem hoppað var yfir
symbols = stuðlahópur: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 2 stuðla í sama stuðul alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu/síðustu fastalykkju í sólfjöður 2 umferðum neðar (passið nú uppá að hekla samtímis um loftlykkju í umferðinni mitt á milli)
symbols = aukið út jafnt yfir – sjá mynstur
symbols = fyrsta umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum, umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í A.2
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju, umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í A.2
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rosalina

Kaderus, Czech Republic

Rosalina

Shweta Kongari, India

Handmade work

Enza, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Anne Mari Sahlberg wrote:

A.2b: Er på rad 11 (2 staver i masken) Er det mening at jeg skal hekle dblstav i 1 maske deretter hoppe over enmaske, så 1 luftmaske og så hekle dbl.stav i maske igjen?

25.03.2019 - 13:06

DROPS Design answered:

Hei Anne-Marie. Det var en litt utydelig forklaing til det symbolet, vi har nå endret denne. Du hekler altså slik på rad 10: 1 luftmaske, 2 staver i den midterste fastmasken i viften, 1 luftmaske, 2 staver i luftmasken. Gjenta dette ut omgangen. På rad 11 hekler du slik: 1 dobbelstav i den første fastmasken i viften 2 rader under (du hekler da samtidig rundt luftmasken på forrige rad), 1 stav i hver av de neste 2 stavene, 1 dobbelstav i den siste fastmasken i viften 2 rader under, 1 stav i hver av de 2 stav. God fornøyeløse

02.04.2019 - 12:04

country flag Marianne wrote:

Mijn vraag is: moet de aangehaakte bies voor de knopen dubbelgeslagen worden vastgezet (stevigheid knopen)? Ik kan het antwoord nergens vinden. Alvast bedankt. Verder even melden dat dit een heel leuk patroon is!

11.03.2019 - 16:44

DROPS Design answered:

Dag Marianne,

Klopt, je vouwt de bies dubbel naar de binnenkant en op de buitenkant naai je de knopen door beide lagen heen.

12.03.2019 - 15:25

country flag Vicky wrote:

Hi, I don't understand what it means on row A. 2a it says work 24 times across the row. When I do 24 clusters of this stitch it only takes me to half way across the length. Should I carry this on to the end of the row before starting A. 2b or should I move on mid row? Many thanks for your help.

24.02.2019 - 23:20

DROPS Design answered:

Hi Vicky, Yes, A.2 a consists of 6 stitches and you repeat these 6 stitches 24 times on the row = 144 stitches, which takes you to the end of the row. Happy crocheting!

25.02.2019 - 06:45

country flag Jessi wrote:

Hallo. Mit welcher Maschenart ist die Maschenprobe zu fertigen?

02.02.2019 - 20:46

DROPS Design answered:

Liebe Jessi, die Maschenprobe wird mit Stäbchen gehäkelt: 18 Stäbchen und 9 Reihen = 10 x 10 cm. Viel Spaß beim häkeln!

04.02.2019 - 11:53

country flag Fr Schneider wrote:

Hallo,habe nun zwei mal das Diagramm gehäkelt,doch ich weiß nicht,ob ich immer weiter zunehmen soll,oder nicht.

21.01.2019 - 17:34

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schneider, die Zunahmen häkeln Sie n Reihe/Runde 1, 4, 7, 11 und 12 von Muster A.2b und es wird insgesamt 16-16-17-18-18-20 Mal 6 Stäbchen zugenommen. Wenn alle Zunahme fertig sind, haben Sie 216-228-246-264-288-318 Maschen. Wenn Sie die richtige Maschenanzahl noch nicht haben, dann häkeln Sie wie zuvor mit Zunahmen weiter, bis alle Zunahmen gehäkelt sind. Viel Spaß beim häkeln!

22.01.2019 - 07:54

country flag Minoush wrote:

Vielen Dank für die Anleitung! Mein Rock (mit Drops Karisma) ist fertig, doch ich habe eine Frage: Warum wird in der 1. Reihe jede 6. Luftmasche übersprungen? Ich erkenne keinen Sinn darin. Danke für die Antwort.

10.01.2019 - 18:14

DROPS Design answered:

Liebe Minoush, oft ist die Anschlagskante mit den Luftmaschen am Anfang einer Arbeit etwas zu eng, deshalb häkelt man mehr Luftmaschen am Anfang und dann bei der 1. Reihe werden Luftmaschen übersprungen um die richtige Breite zu bekommen. Viel Spaß beim häkeln!

11.01.2019 - 09:03

country flag FR Schneider wrote:

Hallo,in der AnLeitung sind immer wieder die Sternchen*. Was beSeite der * Stern?

08.01.2019 - 19:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schneider, den Teil zwischen Sternchen (* = von *bis *) müssen Sie wiederholen. Z.B ganz am Anfang wenn Sie lesen: * 1 Luftmasche überspringen, je 1 Stäbchen in die nächsten 6 Luftmaschen *, von *-* bis Reihenende wiederholen, bedeutet es Sie sollen so weiter häkeln, in dem Sie den Teil zwischen den Sternchen genauso wiederholen. Viel Spaß beim häkeln!

09.01.2019 - 08:21

country flag Saioa wrote:

Hola, podrían explicar mejor este punto: «en la 1ª fila/ vuelta trabajar 1 punto de cadeneta, en la siguiente fila/vuelta trabajar 1 punto bajo dentro del punto de cadeneta y el primer y último punto bajo en el diagrama.» Gracias!

18.11.2018 - 09:24

DROPS Design answered:

Hola Saioa. Hay una corrección en el diagrama. Trabajamos puntos altos dobles alrededor o dentro de los puntos. Aquí tienes el vídeo:

27.01.2019 - 19:00

country flag Lone Skov Pedersen wrote:

Har lige lavet denne søde nederdel i str S til min datter... den blev SÅ flot😄

28.10.2018 - 14:29

country flag Clea wrote:

Hvilken måleenhed står tallene på tegningen af nederdelen i? Det passer hverken med cm eller tommer... Umiddelbart tænker jeg, jeg skal have en small, men jeg vil lige være sikker. Mvh Clea

17.10.2018 - 14:50

DROPS Design answered:

Hei Clea. Målene på målskissen står i cm. Husk at vidden kun er den ene siden av plagget (Når det ligger flatt), så om du vil ha målene hele veien rundt må du gange med 2. God fonrøyelse.

18.10.2018 - 12:00