Narvik Jacket |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki. Stærð 2-12 ára. Prjónuð húfa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri og dúski.
DROPS Children 32-11 |
|||||||||||||||||||
---------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-16 lykkjur framhjá lykkju með prjónamerki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-29-31-33 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-43-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-57-61-65 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-71-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-85-91-97 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.2 á einungis við um stærð 2 og 3/4 ára). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Í umferð þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er einnig prjónað með lit í rönd eða grunnlit í mynsturbekk yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2 (á við um norrænt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 21) = 3,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 17. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 16. og 17. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-3 (á við um húfu): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati á hægri kant að framan (þegar stykkið er mátað). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-6-6-7 næstu hnappagötum með ca 8-7½-8-7½-8-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 92-95-98-101-104-107 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með vínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið (ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist ca 2-2½ cm er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 21-24-27-30-33-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 113-119-125-131-137-143 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónaðu UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og ÚTAUKNING. Ör-1: Aukið út um 10-12-14-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 123-131-139-147-155-163 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 8 lykkjum). Ör-2: Aukið út um 24-32-32-40-32-40 lykkjur jafnt yfir = 147-163-171-187-187-203 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-19-20-22-22-24 mynstureiningar með 8 lykkjum – ATH: Passið uppá að fá með útaukningar á milli ör-2 og ör-3 sem eru teiknaðar í mynsturteikningu). Ör-3: Nú eru 181-201-211-231-231-251 lykkjur í umferð. Aukið út um 22-18-24-20-32-30 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 203-219-235-251-263-281 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14-15-14-15 mynstureiningar með 16-16-16-16-18-18 lykkjum). Ör-4: Aukið út um 18-26-16-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 221-245-251-257-269-287 lykkjur (nú er pláss fyrir 35-39-40-41-43-46 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 15-16-17-18-19-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er hægt að prjóna sléttprjón með ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu með ljós grár þannig: Prjónið 37-40-42-43-45-48 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-48-47-48-50-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-6 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 63-69-73-75-79-85 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 42-48-47-48-50-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 37-40-42-43-45-48 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 149-161-169-177-185-193 lykkjur. Prjónið síðan þannig: STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA: Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðarpjóni, prjónið síðan A.2A hringinn þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 23-25 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 17-20 cm frá skiptingu. Prjónið síðan STROFF eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára: Prjónið sléttprjón fram og til baka með ljós grár og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið miðju að framan þar til stykkið mælist 23-26-29-32 cm frá skiptingu. Prjónið síðan STROFF eins og útskýrt er að neðan. STROFF: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-33-34-35-39-43 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 179-194-203-212-224-233 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-48-47-48-50-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-6 lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi = 48-54-53-56-58-59 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-6 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA: Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið 1 umferð slétt með ljós grár. Síðan er prjónað A.2A hringinn (= 8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með ljós grár eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára: Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ljós grár. Haldið áfram eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-3 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-3½-4-4-4½ cm millibili alls 6-8-7-7-8-8 sinnum = 36-38-39-42-42-43 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 19-22-26-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-1-3-3-6-5 lykkjur jafnt yfir = 36-39-42-45-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 23-26-30-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. ---------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Fitjið upp 102-105-114-117 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-9-6-9 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA-2 = 96-96-108-108 lykkjur. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 8-8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með ljós grár til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18 cm setjið 8-8-9-9 prjónamerki í stykkið með 12 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3 (= 8-8-9-9 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinnum í öllum stærðum = 48-48-54-54 lykkjur eftir á prjóni * Prjónið 1 umferð slétt, í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar = 12-12-14-14 lykkjur eftir á prjónum. Klippið frá, dragið bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 20-21-22-23 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með natur ca 4-5 cm að þvermáli og festið á toppinn á húfunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Claudette Grenier wrote:
Bonjour, Sur le patron du bonnet, vers la fin, vous dite: Diminuer ainsi 6 fois........= il reste 48-48-54-54. Moi j'arrive à 45 mailles? Pourquoi ? âge 5/6 ans. Merci.
31.01.2020 - 05:02DROPS Design answered:
Bonjour Mme Grenier, en taille 5/8 ans vous avez 108 m et diminuez 6 fois 9 mailles (soit 54 m au total), il doit vous rester: 108-54= 54 m. Bon tricot!
31.01.2020 - 07:30Claudette Grenier wrote:
Sur l'échantillon de 10x10 cm: 21 mailles en largeur et 28 rangs en hauteur jersey et jacquard nordique. Dois-je faire mon échantillon en jacquard? ou bien en jersey (endroit et envers)? Si c'est en jacquard nordique je dois prendre le A1.A 5-6 ans que je veux faire? Merci. Une bonne et heureuse année 2020 à toute votre belle équipe. Santé. On fait tout avec ça. Merci.
30.12.2019 - 16:24DROPS Design answered:
Bonjour Mme Grenier, votre échantillon doit être en jersey endroit (= mais vous auriez le même résultat en jersey envers), et doit être le même en jacquard, autrement dit, vous pouvez tricoter 1 échantillon en jersey et 1 en jacquard (= n'importe quel diagramme, par ex. A.3 peut être pratique car il ne comporte pas d'augmentations) et le nombre de mailles et de rangs doit être le même dans les deux cas. Bon tricot!
02.01.2020 - 13:47Christine Aiguillon wrote:
Malgré un échantillon réalisé. Le modèle de bonnet est vraiment trop petit. 40 cm de tour de tête pour un 50cm. J'ai utilisé les aiguilles 2.5 puis 3.5 comme conseillé et je prend une aiguille 4 pour le jacquard. Me conseillez vous 3.5 pour les cotes et 4 et 5 . Par avance je vous remercie
10.02.2019 - 09:14DROPS Design answered:
Bonjour Christine! Si votre echantillon etais correct, mails le bonnet est trop petit, je vous conseille de realiser une taille plus grande. N'oubliez pas de faire le jaquard souplement, autrement la partie du bonnet avec jaquard peut resserer votre ouvrage. Bon tricot!
11.02.2019 - 07:25Shahira Rezk wrote:
Bonjour! Je vous suits depuis plus de 4 ans est j'adord....voila Je be trouve pas d'explication pour faire un pompon est la Je bloque . Pouring vous s'il vous plait m'aider. Merci Shahira
15.01.2019 - 19:37DROPS Design answered:
Bonjour Shahira Rezk! Consulterez le video sur ce sujet ICI. Bon tricot!
16.01.2019 - 07:27