Narvik |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu fyrir herra úr DROPS Merino Extra Fine með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður og prjónaðri húfu. Stærð S - XXXL.
DROPS 185-6 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá eru prjónaðar ca 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi): Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Eftir kant í hálsmáli er hægt að prjóna upphækkun fram og til baka í hnakka til þess að flíkin passi betur þannig að kantur í hálsmáli verður aðeins hærri í hnakka – það er hægt að sleppa þessari upphækkun – sjá útskýringu í uppskrift. Eftir upphækkun er berustykki og fram- og bakstykki prjónað áfram hringinn á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-99-105-108-111-117 lykkjur á hringprjón 3 með litnum rauður Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-33-39-40-41-43 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 124-132-144-148-152-160 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú e.t.v. upphækkun aftan í hnakka eða farið beint áfram í að prjóna berustykki. UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum rauður og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-15-16-17 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-30-32-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-45-48-51 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-60-64-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-75-80-85 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-96-102 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er A.1 prjónað hringinn (= 31-33-36-37-38-40 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstrið og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 er aukið út um 28-32-36-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 152-164-180-184-188-200 lykkjur. Í umferð merktri með ör-2 er aukið út um 24-28-36-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 176-192-216-216-224-236 lykkjur. Í umferð merktri með ör-3 er aukið út um 24-24-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 200-216-244-244-256-272 lykkjur. Í umferð merktri með ör-4 er aukið út um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 224-240-272-272-288-304 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 14-15-17-17-18-19 mynstureiningar með 16 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 280-300-340-374-396-418 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 og aukið jafnframt út 2-6-2-4-0-2 lykkjur jafnt yfir í umferð með ör-5 í A.2 = 282-306-342-378-396-420 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 47-51-57-63-66-70 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð með ör-6 í A.3 er aukið út um 24-32-20-14-16-22 lykkjur jafnt yfir = 306-338-362-392-412-442 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23-23-23-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón með llitnum ljós grár þar til stykkið mælist 24-26-28-30-32-34 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-53-59-63-69 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-101-107-118-126-139 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-51-54-59-63-70 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-234-256-276-306 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 25 cm = 194-210-226-248-268-298 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 35 cm í öllum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 43-45-50-55-59-65 lykkjur jafnt yfir = 237-255-276-303-327-363 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til þess að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjurnar (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 13.-9.-7.-6.-5.-5. hverri umferð alls 9-12-15-16-18-19 sinnum = 50-52-54-56-56-58 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-43-42-40-39-39 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-8-6-7-7-8 lykkjur jafnt yfir = 57-60-60-63-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 48-46-45-43-42-41 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 114-123 lykkjur á hringprjón 3 með litnum rauður Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 2-3 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 112-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið mynstur A.4 (= 28-30 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.4 er aukið út um 2-0 lykkjur jafnt yfir = 114-120 lykkjur. Prjónið síðan A.5 hringinn (= 19-20 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 7 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 18-20 cm er fækkað um 2-0 lykkjur jafnt yfir = 112-120 lykkjur. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með 14-15 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9 sinnum = 40-48 lykkjur. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman = 20-24 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 27-29 cm ofan frá og niður. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Lena Jarl wrote:
Jag är så besviken. Jag har stickat en dam och en herr narviktröja i merino extra fine. När jag tvättat dem i maskin 40 grader blev de en till två storlekar större. Läste extra noga på er hemsida vad som gällde för garnet. Varför blir det så? Har ni något förslag på vad jag kan göra för att tröjorna ska kunna användas? /Lena
01.08.2021 - 20:12DROPS Design answered:
Hei Lena. Det var kjedelig å høre. Den spesielle oppbyggingen av DROPS Merino Extra Fine gjør garnet ekstra elastisk. Det er derfor viktig å ha riktig strikkefasthet for å unngå at plagget strekkes. Ved vask må også vaske anvisningen følges (ikke ullvask eller finvask) og den må tørkes flatt i fasong. Ha hørt at mange som har vasket plagg i Merino feil (har blitt for stor), har tørket den i tørketrommel. Har da fått størrelsen og fasong tilbake. Kanskje verdt et forsøk? mvh DROPS design
12.08.2021 - 07:25Gurli Rasmussen wrote:
Jeg er i gang med diagram A2 til Narvik Sweater nr 185-6. Hvordan gør jeg med udtagningerne med slå om masker, når der er mønsterpinde ? f.eks 3 m hvid 1 m grå og efter 16 m lav et omslag, så bliver der jo 4 m mellem de grå og det hele er forskudt ? eller vil det ikke ses ? På forhånd tak :)
08.07.2021 - 21:56DROPS Design answered:
Hej Gurli, ja det stemmer og det gør ikke noget. Hvis du absolut ikke vil have 4 masker imellem, så kan du lave udtagningen på næste pind istedet for.... :)
13.07.2021 - 15:37Spbrkr wrote:
If you want to avoid the jog (or "step") at the beginning of each fair-isle round, go to Youtube and search for "jogless jog". There are techniques that make the start of the new round almost invisible in the fair isle. Happy knitting!
08.06.2020 - 22:08Julia wrote:
Hallo, gibt es einen Trick, wie man die Stufe am Rundenanfang verhindert, die entsteht, wenn man ein Norweger-Fair Isle Muster in Runden strickt? Die Methode mit dem Aufheben der unteren Masche wie im Vido erklärt fällt auf, wenn man sie mehrere Runden hintereinander macht. Viele Grüße/ Hello, is there a trick on how to avoid the "step" at the beginning of each round that comes from circular knitting? The method described in the video is unfortunately visible. Greetings
03.03.2020 - 12:44Christina wrote:
Guten Abend! Ich möchte zur Bestimmung der zu strickenden Größe gern wissem wie sich das Garn nach dem Waschen verhält. Für diese Anleitung habe ich mir die Drops Lima ausgesucht. Mir ist so, als würde Schurwolle nach dem Waschen ein wenig 'ausleiern', also das Strickobjekt größer werden?! Dann müsste ich für die gewünschte Größe XL (eigentlich nur wegen der breiten Schultern) eine L stricken? Viele Grüße!
30.12.2019 - 20:31DROPS Design answered:
Liebe Christina, am besten waschen Sie immer Ihre Maschenprobe bevor Sie das Modell stricken, Maschenprobe auch mal trocknen lassen, und nochmal messen, und wenn nötig die Nadlegrösse anpassen. Ihr DROPS Laden wird für Sie noch mehr Tipps haben. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2020 - 17:13Frøydis wrote:
Jeg har strikket en annen genser hvor det også skulle legges ut masker nederst på bolen før man skulle strikke vrangbord. Det ble ikke pent, altfor romslig. Jeg tok det opp igjen og strikket vrangborden uten å legge opp nye masker, og det ble bedre. Jeg kommer ikke til å øke maskeantallet før jeg strikker vrangborden nederst på denne.
23.08.2019 - 16:24Cecilie Horn wrote:
Stemmer det virkelig at man skal legge ut masker like før vrangborden nederst på genseren? Det normale er jo at det er færre masker i vrangborden.
10.02.2019 - 15:07Naida wrote:
Buon giorno che tg ha il modello
04.02.2019 - 16:33Mette wrote:
Hej Hvorfor er der valgt at udtagning gøres med omslag i stedet for at gøre det med usynlige udtagning som i også har i jeres teknik videoer? Med venlig hilsen Mette
14.09.2018 - 01:39DROPS Design answered:
Hej Mette, vi vælger gerne at bruge lidt forskellige udtagninger, men du skal naturligvis bare bruge den du synes bliver pænest. God fornøjelse!
17.09.2018 - 12:54Anne wrote:
Hei, jeg får ikke sett på oppskriften og aner ikke hvordan denne genseren ser ut. Får ikke opp bilde. Har prøvd Google og Microsoft og Firefox. Gjelder oppskrift Drops 185-6
10.09.2018 - 09:13DROPS Design answered:
Hei Anne. Vi har for øyeblikket tekniske problemer med siden vår, dette medfører at diagrammer og bilder dessverre ikke lastes ordentlig. Vi jobber med å løse problemet, og siden vil være tilbake som normalt så snart som mulig. Du kan følge med på vår twitter eller facebookside for oppdateringer. Beklager dette
10.09.2018 - 11:50