Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt | |
= brugðið | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Það eiga ekki að myndast göt | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt. Það eiga að myndast göt | |
= PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, setjið þær aftur til baka á prjóninn, steypið næst ystu lykkjunni yfir ystu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri), setjið til baka síðustu prjónuðu lykkjuna yfir á hægri prjón | |
= PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SNÚAR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, steypið næst síðustu lykkjunni sem var prjónuð yfir síðustu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið steyptar yfir (= 4 lykkjur færri). |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Clover |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og laskalínu. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, eru prjónaðar í þessu dæmi ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur með perluprjóni á ermum og slétttprjóni á framstykki/bakstykki. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið saman. Þá verða 3 lykkjur að 1 lykkju, færið síðan prjónamerki til á undan þessari lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Á eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 54-54-58-62-64-68 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air eða Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 60-60-64-68-72-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið nú 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 prjónamerki eftir nýjar 21-21-23-25-25-31 (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir nýjar 9-9-9-9-11-11 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir nýjar 21-21-23-25-25-31 lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-9-9-11-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Prjónið næstu umferð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki, í skiptingunni á milli ermi og bakstykkis. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-19-21-23-23-29 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkju slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-7-9-9 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1-1-2-3-3-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 17 lykkjur = framstykki), prjónið 1-1-2-3-3-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-7-9-9 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrsta útaukningin fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-17 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan). ATH: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 (= 21 lykkja) yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina til loka. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 168-176-188-200-212-224 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, án útaukningar, þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Næsta umferð er prjónað í mynstri og sléttprjóni eins og áður, en byrjið umferð 1 lykkju fyrr (á undan 2 lykkjum í sléttprjóni á milli ermi og bakstykkis). Prjónið sléttprjón yfir 49-51-55-59-61-67 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-43 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram í sléttprjóni og mynstur yfir næstu 53-55-59-63-65-71 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-43 lykkjur á þráð (= hin ermin), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 110-114-122-134-138-150 lykkjur í umferð. Tengið saman stykkið og haldið áfram í sléttprjóni og mynstur A.2 eins og áður. Þegar stykkið mælist 16-19-22-25-28-31 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-12-14-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 120-126-136-150-156-170 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 5,5. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjón 5,5 (= 33-35-37-39-43-43 lykkjur). Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 37-39-41-45-49-49 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjurnar og byrjið umferð hér. Prjónið perluprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3½-4-4½-5½ cm millibili alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 25-27-27-31-35-35 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-3-3-3-3-3 lykkjur í öllum stærðum = 28-30-30-34-38-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff með 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 4 cm. Fellið laust af með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, fellið af með prjón 5,5. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina alveg eins. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (58)
Hege Berg wrote:
Hei. Jeg er på første omg etter vrangbordenbi halsen. Har strikket 3 cm, så økt til 64 masker. Strikker str 5/6 år. På første omgang med mønster på forstykket får jeg ikke til å gå opp, jeg har 23 masker, må da strikke først 1 m rett, 1 kast, 3 rett, 17 mønster, 2 rett kast og 1 rett før neste merke til arm. 1+3+17+2+1= 24. For det står jo at det skal være 2 rett med merke midt i mellom... Er det noe jeg har misforstått eller er det feil en plass?
03.03.2022 - 04:40DROPS Design answered:
Hei Hege. Ja, du har 23 masker på forstykket, men i oppskriften er det forklart hvordan du strikker forstykket inkl raglanøkningene. Der det står "Lag 1 kast om pinnen, 2 masker rett (merketråden sitter mellom disse 2 maskene)", så "tilhører" kastet og 1 maske rett raglanlinjen, slik at når du skal strikke forstykket er det: 1 maske etter 3. merke, 1 kast, 2 rett, lag 1 kast strikk A.1 (= 17 masker = forstykke), strikk 2 masker glattstrikk, lag 1 kast om pinnen, strikk 1 (før 4. merke) = 23 masker + 2 kast (raglanøkninger). mvh DROPS Design
07.03.2022 - 13:34Robinet wrote:
Bonjour Pour les manches (point de riz), suite à chaque l’augmentation de raglan, je dois augmenter aussi les mailles pour le point de riz (il ne reste pas toujours à 7 mailles (7-8ans) comme annoncé au 1er rang? Merci
27.01.2022 - 07:38DROPS Design answered:
Bonjour Mme Robinet, lorsque l'on augmente pour le raglan, on augmente 2 mailles sur chaque pièce: 2 sur le devant, 2 sur le dos (= on les tricote en jersey), et 2 sur chacune des manches; les augmentations des manches vont se tricoter au point de riz autrement dit, le nombre de mailles tricotées au point de riz pour les manches va augmenter de 2 mailles tous les 2 tours/tours d'augmentations. Bon tricot!
27.01.2022 - 08:58AMANDA BONECHI wrote:
Buon giorno ho comprato lana per fare questo maglione. Non capisco cosa vuole dire questa scritta nel testo dello sotto lo spron e"iniziare il giro 1 maglia prima (prima delle 2 maglie a maglia rasata tra le maniche e il dietro). Lavorare a maglia rasata su 49-51-55-59-61-67 maglie (= dietro), mettere le 33-35-37-39" . Non ho chiaro cosa dobbiamo fare. Ho già acquistata tramite voi lana e ferri.
08.11.2021 - 11:57DROPS Design answered:
Buonasera Amanda, in quel punto deve iniziare il lavoro 1 maglia prima e lavorare la separazione delle maniche dal corpo come indicato. Buon lavoro!
10.11.2021 - 23:23Marita wrote:
I mönster skal det strikkes "5 masker vridd rett sammen" slik: strikk 5 masker rett, löft den nest siste ...osv.. Skal disse 5 maskene strikkes rett eller skal de strikkes vridd rett?
14.10.2021 - 13:21DROPS Design answered:
Hej Marita. De ska stickas rett. I denna video kan du se hur du ska göra. Mvh DROPS Design
15.10.2021 - 07:48Anne wrote:
Bonjour, pour les diminutions de manches, je ne comprends pas pourquoi la fréquence de diminutions est indiquée en nombre de mailles. Ce ne serait pas plutôt en nombre de rangs? Merci.
11.10.2021 - 16:21DROPS Design answered:
Bonjour Anne, la fréquence des diminutions sous la manche est bien indiquée en cm, en fonction de la taille vous diminuerez 6 ou 7 fois tous les 2½-3-3½-4-4½-5½ cm - ajustez votre nombre de rangs en fonction de la hauteur indiquée pour la taille tricotée. Bon tricot!
12.10.2021 - 08:25Anne wrote:
Bonjour Ma question porte sur le motif. Pour faire une maille endroit torse, je pique dans le brin arrière de la maille. Mais sur votre vidéo, je ne vois aucune différence entre maille endroit torse et maille endroit normale. ?? Avec ma méthode, qui ne doit pas être bonne, un trou important se forme à l’emplacement des 5 mailles endroit torses. Et à l’emplacement des 5 m.endroit, la maille qui contient les 4 m. diminuées est trop voyante! Que se passe t il ?
06.10.2021 - 20:45DROPS Design answered:
Bonjour Anne, pour les 5 m ens à l'end tricotez ces 5 m et remettez-les sur l'aiguille gauche, passez la dernière des m tricotées par-dessus les 4 autres et ainsi de suite jusqu'à ce qu'il n'en reste qu'une = la 1ère des 5 m tricotées; pour les 5 m ens torse à l'end, tricotez 5 m et laissez-les sur l'aiguille droite, passez la 1ère de ces 5m par-dessus les 4 autres et ainsi de suite jusqu'à ce qu'il n'en reste qu'1= la dernière de ces 5 m. Serrez le fil si besoin pour éviter que le trou ne soit trop grand. Bon tricot!
07.10.2021 - 08:27Astrid wrote:
Hej! Jag stickar DROPS CHILDREN / 34 / 4. I beskrivningen ser det ut som att man ska ha ett ojämnt antal maskor för varje ärm (37-39-41-45-49-49). Såg att en annan (danska) frågat om detta tidigare men då svarade ni att man ska ta bort en maska. Är inte det ett fel i beskrivningen? För mosstickning måste det väl vara jämnt antal för att inte bli fult under ärmen?
20.09.2021 - 10:24DROPS Design answered:
Hej Astrid. Den danska frågan gällde resåren och där har det nu kommit en rättelse. Gällande mosstickning så ska det vara ett ojämnt antal maskor, sista maskan på varet blir då rät och då blir första maskan på varv 2 avig och hamnar då över den räta maskan på varv 1. Mvh DROPS Design
22.09.2021 - 09:58Christina Christensen wrote:
Jeg har lavet strikkeprøve i Air (pinde 5,5) og vasket denne. Det giver 17,5 masker i bredden og 26 pinde i højden i glatstrik. Før vask var tallene 16 gange 26. Det virker noget skævt i forhold til opskriftens 16 masker gange 20 pinde og bliver vel næppe løst ved at gå op i pinde 6?
10.09.2021 - 18:19DROPS Design answered:
Hei Christina. Ville ha strikket med med pinne 5,5 som er opplyst i oppskriften og ville ha prøvd å strikket en nye strikkeprøve der du får riktig pinne i høyden. Når du vasker, la den tørke i fasong/den strikkefastheten som er oppgitt. mvh DROPS design
20.09.2021 - 11:33Monika wrote:
Jag försökte lägga upp 64 maskor på rundsticka men det fungerar inte då maskantalet är för litet för 40 cm rundsticka ska halsringmungen verkligen vara så liten? Har visserligen ett annat garn, ett acrylgarn "we love yarn" men verkar ju vara samma tjocklek? Mvh Minika
16.08.2021 - 12:15DROPS Design answered:
Hei Monika. Om du ser på målskissen nederst på oppskriften ser du målene på halsen. Om du strikker med DROPS LOVE YOU #8 er dette 100 Bomull, ikke akryl, og det garnet kan du erstatte DROPS Air med. Om det er et garn som ikke er fra oss, kan jeg ikke utale meg om den er like tykk som DROPS Air eller DROPS LOVE YOU #8 og kan brukes på denne oppskriften. mvh DROPS design
16.08.2021 - 14:48Dagny Rasmussen wrote:
Er de meget små i størrelser, synes at str 7-8år har en meget lille åbning også selv om det hele stemmer
22.07.2021 - 13:16DROPS Design answered:
Hej Dagny, Nej, men du kan se målene til de forskellige størrelser i måleskitsen nederst i opskriften :)
04.08.2021 - 08:46