Miss Moss |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum jafnt óðum eru prjónaðar í þessu dæmi ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (= ekki gat) nema á framstykki, þar er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur (þ.e.a.s. í perluprjóni á ermi, sléttprjón á bakstykki og í mynstri/sléttprjón á framstykki). ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman = 1 lykkja (færið prjónamerkið til á undan þessari lykkju). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 50-50-52-56-58-60 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-4-6-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 56-56-60-60-64-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 6-6-6-7-7-7 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-12-14-14-14 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-18-21-21-21 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-28-28-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-30-35-35-35 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur að miðju að aftan, prjónið síðan 10 lykkjur brugðið fram hjá merkiþræði, snúið. Byrjið næstu umferð (þ.e.a.s. í berustykki) hér: BERUSTYKKI: Setjið 2 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptingu á milli ermi og bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-11-11-13-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-11-11-13-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki, í skiptingunni á milli ermi og bakstykkis. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 17 lykkjur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð = framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-20-22 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem var útskýrð að ofan). ATH: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru eftir 2-4-5-6-3-5 útaukningar fyrir laskalínu. Prjónið síðan A.2 (= 43-43-43-43-51-51 lykkjur) yfir A.1, síðustu útaukningarnar eru prjónaðar jafnóðum í sléttprjóni hvoru megin við A.2. Mynsturteikning A.2 er endurtekin á hæðina til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 176-192-204-212-224-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, án útaukninga, þar til stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 50-54-57-60-63-68 lykkjur í sléttprjóni (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 4-6-8-10-8-11 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.2 (= 43-43-43-43-51-51 lykkjur) og prjónið 4-6-8-10-8-11 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 1-1-2-3-4-5 lykkjur (= á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-150-166 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og látið prjónamerkin fylgja áfram í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri A.2. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm frá þar sem stykkið skiptist upp (ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 126-136-144-158-172-190 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón nr 8. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 37-41-43-43-45-45 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna nr 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-4-6-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 41-45-47-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið perluprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-3-2-2 cm millibili alls 7-8-9-9-11-11 sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 36-34-34-32-32-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykki). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 5 lykkjur jafnt yfir = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 41-39-39-37-37-35 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón nr 8. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (39)
Wanda wrote:
Bonjour, Le dos se tricote-t-il en jersey ou aussi en points ajourés ? D'après les explications, il semblerait que ce soit plutôt en jersey, mais cela ne me semble pas très clair. Merci beaucoup
07.03.2024 - 16:21DROPS Design answered:
Bonjour Wanda, tout à fait, vous avez bien compris, le dos se tricote en jersey, pas en point ajouré. Bon tricot!
08.03.2024 - 08:03Herta wrote:
Hallo, ich möchte gerne diesen Pullover stricken, aber ich habe ein Problem mit der Anzahl der Maschen für die Halsblende. Ich verwende das Garn Drops Air zweifädig und mit der angegebenen Nadelstärke von 7 ist die Maschenprobe nicht richtig. Mit Nadelstärke 8 funktioniert die Probe besser, aber wenn ich nun die Halsblende mit 50 Maschen (laut Anleitung für Größe S) anschlage ist die Halsöffnung deutlich zu eng um einen Kopf durchstecken zu können. Wo ist hier mein Denkfehler?
17.11.2023 - 11:11DROPS Design answered:
Liebe Herta, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollte die Maschenanzahl anpassen, ca 42 cm (mit Maschenprobe 12 M für 10 mit Ndln Nr 7) passen ganz schön um den Hals, sollte aber die Anschlagskante etwas zu eng sein, dann benutzen Sie am besten grösseren Nadeln, damit sie etwas locker und elastisch wird. Viel Spaß beim stricken!
17.11.2023 - 14:52K Goodin wrote:
Lovely...merci!..from Colorado
04.02.2022 - 20:11AUDRAIN wrote:
Bonjour, je mesure 1.70m et suis mince, ma taille est entre 36 et 38, combien de pelotes je dois commander svp?merci
30.09.2021 - 10:44DROPS Design answered:
Bonjour Mme Audrain, mesurez un pull similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma, c'est la méthode la plus simple pour trouver sa taille. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
01.10.2021 - 07:27Debora wrote:
Buongiorno, vorrei sapere perchè, una volta finito di lavorare l'alzata, il giro poi non comincia al centro dietro ma spostato di lato. Grazie mille!
13.03.2020 - 14:39DROPS Design answered:
Buongiorno Debora. Dopo l’alzata, l’inizio del giro viene spostato nel passaggio tra la manica e il dietro per rendere meno evidente il cambio del giro. Buon lavoro !
14.03.2020 - 10:50Line wrote:
Jeg har lige strikket en str S til min datter og havde ingen problemer hverken med str eller med opskriften, den passer helt perfekt. Nu skal jeg igang med en str M til mig selv.
05.01.2020 - 23:08Annette wrote:
Der er fejl i maskeantallet, når ærmer skal skilles ud fra hele sættet. Maskerne stemmer med udtagninger i raglan, men når der skal strikke ærme for sig og krop for sig, stemmer maskerne ikke!
15.12.2019 - 18:26Calina wrote:
Jeg er gået i gang med denne trøje. Udtagningerne på ærmerne driller mig, da ærmet skal strikkes i perlestrik og en udtagning på ærmet skal jo strikkes drejet ret. På den måde vil det jo ikke passe med perlestrikken. Hvad skal jeg gøre?
05.03.2019 - 09:48DROPS Design answered:
Hei Calina. Kastene på ermene strikkes vridd rett eller vridd vrang slik at det passer med perlestrikken. God fornøyelse
12.03.2019 - 14:42Mia Merethe wrote:
Jeg lurer på etter økningen til raglan står det at jeg skal strikke videre etter mønster A2, Men på mønster er det kun en maske på starten jeg har 5 etter økningen. Skal jeg fortsette med de 5 eller hvordan gjøres det? På forhånd takk :)
03.03.2019 - 20:36DROPS Design answered:
Hei Mia. Du begynner å strikke A.2 før økningene til raglan er ferdig: Når A.1 er strikket ferdig i høyden gjenstår det 2-4-5-6-3-5 økninger til raglan. Du strikker A.2 over de samme maskene som du striket A.1, og de økte maskene strikkes fortløpende i glattstrikk på hver side av A.2. God fornøyelse
04.03.2019 - 15:00Helle Rothausen wrote:
Hej, jeg vil strikke denne flotte trøje :) Har der været bemærkninger fra andre om fejl i opskriften eller måske steder der er svære at forstå ? Mvh Helle
04.02.2019 - 21:14DROPS Design answered:
Hej Helle, nej der har kun været spørgsmål til størrelserne. Du finder målene på trøjen i måleskitsen nederst i opskriften. Her under kommentarer kan du selv læse hvad andre har spurgt om eller kommenteret :)
06.02.2019 - 10:37