Sjøbris |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-1 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 12. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 4 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í rendur og mynstur. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í rendur og mynstur. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. RENDUR OG MYNSTUR: * Prjónið 5 cm með litnum hvítur (metalinn kantur í hálsmáli) og síðan 3 cm með litnum gallabuxnablár * - endurtakið þessar litarendur jafnframt því sem allt stykkið er prjónað í mynstur – sjá mynsturteikningu A.1 og þegar aukið er út fyrir laskalínu eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-112-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum hvítur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 88-92-96-100-108-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú RENDUR OG MYNSTUR - lesið útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki hér - HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið jafnframt því sem prjónað er RENDUR OG MYNSTUR hringinn frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt (= 3 lykkjur á bakstykki), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið næstu 32-34-34-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið síðustu 29-31-31-33-35-37 lykkjur (= bakstykki) eftir síðasta prjónamerki (það eru 3 lykkjur eftir að fyrsta prjónamerki). Næsta umferð er prjónuð þannig: 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-4-6-6-8-8 lykkjur mynstur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 24-26-26-28-30-32 lykkjur mynstur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-4-6-6-8-8 lykkjur mynstur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 24-26-26-28-30-32 lykkjur mynstur (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, er nú lokið (= 16 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 11-13-14-16-17-19 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan) = 264-300-320-356-380-416 lykkjur í umferð. Stærð XL og XXL: Útaukning fyrir laskalínu er nú lokið. Stærð S, M, L og XXXL: Næsta umferð er prjónuð þannig: 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur fram að 3 lykkjum á undan næsta prjónamerki (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur fram að 3 lykkjum á undan næsta prjónamerki (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur fram að 3 lykkjum á undan næsta prjónamerki (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur mynstur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur fram að 3 lykkjum á undan næsta prjónamerki (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri). Allar stærðir: Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 272-308-328-356-380-424 lykkjur í umferð. Haldið áfram með Rendur og Mynstur án útaukningar þar til stykkið mælist 20-22-23-26-28-31 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4-3-4-5-7-7 lykkjur (= á bakstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið yfir næstu 80-88-94-104-114-126 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 76-85-90-99-107-119 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-228-252-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu sem heldur áfram í röndum og mynstri. Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 17 cm frá skiptingu = 184-200-216-236-260-284 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-27-28-26-26-25 cm frá skiptingu (ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjóni 4,5. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 56-66-70-74-76-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-74-80-84-88-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið RENDUR OG MYNSTUR hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 7.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 13-17-19-20-21-25 sinnum = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 39-37-37-35-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 44-42-42-40-38-36 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 4,5. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (123)
Dominique wrote:
Qui peut dire non à une jolie marinière ? Pas moi en tous cas ^^
12.12.2018 - 08:09Liesestrick66 wrote:
Schlicht und urgemütlich
11.12.2018 - 22:09Mary wrote:
So classic! Love it! :)
11.12.2018 - 16:55