DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Miami Chill

Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-52
DROPS Design: Mynstur r-745
Garnflokkur B

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 g litur 60, ljós ísblár

HEKLFESTA:
17 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar/endar þegar heklað er í hring).

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um þegar heklað er fram og til baka):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul).
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).

ÚRTAKA-1
STUÐULL:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju/um loftlykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).
FASTALYKKJA:
Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri).

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 24. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að hekla 23. og 24. hverja lykkju saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Það er 8 cm að klauf neðst niðri á toppnum, stykkið er fyrst heklað fram og til baka þar til klaufin hefur verið gerð, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins allan tímann. Þegar stykkið skiptist við handveg er heklað áfram fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 83-90-97-104-118-132 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 72-78-84-90-102-114 fastalykkjur (loftlykkjan sem er notuð til að snúa við er einnig talin sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1 – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir 8 cm er stykkið lagt til hliðar og framstykkið er heklað.

FRAMSTYKKI:
Heklið 83-90-97-104-118-132 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 72-78-84-90-102-114 fastalykkjur (loftlykkjan sem er notuð til að snúa við er einnig talin sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1. Haldið nú áfram þar til stykkið mælist 8 cm – endið í sömu umferð og á bakstykki.

TOPPUR eftir klauf:
Haldið áfram með mynstur þannig – heklið fyrstu lykkjurnar yfir bakstykki, heklið síðan lykkjurnar yfir framstykki, að lokum er umferðin hekluð saman með einni keðjulykkju í 1./3. lykkju í byrjun á umferð, heklið loftlykkju/loftlykkjur í A.2, snúið stykkinu og heklið til baka, endið með 1 keðjulykkju í 1./3./4. loftlykkju í byrjun á umferð.
Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis = hliðar.
Haldið svona áfram fram og til baka með mynstri eftir mynsturteikningu A.1 og A.2. Í umferð með stuðlum eða fastalykkjum eru nú 144-156-168-180-204-228 lykkjur í umferð (A.2 er ekki talið með í lykkjufjölda). Þegar stykkið mælist ca 10-11-12-13-14-15 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum eða fastalykkjum (merkt í mynsturteikningu með ör), fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og ÚRTAKA-2 (jafnt yfir). Fækkið lykkjum svona 4 sinnum í merktum umferðum með stuðlum eða fastalykkjum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur í umferð með stuðlum eða fastalykkjum.
Eftir síðustu úrtöku umferð er heklað mynstur eins og áður í ca 3 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé umferð merktri með ör (stykkið mælist nú ca 22-23-24-25-26-27 cm). Aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð með því að hekla 2 lykkjur í 1 lykkju. Aukið svona út alls 4 sinnum á hæðina við merktu umferðirnar í mynsturteikningu = 144-156-168-180-204-228 lykkjur í umferð með stuðlum eða fastalykkjum á eftir síðustu útaukningu. Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-38-39 cm – stillið af eftir umferð merktri með ör, heklið toppinn til loka eftir mynsturteikningu A.3 (snúið við eins og áður með mynsturteikningu A.2). Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki við handveg.

BAKSTYKKI:
Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, heklið nú fram þar til eftir eru 4-5-4-5-6-7 lykkjur á undan prjónamerki í annarri hliðinni, snúið stykkinu. Í næstu umferð eru heklaðar 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið saman 2 og 2 – munið eftir ÚRTAKA!
Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru heklaðar 2 ystu lykkjur í hvorri hlið saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 2-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar.
Eftir allar úrtökur eru 54-58-62-64-68-72 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm, heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig.

ÖXL:
Haldið áfram með stuðla yfir fyrstu 17-19-21-22-23-24 lykkjur frá réttu, snúið og heklið 4 fyrstu lykkjur saman 2 og 2 fyrir hálsmáli, heklið síðan út umferðina. Snúið og heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, heklið þær saman 2 og 2, snúið. Í næstu umferð eru heklaðar 2 fyrstu lykkjur saman, síðan er heklað út umferðina. Snúið, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið þær saman. Snúið, heklið 2 fyrstu lykkjurnar saman, heklið út umferðina = 10-12-14-15-16-17 lykkjur á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, klippið frá.
Heklið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. byrjið frá réttu, úrtaka fyrir hálsmáli er gerð í lok umferðar frá röngu.

FRAMSTYKKI:
Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, heklið síðan fram þar 4-5-4-5-6-7 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í annarri hliðinni, snúið stykkinu. Í næstu umferð eru 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið heklaðar saman 2 og 2 – munið eftir ÚRTAKA!
Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru 2 ystu lykkjur heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 2-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar.
Eftir allar úrtökur eru 54-58-62-64-68-72 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig.
Heklið öxl á sama hátt og á bakstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur.

SKRAUTKANTUR:
Skraut kantur er heklaður í kringum hálsmál, hvorn handveginn og í kringum fram- og bakstykki neðst niðri – einnig upp og niður í hvorri klauf.
Skraut kanturinn er heklaður þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir ca 1 cm og gerið 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð.

Mynstur

symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja í aftari lykkjuboga á lykkju frá réttu og í fremri lykkjuboga á lykkju frá röngu
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull á milli 2 stuðla
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = hoppið yfir 1 lykkju, 1 stuðull í/um næstu fastalykkju/loftlykkju, 1 stuðull í/um lykkjuna sem hoppað var yfir
symbols = HEKLIÐ 3 STUÐLA SAMAN ÞANNIG: Heklið 2 stuðla í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa stuðla, heklið 1 stuðul í sömu lykkju og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = í þessari röð/umferð er aukið út/lykkjum fækkað jafnt yfir – sjá uppskrift
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-52

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Fabienne wrote:

Bonjour, si j'ai bien compris, le 1er RG de A1 je saute 1b puis je fais 1b dans m suivante puis je reviens en arrière sur la b sautée ?

14.05.2020 - 15:24

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, c'est bien ça, cette vidéo vous montre comment crocheter ces brides croisées. Bon crochet!

14.05.2020 - 16:16

country flag Martine wrote:

Bonjour, à partir de l'emmmanchure pour le dos en taille S, on 74 m. Faire 5 mc de chaque côté, reste donc 64 m. On est dans A3, on ne fait pas les diminutions du diagramme.…? On fait juste ce qui est écrit.....à chaque rang... Merci

16.04.2020 - 23:12

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, avant de diviser pour les emmanchures vous avez 144 mailles en taille S soit 72 m pour le devant et 72 m pour le dos, en taille M vous avez 156 m au total soit 78 m pour le devant et autant pour le dos. Vous diminuez effectivement 4 ou 5 m (S ou M) de chaque côté, il va rester: 64 m en S et 68 m en M. Vous crochetez maintenant A.3 - les flèches indiquent ici quand ajuster le début de A.3 et plus les rangs où diminuer/augmenter. Bon crochet!

17.04.2020 - 08:51

country flag Martine7 wrote:

Merci, j'ai un doute pour relier le dos avec le devant. Je suis au rang 10 pour relier. Après la dernière maille en l'air, pour passer sur le devant , faut il passer directement au groupe de 7 Brides du devant ? Merci pour votre aide.

28.03.2020 - 00:24

DROPS Design answered:

Bonjour Martine7, quand vous crochetez le 1er rang (tour) au-dessus du dos et du devant, vous crochetez simplement le tour suivant sur les mailles du dos, puis sur celles du devant, si vous êtes au tour 9, alors vous terminez le dos par 1 ms dans la dernière maille, puis sautez les 2 premières m du devant pour crocheter les 7 brides dans la bride suivante et continuer A.1 jusqu'à la fin du devant. Bon crochet!

30.03.2020 - 09:01

country flag Martine wrote:

Bonjour, les petits bouts devant et dos sont arrêtés, c'est à dire que l'on coupe les fils...? Puis on repart sur le dos à droite, sur l'endroit ? Ensuite on ne crochète pas en rond, mais on tourne, c'est bien cela? Merci d'avance, portez-vous bien.

27.03.2020 - 16:02

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, vous crochetez d'abord les 8 cm du bas du dos, vous pouvez mettre en attente sans couper le fil. Crochetez ensuite les 8 cm du bas du devant, coupez le fil. Reprenez ensuite le dos et crochetez d'abord le dos, puis le devant en rond dans le sens où on va fermer chaque tour par 1 mc mais on va continuer à crocheter alternativement sur l'endroit et sur l'envers (pour conserver la même texture que pour les 8 cm du bas). Bon crochet!

27.03.2020 - 16:42

country flag Fabienne wrote:

Que veut dire "ajuster"? Hâte de continuer, j'aime beaucoup votre site.

26.02.2020 - 00:07

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, la hauteur doit être modifiée si besoin pour que le tour suivant soit celui indiqué dans les explications, par ex au début en taille S, à 10 cm ou bien un peu avant/un peu après tant que le tour suivant est un des tours avec une flèche dans le diagramme. Bon crochet!

26.02.2020 - 09:44

country flag Ekaterina wrote:

Dear Drops! Should I crochet Back and Front pieces according to A1or A3 after the devision at the armholes?

28.09.2019 - 17:27

DROPS Design answered:

Dear Ekaterina, you are continuing working A.3 after division for armholes. Happy crocheting!

30.09.2019 - 09:47

country flag Elizabeth wrote:

Hello! Dear Drops should I increase in the front and back pieces while I am working vents?

02.08.2019 - 22:15

DROPS Design answered:

Dear Elizabeth, no there is no increase / decrease at the edges, while you are doing the wents. I hope this helps, Happy Crafting!

02.08.2019 - 22:50

country flag Ekaterina wrote:

Dear Drops! I'm crochetting top after vent and I don`t understand how many stitches should be after increases in A1 when I work round together?

23.07.2019 - 09:21

DROPS Design answered:

Dear Ekaterina, when you work top after vent you first decrease 6 stitches on a round with a star and repeat thiese decreases a total of 4 times on every round with a start in the diagram, after all dec are worked = 120-204 sts. Then increase 6 sts on every row with a star a total of 4 times = 144-228 sts (see size). Happy crocheting!

06.08.2019 - 09:40

country flag Ekaterina wrote:

Dear Drops! I need your help again- how can I have 78sts from front and back pieces if I have increased on three rows 6 sts : 78+18=96 sts

22.07.2019 - 10:31

country flag Ekaterina wrote:

Dear Drops! I need your help again- how can I have 78sts from front and back pieces if I have increased on three rows 6 sts : 78+18=96 sts

19.07.2019 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Ekaterina, you don't increase evenly on the first rows worked back and fort before vents. Happy crocheting!

05.08.2019 - 16:23