Miami Chill |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-52 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar/endar þegar heklað er í hring). HEKLLEIÐBEININGAR (á við um þegar heklað er fram og til baka): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul). Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). ÚRTAKA-1 STUÐULL: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju/um loftlykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). FASTALYKKJA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 24. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að hekla 23. og 24. hverja lykkju saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það er 8 cm að klauf neðst niðri á toppnum, stykkið er fyrst heklað fram og til baka þar til klaufin hefur verið gerð, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins allan tímann. Þegar stykkið skiptist við handveg er heklað áfram fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið 83-90-97-104-118-132 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 72-78-84-90-102-114 fastalykkjur (loftlykkjan sem er notuð til að snúa við er einnig talin sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1 – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir 8 cm er stykkið lagt til hliðar og framstykkið er heklað. FRAMSTYKKI: Heklið 83-90-97-104-118-132 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Haldið áfram með 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 72-78-84-90-102-114 fastalykkjur (loftlykkjan sem er notuð til að snúa við er einnig talin sem 1 fastalykkja). Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka. Heklið nú eftir mynsturteikningu A.1. Haldið nú áfram þar til stykkið mælist 8 cm – endið í sömu umferð og á bakstykki. TOPPUR eftir klauf: Haldið áfram með mynstur þannig – heklið fyrstu lykkjurnar yfir bakstykki, heklið síðan lykkjurnar yfir framstykki, að lokum er umferðin hekluð saman með einni keðjulykkju í 1./3. lykkju í byrjun á umferð, heklið loftlykkju/loftlykkjur í A.2, snúið stykkinu og heklið til baka, endið með 1 keðjulykkju í 1./3./4. loftlykkju í byrjun á umferð. Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis = hliðar. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstri eftir mynsturteikningu A.1 og A.2. Í umferð með stuðlum eða fastalykkjum eru nú 144-156-168-180-204-228 lykkjur í umferð (A.2 er ekki talið með í lykkjufjölda). Þegar stykkið mælist ca 10-11-12-13-14-15 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum eða fastalykkjum (merkt í mynsturteikningu með ör), fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og ÚRTAKA-2 (jafnt yfir). Fækkið lykkjum svona 4 sinnum í merktum umferðum með stuðlum eða fastalykkjum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur í umferð með stuðlum eða fastalykkjum. Eftir síðustu úrtöku umferð er heklað mynstur eins og áður í ca 3 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé umferð merktri með ör (stykkið mælist nú ca 22-23-24-25-26-27 cm). Aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð með því að hekla 2 lykkjur í 1 lykkju. Aukið svona út alls 4 sinnum á hæðina við merktu umferðirnar í mynsturteikningu = 144-156-168-180-204-228 lykkjur í umferð með stuðlum eða fastalykkjum á eftir síðustu útaukningu. Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-38-39 cm – stillið af eftir umferð merktri með ör, heklið toppinn til loka eftir mynsturteikningu A.3 (snúið við eins og áður með mynsturteikningu A.2). Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki við handveg. BAKSTYKKI: Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, heklið nú fram þar til eftir eru 4-5-4-5-6-7 lykkjur á undan prjónamerki í annarri hliðinni, snúið stykkinu. Í næstu umferð eru heklaðar 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið saman 2 og 2 – munið eftir ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru heklaðar 2 ystu lykkjur í hvorri hlið saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 2-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar. Eftir allar úrtökur eru 54-58-62-64-68-72 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm, heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig. ÖXL: Haldið áfram með stuðla yfir fyrstu 17-19-21-22-23-24 lykkjur frá réttu, snúið og heklið 4 fyrstu lykkjur saman 2 og 2 fyrir hálsmáli, heklið síðan út umferðina. Snúið og heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, heklið þær saman 2 og 2, snúið. Í næstu umferð eru heklaðar 2 fyrstu lykkjur saman, síðan er heklað út umferðina. Snúið, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið þær saman. Snúið, heklið 2 fyrstu lykkjurnar saman, heklið út umferðina = 10-12-14-15-16-17 lykkjur á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, klippið frá. Heklið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. byrjið frá réttu, úrtaka fyrir hálsmáli er gerð í lok umferðar frá röngu. FRAMSTYKKI: Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, heklið síðan fram þar 4-5-4-5-6-7 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í annarri hliðinni, snúið stykkinu. Í næstu umferð eru 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið heklaðar saman 2 og 2 – munið eftir ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru 2 ystu lykkjur heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 2-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar. Eftir allar úrtökur eru 54-58-62-64-68-72 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Heklið öxl á sama hátt og á bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur. SKRAUTKANTUR: Skraut kantur er heklaður í kringum hálsmál, hvorn handveginn og í kringum fram- og bakstykki neðst niðri – einnig upp og niður í hvorri klauf. Skraut kanturinn er heklaður þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir ca 1 cm og gerið 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (39)
Ekaterina wrote:
Dear Drops! Thank you very much for your kind help.
19.07.2019 - 13:06Ekaterina wrote:
Dear Drops! Would you be so kind to help me with the following question : TOP after vent: How many stitches should I work over back piece, and over front piece? What does it mean to work round together with a slip stitch in 1st/3rd stitch? 1st stitch of back piece and 3rd stitch of front piece?
18.07.2019 - 08:59DROPS Design answered:
Dear Ekaterina, you now work all stitches from back piece (= 72-78-84-90-102-114 sts - see size) then all stitches from front piece (= 72-78-84-90-102-114 sts). At the end of this first row join into a round crocheting a slip stitch in the first stitch from beg of round (= if you start with 1 chain, you crochet the sl st in the 1st ch, if you start with 3 ch, you crochet the sl st in the 3rd ch from beg of round). Happy crocheting!
18.07.2019 - 10:53EKATERINA wrote:
Dear DROPS! Could you help me with the question concerning Increases? How many stitches should I increase in row 3 of A.1? Thank you in advance.
03.07.2019 - 15:15DROPS Design answered:
Dear Ekaterina, you should increase 6 stitches in A.1 on every row marked with an arrow - read here how to increase evenly on a round. Happy crocheting!
03.07.2019 - 16:08Morag wrote:
Could you clarify where the increasing and decreasing starts. The diagram shows an arrow on the 3rd row of A1 but the written instructions don't mention an INCREASE. In fact the first mention is a DECREASE contrary to the diagram. I'm very confused!!
27.06.2019 - 21:36Gunvor Madsen wrote:
Den ser super sød ud, den vil jeg lave, når opskriften kommer.
14.02.2019 - 08:48Beti wrote:
Dieses Modell ist traumhaft, würde es gern nacharbeiten.
20.12.2018 - 13:24Doenja wrote:
Graag haak ik deze geweldige top ! Er zijn te weinig haak modellen in deze zomer collectie !!!
18.12.2018 - 21:48Laura Waterfield wrote:
So lovely. I love to wear this style
14.12.2018 - 11:54Rosemary wrote:
Inspiring practical and beautiful.
12.12.2018 - 01:42