Autumn Charm |
|
|
|
Hekluð peysa með röndum úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er heklað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-46 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. RENDUR Á BAK-/FRAMSTYKKI Rendurnar eru heklaðar ofan frá og niður þannig: 9½-9½-10-10-11-11 cm (mælt frá uppfitjunarkanti) með 1 þræði ljós grár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir) 9½-9½-10-10-11-11 cm með 1 þræði ljós perlugrár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir). 9½-9½-10-10-11-11 cm með 1 þræði appelsína og 1 þræði ljós grár (= 2 þræðir). 9½-9½-10-10-11-11 cm með 1 þræði appelsína og 1 þræði tómatrauður (= 2 þræðir). 9½-9½-10-10-11-11 cm með 1 þræði tómatrauður og 1 þræði perlugrár (= 2 þræðir). Heklið síðan með 1 þræði ljós grár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir) til loka. RENDUR ERMI: Rendurnar eru heklaðar ofan frá og niður þannig: 9½ cm með 1 þræði ljós perlugrár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir). 9½ cm með 1 þræði appelsína og 1 þræði ljós grár (= 2 þræðir). 9½ cm með 1 þræði appelsína og 1 þræði tómatrauður (= 2 þræðir). 9½ cm með 1 þræði tómatrauður og 1 þræði ljós perlugrár (= 2 þræðir). Heklið síðan með 1 þræði ljós grár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir) til loka. ÚRTAKA (á við um ermar): Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður og frágangur er gerður á meðan stykkið er í vinnslu. Ermar eru heklaðar frá handveg fram og til baka, ofan frá og niður og saumaðar saman í lokin. VINSTRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Heklið 18-20-20-22-25-28 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 16-18-18-20-23-26 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir er aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferð fyrir hálsmáli (aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul), heklið út umferðina = 17-19-19-21-24-27 stuðlar. Klippið frá. HÆGRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Heklið 18-20-20-22-25-28 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 16-18-18-20-23-26 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir er aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferð fyrir hálsmáli (aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul), heklið út umferðina = 17-19-19-21-24-27 stuðlar. Endið með 20-20-22-22-24-24 loftlykkjur fyrir hálsmáli og festið við vinstri öxl með 1 keðjulykkju í hálsmáli. Klippið frá. BAKSTYKKI: Næsta umferð er hekluð þannig (rétta): Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju í hálsmáli og 1 stuðul í hvern stuðul út umferðina = 54-58-60-64-72-78 stuðlar. Heklið síðan stuðla og RENDUR BAK-/FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm á að fitja upp nýjar loftlykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki mitt í þessa umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 3-3-5-7-7-8 lausar loftlykkjur fyrir handveg, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og heklið 3-3-5-7-7-8 lausar loftlykkjur fyrir handveg = 60-64-70-78-86-94 lykkjur. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkja þar til stykkið mælist ca 39-40-41-42-43-44 cm frá prjónamerki. Klippið frá og festið enda. VINSTRI ÖXL FRAM (þegar flíkin er mátuð): Heklið 18-20-20-22-25-28 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 16-18-18-20-23-26 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið3-3-3-5-5-5 umferðir er aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferð fyrir hálsmáli (aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul). Endurtakið útaukningu við hálsmál í næstu 2-2-2-2-1-1 umferðum = 19-21-21-23-25-28 stuðlar. Klippið frá. HÆGRI ÖXL FRAM (þegar flíkin er mátuð): Heklið 18-20-20-22-25-28 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 16-18-18-20-23-26 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið3-3-3-5-5-5 umferðir er aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferð fyrir hálsmáli (aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul). Endurtakið útaukningu við hálsmál í næstu 2-2-2-2-1-1 umferðum = 19-21-21-23-25-28 stuðlar. Endið með 16-16-18-18-22-22 loftlykkjur fyrir hálsmáli og festið veið vinstri öxl með 1 keðjulykkju í hálsmáli. Klippið frá. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og BAKSTYKKI, en næsta umferð byrjar frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með sama lit og uppfitjunarkantur – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. ERMI: Heklið fram og til baka með byrjun frá handveg og niður að köntum á ermi. Heklið 48-50-54-56-58-62 stuðla jafnt yfir um ystu stuðlaumferðina meðfram öllum handveginum (en ekki yfir loftlykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið á fram- og bakstykki) með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Heklið síðan 1 umferð með stuðlum. Heklið síðan stuðla og RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar heklaðar hafa verið alls 4 umferðir á ermi, fækkið um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið með 7-7-5-5-5-3½ cm millibili alls 7-7-9-9-9-11 sinnum = 34-36-36-38-40-40 stuðlar. Heklið áfram þar til ermin mælist ca 54-54-54-53-52-50 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermi í botn á handveg. Saumið síðan saum undir ermum og hliðar saum í eitt – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant í kringum hálsmál frá miðju upp að öxl með 1 þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir) þannig: Heklið 1 fastalykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið og stillið af þannig að endað sé með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð, passið uppá að kanturinn verði ekki stífur. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Wendy wrote:
Yes, please! Crochet patterns for fitted and pretty contemporary sweaters are SO hard to find. Please include this in a written (not chart) pattern. I want to make this!
08.07.2019 - 22:17Emalie wrote:
Preciosos colores y parece una ejecución sencilla. Queda genial.
23.06.2019 - 12:09Soussou wrote:
Beau modèle pour ma fille à qui je vais faire faire quelques rangs de brides pour participer.
21.06.2019 - 15:02Regina wrote:
Wunderschön. Ist wohl mit doppeltem Faden gehäkelt. Der Verlaufeffekt ist genial.
12.06.2019 - 22:48Karin wrote:
Vackra färger! Kul med moderna virkmönster!
09.06.2019 - 10:39Crochet Alot wrote:
Please, include this lovely sweater! I would begin working on it now, to have it ready by fall. Such a brilliant fade!
07.06.2019 - 01:32Jennifer MF Stephens wrote:
I kept thinking embers and ash, but who wants a piece related to dirty ol' ash?! Then I thought, a Phoenix rises from the ashes, and with the center emanating a strong ember red it seemed a fitting name to me. I hope to see this one make the cut! Y'all have such talented designers that the choices are tough. Include Everything! :D
06.06.2019 - 20:18Elsa Alís Domínguez wrote:
I think it's a beautiful jersey !! Please include it !!
06.06.2019 - 09:42