DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2682.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cracked Pepper Jacket

Hekluð peysa úr DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-45
DROPS Design: Mynstur fa-436
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-450-500-550 g litur 602, silfurrefur.

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 12 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2682.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul)

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út/fækka lykkjum í umferð, teljið fjölda lykkja á prjóni (t.d. 24 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem á að auka út/fækka (t.d. 3) = 8.
Ef auka á út jafnt yfir í þessu dæmi eru heklaðir 2 stuðlar í 8. hvern stuðul.
Ef fækka á lykkjum jafnt yfir í þessu dæmi eru heklaðir 7. og 8. hver stuðull saman.
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul í/um næsta stuðul/lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokinn, heklið 1 stuðul í/um næsta stuðul/lykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokinn er hann dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA:
Berustykkið og fram- og bakstykki er heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er heklaður fram og til baka. Að lokum er heklaður kantur í kringum allt opið á peysunni.

BERUSTYKKI:
Heklið 132-141-144-153-153-159 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Fabel (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 130-139-142-151-151-157 stuðlar. Heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 22-25-25-28-28-28 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= alls 11 stuðlar fleiri), 1 stuðul í hvern af næstu 42-45-48-51-51-57 stuðlum, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 stuðlar fleiri), 1 stuðull í hvern af síðustu 22-25-25-28-28-28 stuðlum = 152-161-164-173-173-179 stuðlar.

Í næstu umferð eru sett prjónamerki í stykkið jafnframt því sem heklað er, prjónamerkin eiga að fylgja með í stykkinu til að auðveldara sé að sjá hvar mynstureiningin byrjar og endar. Heklið frá réttu þannig:

Heklið A.1 yfir 5 fyrstu stuðlana (= kantur að framan), A.1 yfir næstu 21-24-24-27-27-27 stuðlana (= 7-8-8-9-9-9 einingar) (= vinstra framstykki). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.2a yfir næstu 2 stuðlana (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki. Heklið A.1 yfir næstu 12 stuðlana (= 4 einingar). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.3 yfir 1 stuðul (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki hér. Heklið A.1 yfir næstu 12 stuðlana (= 4 einingar).
Setjið 1 prjónamerki og heklið A.2a yfir næstu 2 stuðlana (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki (= vinstri ermi). Heklið A.1 yfir næstu 42-45-48-51-51-57 stuðlana (= 14-15-16-17-17-19 einingar) (= bakstykki). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.2a yfir næstu 2 stuðlana (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki. Heklið A.1 yfir næstu 12 stuðlana (= 4 einingar). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.3 yfir 1 stuðul (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki. Heklið A.1 yfir næstu 12 stuðlana (= 4 einingar). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.2a yfir næstu 2 stuðlana (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki (= hægri ermi). Heklið A.1 yfir næstu 21-24-24-27-27-27 stuðlana (= 7-8-8-9-9-9 einingar) og 1 stuðul í hvern og einn af síðustu 5 stuðlum (= kantur að framan) (=hægra framstykki).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

STÆRÐ S og M:
Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 210-219 stuðlar í umferð.

STÆRÐ L, XL og XXL:
Í síðustu umferð í A.1 til A.3 er aukið út um 3-3-3 stuðla jafnt yfir lykkjur í mynsturteikningu A.1 á framstykki – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA og 6-0-12 stuðlar jafnt yfir lykkjur í mynsturteikningu A.1 á bakstykki (= 12-6-18 stuðlar fleiri alls). Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 234-237-249 stuðlar í umferð.

STÆRÐ XXXL:
Í síðustu umferð í A.1 til A.3 er aukið út um 3 stuðla jafnt yfir lykkjur í mynsturteikningu A.1 á bakstykki – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240 stuðlar í umferð.

ALLAR STÆRÐIR:
Það eru alls 210-219-234-237-249-240 stuðlar á eftir síðustu umferð í mynsturteikningu og stykkið mælist ca 5 cm í öllum stærðum.

STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL:
Heklið 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og A.1 eins og áður, en það á að hekla yfir A.2a og A.3 þannig: Mynsturteikning A.2a er hekluð yfir 2 miðju stuðlana í hverri eining af A.2a alls 1-1-2-2 sinnum til viðbótar á hæðina (þ.e.a.s. A.2a hefur verið heklað alls 2-2-3-3 sinnum á hæðina), yfir þær lykkjur sem eftir eru er heklað A.1 (þ.e.a.s. það eru heklaðar 2 einingar af A.1 yfir hverja A.3 á ermum og það eru heklaðar 2 einingar af A.1 hvoru megin við hvert A.2a). Þegar A.2a er lokið eru 282-285-345-336 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 8-8-12-12 cm.

STÆRÐ XXXL:
Heklið mynsturteikningu A.2b yfir 2 miðju stuðlana í hverri einingu af A.2a alls 1 sinni á hæðina, það eru heklaðir stuðlar yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2b er lokið eru 384 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 15 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Það eru alls 210-219-282-285-345-384 stuðlar í umferð og stykkið mælist ca 5-5-8-8-12-15 cm.

STÆRÐ S, M, L og XL:
Heklið 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og A.1 eins og áður, en nú á að hekla A.4a yfir miðju 2 stuðlana í hverri einingu af A.2 alls 2-2-1-1 sinnum á hæðina, þær lykkjur sem eftir eru, eru heklaðar í A.1. Þ.e.a.s. yfir hvert A.2 er heklað þannig: Heklið A.1 yfir 6 stuðla (= 2 einingar), A.4a yfir 2 stuðla (= 1 eining) og A.1 yfir 6 stuðla (= 2 einingar). Í hvert skipti sem A.4a er endurtekið á hæðina eru heklaðar 8 einingar fleiri af A.1 í umferð.

STÆRÐ M, L og XL:
Heklið mynsturteikningu A.4b yfir miðju 2 stuðlana í hverri einingu af A.4a alls 1-1-2 sinnum á hæðina, stuðlar eru heklaðir yfir þær lykkjur sem eftir eru.

STÆRÐ XXL og XXXL:
Heklið mynsturteikningu A.4b yfir miðju 2 stuðlana í hverri einingu af A.2 alls 2-2 sinnum á hæðina, stuðlar eru heklaðir yfir þær lykkjur sem eftir eru.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar A.4 er lokið eru 258-291-330-357-393-432 stuðlar í umferð. Stykkið mælist ca 12-15-15-18-19-22 cm.
Heklið mynsturteikningu A.5 yfir miðju 2 stuðlana í hverri einingu af A.4 alls 1 sinni á hæðina, stuðlar eru heklaðir yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þ.e.a.s. yfir hvert A.4 er heklað þannig:
Heklið 3 stuðla, A.5 yfir næstu 2 stuðla (= 1 eining) og 3 stuðlar. Þegar A.5 er lokið eru 286-319-358-385-421-460 stuðlar í umferð. Stykkið mælist ca 15-18-18-21-22-25 cm. Haldið áfram með stuðla yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist alls 17-19-20-22-24-26 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 44-50-53-59-65-71 lykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 stuðla (= ermi), heklið 12 loftlykkjur (= undir ermi), heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 84-87-102-105-121-138 lykkjur (= bakstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 stuðlana (= ermi), heklið 12 loftlykkjur (= undir ermi), heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 44-50-53-59-65-71 (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 196-211-232-247-277-304 lykkjur. Heklið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju til loka. Þegar stykkið mælist 3,5 cm frá skiptingu er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð þannig: Fækkið um 6 stuðla jafnt yfir alls 3-3-3-2-2-2 sinnum (ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur að framan) og síðan 3 stuðla alls 0-0-1-0-1-1 sinni = 178-193-211-235-262-289 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu er aukið út í 4. hverri umferð þannig: 15 stuðlar jafnt yfir alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, 9 stuðlar jafnt yfir alls 3-3-3-2-4-3 sinnum og 6 stuðlar jafnt yfir alls 1-1-0-1-0-1 sinnum = 211-226-253-274-298-322 lykkjur. Haldið áfram að hekla stuðla þar til stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá skiptingu. Stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá kanti í hálsmáli. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Byrjið umferð í 6. loftlykkju af 12 loftlykkjum sem heklaðar voru undir ermi á fram- og bakstykki, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju/stuðul umferðina hringinn = 69-78-87-93-96-102 stuðlar. Haldið áfram að hekla stuðla hringinn. Þegar ermin mælist 3,5 cm fækkið lykkjum jafnt yfir í 4. hverri umferð þannig: Fækkið um 6 lykkjur alls 0-1-3-5-6-6 sinnum og 3 stuðla alls 5-6-4-2-0-0 sinnum = 54-54-57-57-60-66 stuðlar.
Haldið áfram með stuðla þar til stykkið mælist 38-36-35-34-32-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Heklið síðan kant í kringum kant á ermum frá réttu þannig: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkju í fyrsta/næsta stuðul, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm * , heklið frá *-* hringinn alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið hringinn, fram og til baka yfir loftlykkjuröðina í hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Byrjið yfir kant að framan, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu kantlykkju að framan, heklið 1 hálfan stuðul á milli hverra stuðla yfir loftlykkjuröð í hálsi (fyrsti hálfa stuðul í umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur) = ca 130-139-142-151-151-157 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul (fyrstu fastalykkju í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju) = ca 130-139-142-151-151-157 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

KANTUR:
Það er heklaður kantur í kringum allt opið á peysunni þannig:
Byrjið frá réttu og neðst á vinstri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í hornið, * heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm og heklið 1 fastalykkju í næsta stuðul *, heklið frá *-* meðfram öllum kantinum fram að hægri kanti að framan.
Stillið af þannig að endað sé með 1 fastalykkju í síðasta kanti að framan. Nú eru heklað áfram upp yfir kant að framan á hægri hlið (þegar flíkin er mátuð) þannig: Heklið 3 loftlykkjur, hoppið fram að fyrstu umferð meðfram kanti að framan og heklið 1 fastalykkju um ysta stuðulinn. ** Heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 umferð og heklið 1 fastalykkju um ysta stuðul í næstu umferð **, heklið frá **-** upp yfir allan kantinn að framan. Stillið af að endað sé með 1 fastalykkju í efstu umferð. Heklið frá *-* meðfram öllum kanti í hálsi fram að vinstri kanti í hálsi. Stillið af þannig að endað sé með 1 fastalykkju í síðasta stuðul. Heklið frá **-** niður meðfram vinstri kanti að framan og stillið af að umferðin endar í fyrstu lykkju í umferð. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki þannig: Saumið fyrstu töluna í ca 1½-2 cm niður frá kanti í hálsmáli, síðan eru 5-5-5-6-6-6 tölurnar sem eftir eru saumaðar með ca 8-9 cm millibili. Tölum er hneppt í gegnum stuðlana á hægri kanti að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.04.2021
Kafli þar sem útskýrt er hvernig hekla á mynsturteikningu A.4b og A.5 hefur verið leiðréttur.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2021
BERUSTYKKI: Heklið 132-141-144-153-153-159 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Fabel...

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja – ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = heklið 4 stuðla saman þannig: heklið 1 stuðul um loftlykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 stuðla til viðbótar í sömu lofltykkju, en bíðið með að draga þráðinn i gegn í lokin, dragið síðan þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Perez Olga wrote:

Bonjour je voulais faire ce gilet mais voilà je bloque déjà au début je ne comprend pas comment faire le point A.1

20.05.2024 - 15:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Perez, A.1 se crochète sur 3 mailles, ainsi au 1er rang: *sautez 1 maille, dans la maille suivante, crochetez: 1 bride, 1 maille en l'air, 1 bride, sautez 1 maille*, répétez de *-*; au 2ème rang, crochetez: *1 maille en l'air, crochetez 4 brides écoulées ensemble autour de la maille en l'air entre les 2 brides du rang précédent, 1 maille en l'air*, répétez de *-*. Au 3ème rang, crochetez *1 bride autour de la maille en l'air, 1 bride dans les 4 brides écoulées ensemble, 1 bride autour de la maille en l'air*, répétez de *-*. Au 4ème rang, crochetez 1 bride dans chaque bride. Bon crochet!

21.05.2024 - 13:37

country flag Rosa Christoffersen wrote:

Hej, I opskriften står der : hækl 5 st. I hver side og A1 som før, men der skal hækles således over A.2a og A.3 : Diagram A2a hækles over de to midterste stangmasker i hver rapport af A2a totalt 1-1-2-2 til i højden- hvordan finder jeg dem ? Og hvordan gøres det ? På forhånd tak🤞🏼

19.01.2024 - 16:26

DROPS Design answered:

Hei Rosa. Du har nå heklet A.1, A.2A og A.3 1 gang i høyden. 1 rapport av A.2A består nå av 14 masker og du skal nå begynne på 1. rad av A.2A igjen, som består kun av 2 masker. Disse 2 maskene skal hekles over de 2 midterste maskene av de 14 maskene, men A.1 hekles på hver side. Over de 14 maskene hekles det da slik: A.1 + A.1 + A.2A + A.1 + A.1 = 14 masker (4 steder på raden). Over A.3 som består av 6 masker (etter å ha blitt heklet 1 gang i høyden), skal A.1 hekles 2 ganger. A.1 + A.1 = 6 masker. Se i oppskriften hvor mange ganger det skal hekles totalt i høyden i den str. du hekler etter. mvh DROPS Design

29.01.2024 - 09:14

country flag Saskia Theeuwen wrote:

Ik ben aangekomen bij stuk dat ik A4a moet haken voor A2. Dat begrijp ik maar wat haak ik op het gedeelte waar ik A3 eerder gehaakt heb. Dat is niet duidelijk. Groetjes Saskia

09.11.2023 - 08:20

DROPS Design answered:

Dag Saskia,

De overige steken haak je zoals hiervoor, dus je haakt A.4 over de middelste steken van A.2 en de rest in A.1

13.11.2023 - 06:25

country flag Saskia Theeuwen wrote:

Ik ben aangekomen bij stuk dat ik A4a moet haken voor A2. Dat begrijp ik maar wat haak ik op het gedeelte waar ik A3 eerder gehaakt heb. Dat is niet duidelijk. Groetjes Saskia

09.11.2023 - 08:16

country flag April Humphrey-Feldman wrote:

Hi there, I am making size XL and have completed the 1st 3 rows of the chart patterns that start the yoke (so I have 5 rows total including the 2 set up rows, but not including the foundation chain). For XL, the next step is to increase "in A.1 to A.3... evenly over stitches in diagram A.1 on each front piece." However, there are 3 A.1 sections on each side. Do I only increase in the 1st and last A.1 sections?

08.07.2023 - 01:11

DROPS Design answered:

Dear April, an A.1 section is a section with one or more repeats of A.1. You increase 3 stitches on each front piece inside the A.1 section. Happy crocheting!

10.07.2023 - 16:36

country flag Belinda wrote:

Ik heb nu 5 cm en 234 steken voor Maat L Hoe moet ik nu verder. A2a snap ik niet. Waar doe ik dubbele paars? A1 tot het midden van a2 en daar die 2x2 stokjes?

13.06.2023 - 19:41

DROPS Design answered:

Dag Bellinda,

In de telpatronen staat bij de eerste toer een sterretje. Deze toer is al gehaakt en staat er bij om te laten zien hoe je in de steken moet haken. In de beschrijving staat dat je A.2a over 2 steken moet haken. Je haakt dan dus 1 stokje 1 losse en 1 stokje in de eerste steek en dat doe je ook in de tweede steek. (Op de volgende toer heb je natuurlijk al meer steken op de plek waar je A.2 haakt.)

14.06.2023 - 18:07

country flag Marianne Oxenvad wrote:

Jeg vil gerne høre om i har modtaget min bestilling på garn til denne opskrift

11.01.2023 - 17:07

country flag Lara wrote:

Buonasera, non mi è chiaro se il motivo A4a sulle due maglie di A2A vada lavorato su entrambe o vada lavorato sulla prima di A2a lasciando vuota la seconda. Grazie mille

27.10.2022 - 18:48

DROPS Design answered:

Buonasera Lara, deve lavorarlo sulla 1° maglia. Buon lavoro!

28.10.2022 - 21:01

country flag Myrte wrote:

Het eerst deel is gelukt. Voor maat M heb ik 5 cm. Vervolgens kom A4 erbij. Is het dan de bedoeling om naast A.4 ALLEEN A.1 te herhalen en niet meer A.2a en A.3?

29.09.2022 - 13:30

DROPS Design answered:

Dag Myrte,

Ja, klopt, je haakt nu alleen A.4 en over de middelste 2 stokjes haak je A.4a. Dus je haakt niet meer A.2 en A.3

02.10.2022 - 16:01

country flag Anna Paola Majer wrote:

Buongiorno, non so se ho capito bene le spiegazioni: "lavorare il diagramma A4a sulle maglie centrali di ogni ripetizioni del diagramma A2"; come dire che bisogna inserire il diagramma A4a nel diagramma A2, per fare gli aumenti? Grazie !

02.09.2022 - 15:50

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Paola, dove indicato deve lavorare A.4a sulle 2 maglie centrali di A.2. Buon lavoro!

02.09.2022 - 21:49